Vísir - 21.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 21.10.1971, Blaðsíða 1
visrn BJÓRINN ENN Á DAGSKRÁ 61. árg. — Fimmtudagur 2r <iktóber 1971 — 240. tbl „Það er langt frá því að bjór- málið sé dautt. Hins vegar þarf ég ekki að flytja sérstakt bjórfrum: varp á þessu þingi, það er nóg að flytja breytingartillögu við frum- varp ríkisstjómarinnar um heimild til að flytja óáfengt öl til landsins", sagði Pétur Sigurðsson alþm. í sám tali við Vísi í morgun. Vegna aðildar íslands að EFTA hefur ríkisstjórnin lagt fram frum- varp til laga um að heimilt veröi að flytja inn f landið öl, sem hefur innan við 2,25% vínandamagn að rúmmáli, frá næstu áramótum. Pétur Sigurðsson sagðist ætla að fá nokkra þingmenn til að flytja með sér breytingartillögu við þetta Húsnæðismál- in á Kleppi: Sjúklingamir búa / heilsuspillandi húsnæði — en flytja nú i eitf virtasta hverfi borgarinnar „Það eru fyrirmæli um það, að á bamaheimilum skuli vera einn metri milli rúma. Hér eru rúm in svo þétt saman, að ||að liggur við, að fólk- ið reki tærnar hvert í annað“, segir Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppsspítalanum, þeg- ar hann sýndi Vísi eitt herbergið, sem vistfólk á Kleppsspítalanum dvel- ur í, en þar eru sjö kon- ur saman í herbergi. Vi'sir fékk a,ð skoða húsakynni þau, sem vistfólkið á Kiepps- spítala á við að búa, það sem á í framtíðinni að fá inni á vist heimilinu á Laugarásvegi. „Þar eru eins til tveggja manna her- bergi,“ sagði Tómas Helgason. Þar sem um sjálfbjarga* fóik er að ræða býr það í húsakynn um á Kleppsspítalanum, *“sem aðrir geta ekki notað, í hluta af kjallara gamla spYtalans. Tóm as Helgson segir: „Þetta er heilsuspillandi húsnæði. Húsið er gamalt timburhús og þarf að rýma kjallarann hið fyrsta og síðan allt húsið.“ Sjón var sögu ríkari, þegar Tóm as Helgason yfirlæknir og Hólm fríður Magnúsdóttir aðstoöar- læknir á deildinni sýndu húsa- kynnin. í óvistlegum herbergjr um, sem troðið er inn V eins og framast leyfir var fremur kalt og kom þaö á daginn að ekki er hægt að hita húsnæðið almennilega upp yfir veturinn, næðmgurinn smýgur í gegum gisið húsið í vissri vindátt. Þrengslin eru gffurleg. 1 vor var þó komið upp dagstofu í einu herbergjanna sem áður va'rð að vera á ganginum fyrir framan herbergin þar sem er mikil umferð úr eldhúsi í aðrar deildir og í föndurherbergi. Þar verður vistfólk þó ennþá að matast þVi enginn annar staður er til þess. Hinar tólf konur, sem eru á deildinni hafa aöeins pínulítið baöherbergi. Tómas Helgason sagði, að á vjstheimilinu á Laugarásvegi yrðu bæðj karlar og konur. Allt í allt er þörf á hjúkrunar- og vistheimilum fyrir 200 manns, bar af hiúkrunarheimili fvrir 80—100 manns en vistheimili fyrir 100—120 manns. „Við þörfnumst 5 — 6 húsa eins og á Laugarásvegi, en meginmálið er að fá fullkomna geðdeild við Landspítalann.‘‘ —SB Hvað segja nágrannar vistheimila i ibúða- hverfum? — sjá bls. 9 frumvarp og leggja til að leyft yrði að selja hér sterkt öl. Hann kvaðst hafa orðið var viö áhuga þingmanna á þessu máli. — SG í Neruda i | fékk j ÍNóbels-j verðlaun ý Pablo Neruda hefur hlotið*! Vbókmenntaverðlaun Nóbels í ár.'i J»Þetta var tilkynnt um hádegið.«[ Sænska bókmenntaakademíanj* 1‘hefur með þessu veitt verðlaun*H J«in manni, sem árum sama'n hefl" •Jur verið einn af ,,kandídötun-J« J«um“ sem nefndir hafa verið sem«J •Ilíklegir verðlaunahafar. Neruda*« Il’er Chilemaður, Ijóðskáld,"" ■■þekktur fyrir róttækar vinstril" rískoðanir. TTTT* —HH’. 