Vísir - 10.08.1972, Blaðsíða 7

Vísir - 10.08.1972, Blaðsíða 7
Yisir Fimmtudagur 10. ágúst 1972 l 7 IIIMIM 1 = SIÐAN = Umsjón: S B Þaö er engin ástæða til þess að gefa alla blóma- rækt upp á bátinn, þótt enginn sé garðurinn. Ef þið hafið rúmgóðar sval- ir á móti sólu, getið þið komið upp mjög falleg- um blómagarði. Og bezt er að setja plast eða gler yfir amk. hluta sval- anna. Það „herbergi”, sem við ís- lendingar gerum hvað minnst fyrir.eru sennilega svalirnar. Og nú þegar sólin er loks farin að skina, eru sfðustu forvöð að reyna að lifga svolitið upp á þær. Það væri kannske ekki úr vegi að byrja að undirbúa svalirnar fyrir haustið og veturinn, svo að strax — Jarðarberjaplönturnar skila góðum jarðarberjum, ef hægt er að hafa svolitið plast yfir þeim, jafnvel bara yfir sjálfum kössunum. næsta vor getum við átt fullar svalir af blómstrandi blómum. Venjul. erum við of sein á okkur, það þarf mikinn og langan undir- búning, eigi að koma sér upp góðri blómarækt á svölunum. En það er hægt, og nágrannaþjóðir okkar láta ekki sinar svalir standa auðar yfir sumarið, og við þurfum ekki að gera það heldur. ,,Með þvi að setja plasthiminn yfir svalirnar eða framan á svalaopið, aukum við gifurlega möguleikana á fjölbreytni i blómavaliá svalirnar.” sagði Jón H. Björnsson, garðyrkjufræðing- ur, er við áttum stutt spjall við hann um blómarækt á svölum. Hann sagði ennfremur að tslend- ingar væru alltof ragir við að nota svalirnar fyrir blóm. Flestir láta sér nægja að setja nokkrar stjúp- mæður upp á svalahandriðið, þar sem mest næðir á þeim. t raun- inni er hægt að rækta fjöldamarg- ar blóma og runnategundir á rúmgóðum svölum, en með þvi að setja plast eða gler, t.d. yfir helming svalanna, aukast mögu- leikarnir mjög. Hægt er að strekkja yfir þykkt, glært plast, og verður þá hægt að nota sval- irnar einnig sem borðstofu þegar vel viðrar. Flastið eða glerið má svogjarnan taka af yfir veturinn. Getur þá verið ágætt að setja plönturnar niður i kjallara eða jafnvel að grafa þær úti i garði, en flestar þeirra þola vel frost yfir veturinn, þegar þær eru i dvala. „Ef fólk getur svo tekið horn af svölunum, útbúið litið gróðurhús (að sjálfsögðu er það einnig hægt úti i garði) og haldið þar 15-20 stiga hita, aukast ennþá mögu- leikarnir. Vinber og ýmsir ávext- ir eiga þá einnig að geta vaxið á svölunum” sagði Jón. „Geturðu nefnt nokkur dæmi um plöntur, sem hægt er að rækta á svölum, með þvi að hafa plast eða gler yfir þeim hluta þeirra, þar sem plönturnar eru?” „Þaö má t.d. nefna jarðarber, ýmsar rósategundir og fallegar klifur og baunajurtir. Til dæmis má nefna mjög fallega jurt, sem heitir Clematis jackmani, sem blómstrar ár eftir ár og er til i ýmsum litum, og hefur fengizt hér. Með þvi að hafa litla trégrind á svölunum, geta þessar jurtir vaxið upp eftir þeim og orðið mjög fallegar. Óteljandi tegundir af sumarblómum er hægt að rækta á svölunum. Svo er hægt að fá laukblómin upp mjög snemma á vorin með þvi að hafa plastið. Það er jafnvel hægt að fá túlipana og páskaliljur á páska- borðið beint af svölunum,” sagði Jón. 1 flestum tilfellum er bezt að hafa jurtirnar i trékössum, gjarn- an nokkuö stórum, og þá er auð velt að flytja þær til. Klifurplönt- urnar þurfa að vaxa við grind eða trévegg og geta þær margar orðið geysistórar og mjög fallegar. Það er ekki amalegt að bjóða upp á tesopa úti á svölum, þar sem slikt blómahaf er. Og svo má ekki gleyma öllu grænmetinu, sem við getum ræktað úti á svölum. 1 litl um kössum er t.d. hægt að rækta steinselju og sólselju (dill), sem er rándýrt i verzlunum, en ákaf- lega hollt og gott til bragðbætis i sumarsalötin. Og nú er bara að reyna. Garðyrkjumenn leiðbeina fólki við plöntukaupin viða i gróðrastöðum og það er gott að fara varlega af stað. Núna er tim- inn til þess að kaupa útsprungnar plöntur og koma þeim fyrir á svölunum. Næsta vor fáum við svo að sjá hvernig þeim hefur rið- ið af yfir veturinn. Og hver veit nema við getum þá átt okkar eig- in páskaliljur á páskum. Það er synd að lesendur geta ckki séð litinn á þessari fallegu piöntu, en hún heitir Clematis jackmani og er hér fjdlublá á lit. Hana er auöveidlega hægt að rækta á svölum hér á landi og veröur hún stór og falleg. Hér sjáum viö hvernig hægt er að „innrétta” svalir, sem er metrar. Blómunum er komiö fyrir f skjóli og þar sem sólin þau Yfir garðboröinu gnæfa klifurplöntur og baunablóm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.