Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 10

Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 10
10 Visir. Föstudagur 6. april. 1973 Visir. Föstudagur 6. april. 1973 11 í\ m % „KRÍTIK". O Þetta mun vera stœrsta verk Kjarvals, 217x405 sentimetrar. O Myndin var til skamms tíma í Irafossstöðinni við Sog. O Móluð 1946. O Myndin var keypt á uppboði1954. „LIST KJARVALS ALVEG NOfíU ÁFENG" - Rt,b.l»!í vi4 "Okkrasýningaraesti f W r% m m Mw a syningunm i Miklagarði ■ > LÓMAGNÚPUR. Ein af mörgum myndum Kjarvals þaðan. Hún var keypt síðastliðið úr af einstaklingi hér í borg Thor Vilhjálmsson, skáld. Aö minu áliti cr Kjarval margþætt- astur og tilbrigöarikastur islenzkra myndlistarmanna og þaö cr dá- samlegt aö eigu þess kost aö sjá svo margar myndir hans hér. Annars er ástæöan fyrir þvi aö ég kom hérna núna aö ég var eitthvaö slappur og niöurdreginn og vildi leita mér aö andlegum krafti og viöurværi meö þvi aö skoöa vcrk meistarans. Viö val á myndum eftir Kjarval eru auövitaö óskaplega margir möguleikar, óneitanlega sakna ég mynda, sem ég heföi gjarnan viljaö sjá, en þaö er stórkostlegt aö eiga þess kost i framtiöinni aö geta komiö hingaö og skoöaö svo mörg verka hans á sama staö. Ég var aö heyra þaö, aö jafnvel ættu aö veröa hérna áfengis- veitingar, en aö minu áliti er list Kjarvals alveg nógu áfeng og meö hcnni þarf ekkert áfengi. Edda G. Rowland, húsmóðir búsett í Kanada. Ég hef búiö erlendis 10 siöustu ár og var nú ekki farin aö hugsa mikiö um myndlist áöur en ég fór út. Ég er mjög hrifin af myndum Jó- hannesar Kjarvals og sérstaklega landslagsmyndum hans, þær minna mig töluvert á verk eftir nokkra fræga kanadiska málara, þó myndefniö og þaö sem myndirn- ar sýna okkur sé náttúrlega gjör- ólikt. Annars held ég aö skoöanir fólks á myndlist séu miklu ein- staklingsbundnari erlendis, þar sem ég þekki til, heldur en hérna heima. Þaö er eitt, sem mikiö er aö auk- ast erlendis, og ég tel aö mætti taka til eftirbreytni. Þaö er aö hvetja fjölskylduna alla til aö koma á sýningar og hafa þá eitthvaö fyrir börnin og jafnframt reyna aö kynna þeim myndirnar. Þau sjá nefnilega miklu meira út úr þessu heldur en viö. Kristján Á. Norðdahl, nem- andi í Verzlunarskólanum. Þaö hefur nú viljaö þannig til aö ég hef veriö aö vinna svolitiö hérna i nágrenninu undanfariö og ég er bú inn aö koma hérna fjórum eöa fimm sinnum. t hvert skipti sé ég eitthvaö nýtt úr myndunum. Auðvitaö er tnaöur misjafnlega hrifinn af þeim en ætti ég að segja eitthvaö um þaö hvaö mér finnst, þá eru það landslagsmyndirnar, sem hrifa mig meira heldur en fantasíurnar, ég fæ eins og meira út úr þeim. Haraldur Ellingsen, við- skiptafræðingur Mér finnst mest um vert hjá Kjarval, að hann hefur kennt okkur að lita á landiö og náttúruna i nýju ljósi. íslendingar, við sem höfum gengiö á hrauni i ellefu aldir, við uppgötvuðum ekki fyrr en með hjálp Kjarvals hvern fegurðarfjár- sjóð viö eigum. Það er þó alls ekki þannig að hann sýni okkur tómt hraun. Einnig álit ég, að listamenn geti orðið þekktir á ýmsan hátt, en Kjarval hefur