Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 2
55 ÉG VIL TT T — segir ungfrú Krúsó árið 1971, Jane Cooper, sem býr á eytieyiu undan s'r'óndum 7asr:ar.'.u Jane Cooper, 18 ára göm- ul áströlsk stúlka, hefur komizt að því í hverju hamingjusamt liferni er fólgið. Hún býr ein á eyju, þar sem áður bjó ekki nokk- ur sála, en þessi eyja er skammt nndan strönd Tasmaníu* Þ^r situr stúlkubarn þetta og dundar sér við að yrkja ljóð og semja tónsmíðar, sem hún leik- ur eða syngur inn á segul band. Eyjan heitir „De Witt“ 4000 ekrur af grjóti og sendinni jörð, og hún og fiskimenn þar við Tas- manxu kalla hana gjarn- an „The Big Witch“, eða galdrakvendið stóra. — Stúlkan, Jane Cooper hef- ur nú dvalið átta vikur á ejmni, og ætlar sér að dvelja þar heilt ár. yf- ma' ’a í móinn Deila er nú risin á Tasmaniu um hvort Jane Cooper eigi að fá að dvelja áfram á eynni. Héraðsráðið í Esperance-héraði, sem ræður yfir De Witt eyju leyfði stúlkunni að setjast þar að, og sá enga ástæðu til að hún gæti ekki fengið að vera þar i friði. En nú hefur stjórnin í Tasmaniu skipt sér af málinu. Er hún nú að velta því fyrir sér að skipa henni að koma sér burtu af eynni, vegna þess að öryggi hennar sjálfr ar sé hætta búin af því að dvelja ein og eftirlitslaus svo fjarri menningunni. Þar fyrir utan er eyja þessi - ■■.■r’r> friðlýst og allt villt dýralíf þar verndað. W. G. Baker, atvinnumála- og landgræðsluráöherra Tasmaniu hefur lýst því yfir að ungfrú Cooper dvelji ólöglega á eynni. „Við munum berjast“ Og héraðsmálaráðið í Esperance reis upp á afturfæturna. „Við gáfum henni leyfið“, segja þeir, „og eyjan er á okkar réttar- svæði. Stúlkan má dveljast þarna ef hún vill. Ef einhver ætlar sér að ná stúlkunni burtu með vald- beitingu, þá er okkur að mæta. Af slíkum aðgerðum munu vand- ræði rísa“. Fiskimenn í Esperance-héraði, þeir sem flytja Jane Cooper mat og póst, standa einnig algerlega hennar megin í málinu. „Hún skaðar engan með því að vera þarna“, segir John Chesterton, trillukarl, „og við munum ekki flytja neinn mann út f eyjuna, sem ætlar sér að flæma hana burtu“. Leitar að sjá’M scr Jane Cooper hætti skólagöngu fyrir ári. Frá því hún hætti námi hefur hún unnið alls konar störf. Hún vann á fiskibáti og á lækn- ingastöð fyrir áfengissjúklinga. — Hún fór út í eyjuna „til að kom- ast burt frá þessu öllu og finna sjálfa mig“. Á eyjunni býr hún í tjaldi — næsta ófullkomnu. Það er aöeins dúkur sem strengdur er milli hríslna. Út f eyjuna hafði hún 'me8‘'sér um 150 kg af þurrkuðu grænmetf, en lifir annars af afurð um sjávarins, og oft kafar hún eftir krabbafiski. Mikið af fersku vatni er á eynni. A ’ * • ;i einmr. ia Stúlkan hefur ekki hrært við neinu á eynni, nema hvað hún safnar trjáberki, sem hún ætlar að nota til að gera sé kofa af, og svo ætlar hún að koma sér upp matjurtagarði. Hún hafði með sér veiðihnff, en hefur ekki notað hann. „Ég er aldrei einmana hér“, •••• Jane og nágranninn: Mörgæs- in sem hún kallar Mikka mús. segir hún, „öll dýrin hér eru næg ur félagsskapur. Á eynni eru emir, kanínur og rottur og einnig mörgæsir. Ein hefur gert sér hreiður skammt frá tjaldi Jane. Hún kallar hana cíjMikka mús“. Jane heldur dagbók þar á eynni, og hér koma á eftir stuttar til- vitnanir í hana: „Það er alls ekki auðvelt að búa hér á eynni (ofsalegir storm- ar geisa oft á þessum slóðum) og ég er alls ekki sérlega hug- hraust kona. En hér stendur tím- inn í stað. Og það er allt það sem ég þráði. Æ, Big Witch, ég bið þig að vernda mig fyrir þeim sem for- dæma mig og vilja mig burtu héð an. Láttu þá ekki finna mig og flæma mig burtu héðan. Ég elska þig Big Witch“. Og greifinn af Burton? Cooper Blöð i Tyrklandi hafa að undan förnu fjallað um heimsókn Bretadrottningar til Tyrklands á verðugan, konunglegan máta. Fyrirsagnir hafa þanið sig yfir síður, og hafa Tyrkir vandlega fylgzt með ferðum drottningar — frá þvf ákveðið var að til Tyrk- lands skyldi hún fara. Eitt blað er það þó, sem eitt- hvað hefur lent utangátta í þess- um drottningarfréttum. Raunar hefur blað þetta sagt frá því, aö heimsókn Bretadrottn- ingar, Elísabetar II. sé yfirvof- andi, en eitthvað hefur blaðiö ver ið með efasemdir um hver þessi kona eiginlega sé. Blaö þetta er Iíka sveitablað, og hefur sennilega ekki sérlega góð sambönd við umheiminn. — Það heitir „Yesil Cotanak" og er héraðsblað sem kemur út við Svartahaf, en þar er auðugt land búnaðarhérað. Um daginn var fyrirsögn þess blaðs svohljóðandi: Drottning Englands, Elizabeth Taylor kemur til Tyrklands". Drottningin kom svo til Tyrk- lands fyrir nokkrum dögum, en 1 Tyrklandi mim hún dvelja aUs víkutíma.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.