200 konur og 30 milljón kr. vélar verklaus — vegna rækjubannsins á Eldeyjarmiðum „Heilsuspillandi húsnæði“, sögðu Tómas Helgason yfirlæknir og Hólmfríður Magnúsdóttir aðstoð arlæknir. Hér eru þau í kjallaraherbergi þar sem 7 konur verða að búa. Húsið er gamalt timbur- hús, sem næðir inn í og er eldfimt að auki. „ÝMISLEGT ÞARFNAST NÁNARI SKÝRINGA ' segir Konráð Adolphsson, sem sagði af sér * formennsku i FIB Upp undir tvö hundruð manns aðallega konur, eru nú atvinnu- lausir á Suðurnesjum vegna veiðibanns á rækjumiðum við Reykjanes. Þetta fólk hefur unn ið í rækjuverksmiðjunum, sem verið hafa að rísa upp á Suður- nesjum að undanförnu. Alls hafa verið settar upp sex rækju- vinnslustöðvar á Suðumesjum frá því í vor og hefur hver yfir að ráða einni rækjuvél, sem kostar um 4þ£ milljón. . • \ — Það er auðvitað ákaflega baga legt fyrir okkur að hætta núna, sagði Ólafur Björnsson forstjóri vinnslustöðvarinnar Baldurs í Kefla vik. Við erum núna fyrst að kom- ast upp á lagið með framleiðsluna og læra á markaðinn, þannig að nú getum við selt alla rækju sem við fáum jafnóðum. Bátarnir munu að sjálfsögðu reyna á.öðrum miðum, Þeir hafa leyfi til þess að veiða utan Eld- eyjarsvæðisins. Ég er hins vegar sammála þessum ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið og vil atls ekki stuðla að neinu seiðadrápi, sagði Ólafur, en hann rekur eina af sex rækjuvinnslustöðvum Suðurnesja. Búizt er við að rækjubátamir, að minnsta kosti þeir stærri leiti nú á ný mið, út við Eldeyjarboða, eða jafnvel f Jökuldjúpi, en þar fann Hafþór talsverða rækju í fyrra. í fyrra bar einnig talsvert á ýsu- seiðum í afla rækjubátanna á Eld- eyjarsvæðinu, en þá virtust þau koma seinna á miðin, Búizt er við að þetta ástand vari aðeins um tíma og hægt verði að opna miðin aftur fyrir rækjuveiði. Guðni Þor- steinsson fiskifræðingur er nú að prófa fjögur afbrigði af rækjuvörpu, i því augnamiði að hægt verði að fá vörpu, sem skilur ýsuseiðin bet- ur frá rækjuaflanum. Hefur Guðni til umráða rækjubátinn Glað frá Iíeflavík til þessara tilrauna, en þær munu að sjálfsögðu taka nokkurn tlma. — JH „Við ætlum að koma á fund á laugardaginn hjá FÍB og gera grein fyrir okkar sjónarmiðum, og skýra frá því hvers vegna við sögðum okk ur úr stjóm FÍB“, sagði Konráö Adolphsson, viðskiptafræðingur, er Vísir hafði af honum tal í morgun. „Það er aukaþing FÍB sem haldiö verður á laugardaginn og það geta allir félagsmenn FlB sótt. Við ætl- um bara að skýra frá rekstri FÍB á þeim tíma sem við sátum í stjórn- inni og skýra frá ti'llögum okkar um breytingar." — Á kannski að stofna nýtt FÍB? „Nei, ekki vil ég segja það. Þessi fundur á laugardaginn er almennur fundur hjá FÍB. Við viljum engar breytingar á stjórn samtakanna, heidur viljum við aðeins skýra af- stööu okkar, skýra frá rekstrinum. þar er ýmislegt, sem þarfnast nán- ari skýringa, svo sem samkrullið við Hagtrvggingu, rekstur á ákveðn um kranabíl o.fI.“ Það þóttu mikil tiðindi síðla sum ars, þegar stór h'luti af stjóm FlB sagði af sér vegna ósamkomulags um rekstur samtakanna, en það voru þeir Konráð Adolphsson, Ragnar Júlíusson, Jónas Gíslason og Guðmundur Jóhannsson, sem sögðu af sér, og má því búast við einhverjum tíðindum áiaukaþing- inu, sem haldið verður f Neöri-Bæ við Síöumúla á laugardaginn. — GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.