orðið frægur af list sinni einni og þvi hefðu listdómarar eða aðrir engu breytt um. Sverrir Haraldsson, list- málari Sýningar á myndum Kjarvals eru að minu áliti alltaf góðar. Auð- vitað eru verk hans misgóð, en hans beztu verk eru stórkostleg og eru i minum huga fullkomlega jafngóð verkum mestu meistara heimsins i málaralist. Persónulega er ég ekki alveg ánægður með valið, en ég veit að úr geysilegu var að velja og i þvi ræöur auövitaö skoðun og smekkur hvers og eins. Mikill og frjór listamaður eins og Kjarval var, honum liggur svo mikið og margt á hjarta i einu, sem hann verður aö koma frá sér. Kannski eru myndir hans hér þannig til orönar þegar hann hefur brugðið á leik en siöan ekki fullunn- ið myndirnar. Annars er ég ekki ánægöur með birtuna og loftið I húsinu. Birtan er ekki næg og loftiö er of yfirgnæfandi. Aö skoöa góö listaverk i lélegri birtu er slæmt. Á KJARVALSSTÖÐUM Skip mitt er kotniö aö landi, var einhvern tima haft eftir Kjarval: var þaö annars ckki mynd eftir hann sem nefndist þessu nafni? Gaman væri ef hiö sama yröi sagt um Jóhannes Sveinsson Kjarval sjálfan þegar opnaö liefur veriö hiö veglega myndlistarhús á Miklatúni sem annars vegar cr helgaö minningu listamannsins. eir sem einhvern tima hafa komiö t.a.m. I Munchsafniö i Osló, og þarf þó ekki þann saman- burö til, geta nú gert sér I hugar- lund á Kjarvals-sýningu i mynd- listarhúsinu nýja, hver menn- ingarstofnun væri tilkomin i Reykjavik ef hér heföi þessa dag- ana veriö opnaö réttnefnt Kjar- valssafn. „Persónulegur ferill lista- manns sem starfar langa ævi er að sinu leyti smækkuö mynd af listsögu þjóöar”, segir Ilalldór Laxness i grein um mat okkar á Kjarval I sýningarskránni: „Til skilnings veröur að skipa þvi saman sem saman á i langri þróun, aldurgreina einstök verk og stilskeiö, skipa hlutunum niöur i afmörkuö timabil, svo skiljist hvaö er undanfari hvers, og hlutirnir skýrist hver út frá öörum, eöa að minnsta kbsti geri ekki hver annan óskiljanlegan cins og hlýtur aö veröa ef maöur viröir æviverkiö fyrir sér allt i einum graut”. A efri árum Kjarvals var oft og einatt stofnaö til sýninga á inyndum hans lionum til heiöurs. A áttræöisafmæli lians áriö 1965, var aö minnsta kosti efnt til tveggja slikra sýninga lista- manninum til lofs og dýröar. önnur þeirra var i gamla lista- mannaskálanum: þaö var þar sem lýst var ákvöröun borgar- yfirvalda að byggja það hús sem nú stendur á Mikiatúni. Þar var samfylkt uokkrum stórvirkjum Kjarvals, landslagi á oliu, nokkrum þeim myndum sem sknpnö liafn hugsjón lands og náttúru sem oröin er órofa þáttur i islcnzkum mcnningararfi. En hin sýningin var i sýningarsal Menntaskólans I Reykjavik. Þar var þess freistað aö rekja aö uokkru einn þráöinn I list Kjarvals, sjávarminniö I verkum hans i vöku og draumi. Areiöanlega var hvorug þessi sýning þess umkomin, enda varla til þess ætlazt af þeim að þær „gcrðu skil” æviverki Kjarvals. Þar var hins vegar lýst meö óvenju skýru móti tveimur aö- greinileguni sjónarmiöum á list hans. Eitthvað svipaö veröur uppi á teningi á hinni fögru og