Vísir - 14.04.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 14.04.1973, Blaðsíða 1
63. árg. — Laugardagur 14. apríl 1973 — 89. tbl. Lœknafélög mótmœla: 90 fermetrar á geðsjúkling — sjá baksíðu Steypa og steypa og vilja lœkka byggingarkostnað Þeir steypa allan liðlangan daginn há Verki h.f. í Köpa- vogi. Þar verða húsin til í verksmiðjunni þeirra, og með þvi móti vilja þeir lækka byggingarkostnaðinn. A myndinni sjáum við byggingamennina að störfum, en í gær skoðuðum við fyrsta húsið, sem reis á tveim dögum í Garðahreppi. — Sjá bls. 3. ÞANNIG Þannig muna víst margir meistara Kjarval sitjandi úti I náttúrunni, þungt þenkjandi og niöursokkinn i verkefni sitt og lét ekki trufla sig hið minnsta, þótt einhverjir forvitnir áhorfendur væru að góna til hans. Og enda þótt Kjarval sé allur, Slepptu skótð- bókunum í viku, en engu að síður fróðari er aðdáun manna á verkum hans enn sú sama, og mikill og góður rómur hefur verið gerður að sýningunni á Kjarvalsstöðum, nýja myndlistarhúsinu á Mikla túni. Þar hafa liðlega 40 þúsund manns komið og skoðað sýninguna i sýningarsölunum tveim. Fólk hefur gert sér ferö utan af landi, jafnvel i hópum, til að skoða Kjarvalsverkin, og á morgnana hefur gefið að lita stóra hópa skólafólks sömu erinda, og munu skólanemarnir alls 4000 talsins. Um helgina verða verkin aftur tekin niöur, opið veröur i dag og á morgun á timanum frá 14 til 22. Eftir það verður rýmt fyrir kin verskri list, sem veröur næst sýnd i nýju salarkynnunum. -JBP- SJA MYNDLISTARGAGNRÝNI A BLS. 7. Þó að krakkarnir I öldutúnsskóla I Hafnarfiröi hafi ekki þurft að sitja I mörgum kennslustundum, ekki þurft að hafa fyrir heimalærdómi eða öðru sliku sfðustu viku, þá hefur það áreiöanlega ekki sakað þau. Og sfður en svo. 1 stað skólabóka skrifuðu þau við- töl, skoðuðu bæinn sinn og ýmislegt fleira. Allt fyrir sýningu, sem opnar I dag i skólanum og heitir „Bærinn okkar.” A myndinni sjást líkön af húsum, semflest standa enn I dag, og er litla húsið i miðjunni hús Bjarna riddara Sivertsen, þab mun vera elzta húsið I Hafnarfirði, og er nú veriö að gera við það. ★ Hótel í súrheysturni — nýstárlegt hótel í bígerð Margar snjallar hug- myndir hafa komið fram um lausn á gistivanda ferðamanna, en þó vitum við ekki til þess, að hingað til hafi nokkrum hug- kvæmzt að vista þá i súr- heysturnum. Þetta hefur nokkrum ungum mönnum komið í hug og ætla að framkvæma i Borgarfirð- inum i sumar. — Við erum að koma hér upp aðstöðu til að taka á móti feröa- mönnum, sem áhuga hafa á þvi að komast i útreiðartúra og hafa jafnvel áhuga á að kaupa sér hesta, — sagði Reynir Aðalsteins- son á Sigmundarstööum i Hálsa- sveit i Borgarfirði er við ræddum við hann. — Viö erum að ljúka viö nýtt hús, þar sem veröur mötu- neyti en i gamla Ibúðarhúsinu verður svefnpláss fyrir 10 manns. Fariö verður i útreiðartúra með gestina um nágrennið. Hér eru ýmsir fallegir staðir i nágrenn- inu, svo sem Barnafossar og Hraunfossar. Sólarhringsdvöl mun kosta um það bil 1300 krónur, og er þá innifalið svefnpláss, fullt fæði og afnot af hestum. — Reynir er einn þriggja eigenda Tamning- ar sf., sem reka mun þessa starf- semi að Sigmundarstöðum, en hann hefur mikið stundað kennslu I reiömennsku og sölu á hrossum að undanförnu. Hann kenndi til dæmis bændaefnum á Hvanneyri hrossatamningu I vetur. — 1 sumar ætlum við að innrétta 4 herbergi i súrheys- turni, sem er hér, og getum við þá tekið við fleira fólki. — Reynir sagöi okkur, aö þegar væri búið að panta nokkuð gistingu að Sigmundarstöðum, aðallega væru það útlendingar, en frekar átti hann von á, aö þeir yrðu i meiri- hluta meöal gesta þeirra i framtiðinni. ÓG. Reynt ó þýzka Afram á að reyna á Þjóð- verja, hvort þeim er alvara með tali um löndunarbann. Þannig stóðu málin I gærkvöldi, aö tveir togarar áttu að selja I V-Þýzka- landi. Bjarni Benediktsson mun eiga að selja i Bremerhaven og Þormóöur goði I Cuxhaven. Ilallveig Fróöadóttir sneri frá Þýzkalandi og seldi i Belgiu. Var það metsala á þeim mark- aði. Kilóið fór að meðaltali á 45 krónur. — HH. VAR MEISTARI KJARVAL

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.