Vísir - 01.03.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 01.03.1972, Blaðsíða 1
ISKYGGILEGT ÁSTAND I GEDHEILBRIGÐISMÁLUM „Hafi ástandið verið slæmt á siðastliðnu vori, þá má með sanni segja að það sé hálfu verra i dag, — sannkallað neyðarástand”, sagði Oddur ólafsson læknir og þingmaður i grein er hann skrifar i blaðið i dag, en þar fjallar hann um ástandið i geðheilbrigðismálum lands- ins. „Asókn fársjúkra geð- sjúklinga háir verulega eðli- legri starfsemi slysavarð- stofu”, segir hann og bendir jafnframt á úrræði.- Sjá bls. 6. En þeir búa sig undir kuldunn í Árbœ — Sjú baksíðu Þriggja barna móðir sigraði Hún Hrafnhildur Guðmundsdóttir, sem litið hefur keppt siðustu árin i sundinu, enda gift kona og þriggja barna móðir og þvi timi til æfinga litill, gerði sér litið fyrir á sundmóti Ægis i gærkvöldi og hreiniega stakk ungu sundkonurnar af i 100 m skriðsundi. Tvö islands- met voru sett á mótinu - og á fimmtudag leika Fram og FH i handbolta, ieikinn, sem ekki varð af i Isiandsmótinu, þegar FH tapaði stigi gegn Val. Auk þess leika bæði iiðin við Gottwaldow, og SV Hamborg, en táka hins vegar ekki þátt i stórmóti Vikings. Sjá iþróttir i opnu Lenin, prakkarinn þinn! Danir eru sagðir „húmor- istar” af guðs náð. Margar kvikmyndir þeirra hafa vikið milljónir brosa, — og það var vist ætlunin að kvikmyndin „Lenin, prakkarinn þinn” gerði þaðlika. En svo mikið er vist að myndin framkallaði ekki nein bros i sovézka sendi- ráðinu i Kaupmannahöfn. — Sjá bls. 6. Sjóliðatízka og Jesússlór ó fatakynningu Landhelgisgæzlan okkar hefur enn ekki orðið að fyrir- mynd tizkukónganna úti i heimi, en hver veit nema það verði einhverntima? Tizkan i ár býður hinsvegar upp á sjó- liðatizku landa, sem eiga vold- uga sjóheri. Tizkan býður lika upp á Jesústizkuna. Þetta sáum við m.a. á tizkusýningu fatakaupstefnunnar i gær. — Sjá myndir og frásögn á bls. 3. SUMIR ! TÆKNI- i MANNANNA ! HÆTTA ■ I — en Sjónvarpið m Z heldur sínu striki : „Allir voru færðir eitthvað ■ upp i iaunafiokkum, en mjög . mismunandi hve mikið” ■ sagði Pétur Guðfinnsson . framkvæmdastjóri sjón- ■ varpsins er Visir spurði hann ^ um lausn deiiunnar við ■ tæknimenn. Sagði Pétur að ^ verulega hefði verið komið ■ til móts við kröfur starfs- ^ mannanna og hefðu sumir ■ verið hækkaðir um nokkra ^ fiokka, en þeir tæknimenn ■ sem hafa unnið stuttan tima . hjá sjónvarpinu sitja þó enn i ■ 13. flokki. Hækkanir á ■ fiokkum eldri starfsmanna ^ fóru eftir starfsreynslu og ■ hvernig störf þeir vinna. ^ Ekki voru allir tæknimenn ■ ánægðir með þetta ^ samkomulag og nokkrir hafa ■ ekki dregið uppsagnir sinar ^ til baka en óskað eftir ■ framlengingu á uppsagnar- ^ frcsti. Sagði Pétur að svo ■ kynni að fara að einhverjir ^ hættu störfum hjá sjónvarp- ■ inu. : -sg Eins og fyrir — veðrið minnir á veturinn 1964 — meðalhitinn í ór langt fyrir ofan meðallag — en hvernig verður vorið er stóra spurningin — Hitinn núna minnir einna helzt á veturinn 1964, sem varsiðasti mildi vetur- inn fyrir kuldatimabilið. Þá