fjöl- breyttu Kjarvalssýningu á Mikla- túni þótt skilin séu ekki eins skýrt dregin I þetta sinn. En þar er annars vegar sýnt allstórt og fjölbreytt safn oliumálverka úr einkaeign frá fornri tiö og nýrri á ævi hans. Hins vegar er sýnt i hinu tilkomandi Kjarvals- safni, austanvert I húsinu, safn mynda i eigu Reykjavíkurborgar, nokkrar oliumyndir frá ýmsum skeiðum á ævi Kjarvals og a 11- mikið safn mynda i minniháttar efni, að inestu eöa öllu leyti gjöf listamannsins til borgarinnar. Þótt sýningin þyki fögur er hinu ekki aö neita aö hún leiöir ævi- verkið fyrir sjónir „allt i einum graut”. f grein sinni i sýningarskránni vikur Halldór Laxness á meöal annars aö þeirri furöu sem mörgum þykir, aö myndir Kjarvals áttu aldrci innangengt á heimsmarkaö myndlistar, þykja sumar ekki einu sinni vegg- rúmsins verðar til lengdar á þeim stöðum utanlands sem þær hafa þó orðið uppifastar. En hvað sem dagsprísum líöur á alþjóölegum listm arkaöi var Jóhannes Kjarval alla ofanverða ævi sina sannkallaður þjóömálari tslend- inga. Ef nokkur ævi- og listferill spannar sögu islenzkrar myndlistar þá er þaö saga Kjarvals. Nú tekur þjóðsagan um manninn sjálfan, „meistara Kjarval” að fyrnast þegar hann er allur. En myndir hans höfum viö á meöal okkar — ef og þegar þær sjást. Þegar hér er komiö vakna menn upp við það hversu van- kunnandi við i rauninni erum um sögu Kjarvals, rök og þróun listar hans, myndirnar sjálfar þar sem þessi saga geröist og geymist. „Enda get ég sagt fyrir mig, sem þó hugsaði oft um Kjarval”, segir Halldór Laxness, „aö ég þekki list hans ekki einu sinni nóg til aö skýra hvaö veit upp og hvaö niður i þessu tröllaukna verki, hvaö er fast hjá honum, og af hverju er sprottið það sem einlægt heldur áfram aö koma manni á óvart I fari hans”. Samt er furöu langt siöan fyrst var farið aö tala um Kjarvals- safn, Kjarvalshús — en þegar hús eftir r Olaf Jónsson var loksins risiö vildi lista- maðurinn ekki þiggja vistina þar Enn i dag er hvergi til safn Kjarvalsmynda i opinberri eigu sem geri list hans skil né lýsi sögu og þróun hans,geri æviverk þjóö- málarans aðgengilegt nýjum kynslóöum. En þaö góöa fólk sem fengiö hefur myndir hans undir hendur um ævina eöa þeirra börn og barnabörn „eiga” samt ekki verk Kjarvals. Þau heyra þjóö- inni til. aö er vist ekki vert að hefja eftirtölur af gleðilegu tilefni. Þegar manni veröur hugsaö til listam annaskálans úr mynd- listarhúsinu nýja er sem betur fer ljóst aö veður geta skipazt í lofti i menningarlifi ekki siður en á öörum sviðum mannlífsins. t listamannaskálanum var um langt skeiö aöal-vettvangur Islenzkrar myndlistar, ekki bara málverkasýninga I Reykjavik, eins og brátt mun verða á Mikla- túni. En listasafn rikisins býr sifellt við alltof þröngar kringum- stæður til að anna þeim verkum sem þvi eru ætlandi, og enn I dag er ekki einu sinni til samfelld saga islenzkrar myndlistar. Gleöileg tiöindi úr nýju mynd listarhúsi minna lika á þaö sem vangert er við islenzka myndlist, ekki bara list Kjarvals — að gera hana til frambúöar aögengilega þeim almenningi