Vísir - 25.10.1971, Blaðsíða 1
Harður árekstur á blind-
hæð við Brynjudalsá
Harður árekstur varð á blindhæð
við Brynjudalsá á laugardaginn, síð
degis, er tveir þungir fólksbilar úr
Reykjavík rákust saman. Bílarnir
voru ekki á ýkja mikilli ferð, en
þeir rákust svo til beint hvor á
annan. Rúða annars bílsins small
inn og skarst ein kona sem í hon-
um var dálítið, en að öðru leyti
slapp fólkið í bílnum við meiðsli.
Bílarnir voru gjörsamlega óöku-
færir. — JH
Þessi mynd var tekin af jeppanum.á slysstað aðfaranótt sunnudagsins.
Banaslys á Hringbraut á sunnudagsnótt:
\ •)
Jeppa hvolfdi — ungur
maður varð undir bílnum
& Banaslys varð á mótum Sól-
eyjargötu og Hringbrautar að-
faranótt sunnudagsins.
18 ára piltur, Guðmundur Óskar
Geirsson varð undir jeppa er kom
akandi vestur Hringbraut.
PHturinn stóð uppi á eyjunni
milli akreinanna á Hringbrautinni,
og beið færis að komast yfir göt-
una. Kom þá Bronco-jeppi akandi
vestur brautina, og mun ökumanni
jeppans hafa fatazt stjórnin, senni-
lega á hálku, því að kalt var og
slydda um nóttina, og lenti jepp-
inn uppi á eyjunni, og hvolfdi ofan
á piltinn.
Guðmundur Óskar var til heimil-
is að Nesvegi 49. Hann hefur Iátizt
samstundis, en að sögn lögreglunn-
ar eru orsakir slyssins ekki með
öllu kunnar, en allar líkur benda
til að hálkunni sé að kenna um mis
tök bílstjórans og svo of hröðum
akstri. — GG
SKÓLAMÁLA-
DEILUR 1
KÓPAYQGI
62 foreldrar senda Fræðsluráði mótmælaplagg
Blikur hafa verið á lofti í skóla-
málum í Kópavogi. Fræðsluráð
hélt fund núna snemma í október
og urðu þar langar umræður um
málefni Vighóiaskóla og skóla-
stjóraskipti þar, en staða skóla-
stjóra þar var augiýst laus til um
sóknar f sumar. Hins vegar skor-
uðu kennarar skólans á Odd Sig-
urjónsson að sitja áfram og varö
hann við því. Foreldrar nemenda
virtust hins vegar ekki vera á
sama máii og sendu 62 aðilar und
Irskrifað plagg til Fræðsluráðs, þar
sem lýst er undrun og óánægju með
þessar ráðstafanir. Telja foreidrar
þörf á endumýjun f yfirstjóm
skólans.
Fræðslustjóri var beðinn á fund
inum að uppvísa, hvað hæft væri
f því, sem sagt er f bréfi sem und
irskriftum fylgja að flótti væri
úr skólum gagnfræðastigsins í
Kópavogi. Samkvæmt athugun
Strætisvagna Kópavogs á því hve
margir nemendur hafa lagt fram
skilríki fyrir dvöl í gagnfræða-
skólum Reykjavikur sl. vetur virt-
ust þeir vera 77, flestir f Ármúía-
skóla (verknámsskólanum) og
Kvennaskólanum.
Oddur Siguriónson, skólastióri
flutti meðal annars allangt mál á
hessum fundi Fræðsluráðsins, þar
sem hann svaraði ýmsum aðdróttun
um, sem skólinn hefur orðið fyrir
meðal annars um flótta kennara
frá skólanum. —JH
Átti að
myrða
Kosygin
— s/o bls. 3
Meirihlutinn
vill ekki leyfa
hundahald í
béttbýli
Sjá bls. 9
61. árg. — Mánudagur 25. október 1971. — 243. tbl.