var 3,6 gráða meðalhiti báða mánuðina janúar og febrúar, sem er mjög hátt og það sem meira er, þá héldu hlýindin áfram fram á vorið—þó að ég vilji ekki segja um það hvernig það verði núna, segir Markús Á. Einarsson veðurfræðingur. Febrúarmánuður, sem nú er nýliðinn, var hlýrri en hann hefur verið frá þvi á árunum 1965 og 1964. Meðalhiti mánaðarins var 2,6 stig, sem er 2,7 gráðum fyrir ofan meðallagshita mánaðarins. Mánuðurinn var vætusamur og sólskin í tæpu meðallagi, en úr- koma mældist 101 mm, sem er talsvert mikið yfir meðallagi. Janúar i ár var hlutfallslegá enn kuldakaflann Óvenjulegur vetur —Það hafa oft komið mildir vetur en þetta er búinn að vera alveg óvenjulegur vetur. Það segja mér menn, sem fylgzt hafa með, að þetta sé mjög hliðstæður vetur og árið 1929, segir Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri. -Það er komið þannig, að mikið af gróðri er kominn af stað og þessi kæla, sem gerði um daginn stoppaði mikið af og hefur sjálfsagt drepið eitthvað af brumum, sem voru farin að bæra á sér. Það er hætta á þvi, að það komi þornun og verði dauði i efstu sprotum i vor. Jörðin er einnig óhemju blaut, sem þýðir það, að það geti farið mikið af fjölærum plöntum vegna fúa. Með runna- gróðurinn má segja, að þetta sé ekki kal heldur þornun, sem komi fram i vor. Það er uggur i manni út af gróðrinum, en fyrir gróður er marz og fyrrihluti april erfið- asti timinn. —SB— Hin opinbera heimsókn forseta islands til Finn lands hófst í morgun. Forsetahjónin lögðu af stað með fylgdarliði áleiðis til Kaupmannahafnar með Flugfélagsvél frá Kefla- víkurflugvelli klukkan 8.45 i morgun. 1 för með forsetahjónunum voru Einar Agústsson utanrikis- ráðherra, Pétur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri i utanrikisráðu- neytinu og Birgir Möller forseta- ritari, ásamt konum sinum. Frá Kaupmannahöfn halda forsetahjónin til Stokkhólms þar sem þau gista eina nótt, en koma til Helsinki á morgun. 1 Finnlandi munu forsetahjónin dvelja til mánudags, en þann dag koma þau heim aftur með Loftleiðavél. Meðal þess, sem verður á dagskrá heimsóknar- innar er, að forsetinn mun opna islenzka sýningu i Lathi. —SB hlýrri en febrúar með 3,1 stigs meðalhita. Þessi vetrarhlýindi koma einn- ig fram i jarðvegshitanum og sagði Markús, að i raun væri ekki hægt að tala um frost i jörðu þessa mánuði. Til staðfestingar þvi hefur hann hlibsjón af jarð- vegshitamælingum, sem Veður- stofan hefur haft i Fossvogi un- danfarin ár. — 1 frostunum i febrúar komst frostskánin ekki niður i jörðu. Til samanburöar má geta þess, að árin 1970 og 1971 var 20—45 cm, frostlag i jörðu, sem var alveg stöðugt þá mánuði, janúar og febrúar bæði árin, en nú hefur aðeins myndazt smáskán efst, þegar frýs i lofti. HERINN NJÓSNAÐI UM ÞINGMENN -m* Forseti isiands, dr. Kristján Eldjárn, gengur um borð I þotu Flugféiags islands skömmu fyrir ki. 9 I morg- un»(Ljósm. Mats Wibe Lund) FORSETAHJÓNIN TIL FINNLANDS í MORGUN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.