sem á hana. Áttundi hver íslendingur hefur þegar séð sýninguna — og hópar koma hingað utan af landi Kjarvals- sýningin „Þaö hefur ekki veriö tekin nein formleg ákvöröun um nafn á Myndlistarhúsinu, talaö hefur verið um Kjarvalsstaöi en um þaö veröur liklega ekki neitt ákveöiö á næstunni og kannski er bezt aö láta málið ráöast og lofa fólkinu sjálfa aö ákveöa nafniö.” Þetta sagöi Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri, er viö spuröum hann um nafngift á nýja Myndlistarhúsinu viö Miklatún. Aö sögn Alfreös Guömundssonar, forstöðumanns hússins, en hann var mikill vinur Kjarvals og stóð fyrir mörgum af sýningum hans, hefur aösókn aö sýningunni veriö mjög góð, og hafa um 24.000 manns séö hana. Um siöustu helgi komu um tólf þúsund gestir. Auk almennra gesta hafa margir hópar komið úr skólum borgarinnar og nágrenninu. Hingað kom jafnvel hópur nemenda frá Isafirði. Hugmyndir eru um aö halda hér margs konar listsýningar. Ekki er búið að taka ákvörðun um hverjar þær verða á næstunni, nema ákveðið er, að hér verði kinversk listiðnaðar- sýning, sem hefjast mun um 20. þessa mánaöar. 1 salnum, þar sem myndir i eigu Reykjavikurborgar eru sýndar, munu i framtiðinni birtast margar aðrar myndir eftir listamanninn, bæöi teikningar og málverk. Þessar myndir hafa komizt i eigu borgarinnar á ýmsan hátt. Arið 1968 gaf Jóhannes Kjarval Reykjavíkur- borg allar teikningar eftir sig, sem voru i hans eigu. Núna eru sýndar 74 af þessum teikningum en þær eru miklu fleiri og verða hengdar upp jafnóðum og lokið verður við að lagfæra ýmsar skemmdir, þannig aö teikningarnar séu sýningarhæfar. Aö þvi vinnur mjög hæfur bandariskur sér- fræðingur, Frank Ponzy, aö nafni, en hann er nú búsettur hér á landi. Málverkin hefur borgin ýmist keypt eöa henni hafa verið gefin verkin af ýmsum aðilum. Við ræddum við Valtý Pétursson listmálara, en honum var falið ásamt Kjartani Guöjónssyni, list- máiara, að velja myndirnar, sem sýndar eru. Valtýr sagði okkur, að vegna veikinda Kjartans hefði valið að mestu hvilt á sér. Þegar velja ætti myndireftir Kjarval væri úr geysi- miklu að velja og hægt væri aö velja út frá mörgum sjónarmiðum. Auövelt væri þvi að gagnrýna slikt val og væri vafalaust gert. Akveðið heföi verið að hafa þetta ekki yfir- Myndlistarhúsiö á Miklatúni. Alfreö Guömundsson litssýningu, sem gæfi samfellda mynd af listþróun meistarans, heldur hefði verið tekin sú stefna að reyna að hafa hér myndir, sem ekki hefðu komið fyrir augu al- mennings áður eða sjaldan. Engar myndir væru úr opinberum söfnum og aöeins fáar af hans þekktustu verkum. Almennt gekk mjög vel að fá myndir lánaðar til sýningar, aðeins einstaka aöili neitaði að láta verk sem óskað var eftir af hendi. Þetta átti við um þann hluta þeirra sem eru i einkaeign en um myndirnar, sem eru i eigu borgarinnar er það að segja, aö þar er aðeins nokkur hluti af Kjarvals- myndum borgarinnar, það er aö segja þær myndir, sem komnar eru i sýningarhæft ástand. Ætlunin er að sýningin standi til 15. april. -ÓG.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.