UTANRlKISMÁLIN HCYRA
ALGJÖRLIGA UNDIR MIG'
— segir Einar Agústsson og visar á bug
áskorun um að segja af sér
— Ég sé ekki ástæðu til
þess, að ég sé að gera
það fyrir Morgunblaðið
að segja af mér, sagði
Einar Ágústsson, utan-
ríkisráðherra, þegar Vís
ir spurði hann í morgun
um, hvaða afstöðu hann
hefði til þeirrar kröfu,
sem kom fram í Morg-
unhlaðinn í ospr. að
Utanríkismálin heyra algjör-
lega undir mig og engan annan,
sagði utanríkisráðherra, þegar
hann var spurður um verksvið
og áhrif þeirrar ráöherranefndar
sem sett hefur verið á laggirnar
til að fjalla um varnarliðs- og
öryggismál þjóðarinnar. Eins og
skýrt hefur verið frá eiga sæti
í þeirri nefnd auk Einars þeir
Magnús Kjartansson og Magnús
Torfi Ólafssbn, sem báöir eru
yfirlýstir hernámsandstæðingar
og báðir hafa verið kenndir við
kommúnisma.
— ■ Ráðherranefndinni er ekki
ætlað neitt annað hlutverk en
að vera umræðunefnd. — Ilún
sem slík mun ekki taka ákvarð-
anir um það, hvernig á málum
verður haldið og því kemur það
hreint ekki til greina, að ég geti
orðið í minnihluta í nefndinni
og þá um leið í því' hvernig á
málum verður haldi, sagði Einar
Ágústsson.
Aðspurður úm það hvort ekki
væri óheppileg samningsstaða
út á við, að hafa tvo slíka menn
í nefnd sem þessari, svaraði
Einar Ágústsson því til, að rik-
isstjórnin væri mynduð með
þátttöku þessara þriggja flokka.
Það ylli kannski erfiðari samn-
ingsstöðu í þessu máli, en væri
þó staðreynd, sem ekki yrði
horft fram hjá. Sjálfum finnst
mér þetta engar fréttir vera, —
sagöi utanríkisráðþerra, Málið
hefúr verið hlásið út.
Eins og mönnum er kunnugt
hafa miklar umræður spunnizt
um þessa nefndarskipan og hafa
margir látið í Ijós ugg um það
hvernig öryggismálum þjóðarinn
ar sé komið. Þeir telja að með
því að stofna sérstaka nefnd
til að fjalla um varnarmálin og
skipa yfirlýstan kommúnista i
nefndina ásamt öðrum, sem tal-
inn er mjög ,,rauður“ sé verið
að bjóða hættunni heim 1 örygg
ismálum þjóðarinnar, en það hafi
aldrei gerzt áður, að kommún-
istum sé veitt slík hlutdeild J
utanríkismálum. t fyrri vinstri
stjórnum hafi kommúnistum
alltaf verið haldið utan við utan
ríkismál. —VJ
jl Best hótað j
lifláti! ji
I* Það var mikið um að vera íj1
jliþróttum um helgina. Víkingur*!
.Jigraði Akurnesinga í bikar-Ij
J.keppninni og er kominn í úrslit.J.
«Jsn um hitt úrslitasætið berjast.J
■jFram og Breiðablik. Valur vannj*
Jjalla leiki sína 1 Reykjavfkurmót-«J
J.inu í handknattleik og þar vann.J
•jÞróttur tvo síðustu leikj sina. ÁJ.
*,EngIandi var George Best hótað.J
Ijlífláti ef hann léki gegn New-Jj
J.castle — en Best lét það ekkj á«J
•Jsig fá og skoraði eina mark.J
J«leiksins. En um þetta og margtj.
jjannað má lesa á bls. 4, 5, 6 og 7V
\Fischer vanníj
■J Sjá bls. 3 J;
í \ 5
w.vmvAw.vððw.v