Vísir - 07.08.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 07.08.1973, Blaðsíða 1
63. árg. Þriðjudagur 7. ágúst 1973 — 178. tbl. UFIÐ I „DRAUGA- BORGINNI" REYKJAVÍK Sjá grein Björns Bjarman á bls. 3 Þjóðareinin g um 200 mílur! Þjóðareining um 200 milna fiskveiöilögsögu á nú að taka við af þjóðareiningunni um 50 milna lögsöguna, vegna þess að ástandiö i heiminum hefur breytzt á þann veg, að mjög góðar horfur eru á, að 200 milna fiskveiðilögsaga veröi bráðlega að alþjóðalögum. Rökrétt afleiðing af breytingunum, sem hafa orðið á alþjóðavettvangi er, aö við eigum að bcina kröftum okkar sem mest að framgangi 200 milna. Viö eigum nú þegar að Iýsa því yfir, að við tökum okkur 200 milur um leið og hafréttarráðstefnan tekur ákvörðun um slika fiskveiði- lögsögu. Svo segir i leiðara blaösins i dag. Sjá bls. 6 * * * Góð steypa úr mold? „Ætlar Sverrir að „búa til góða steypu úr mýrum og mold” ? Stuðningsmaður Sverris Runólfssonar fjailar um þessa spurningu í lesenda- bréfi. Sjábls.2 * ¥ * „Gamla Hollywood" á götum Reykjavíkur? Fólk fer sennilega bráðum að spranga um götur og torg hér á iandi og annars staðar i klæðnaði, sem viðhöfum varla séð nema I gömlum Holly- wood-kvikmyndum. Ekki er langt siðan hlegið var að siikum klæðnaöi. „Gömlu dagarnir” hafa völdin i hugmyndum tizkufrömuð- anna. Sjá Inn-siðu bls. 7 *** Regn, regn, regn.... Þannig voru vist útimótin viða, þessi er táknræn mynd af Húsafellshátfðinni. Sjá fréttir af útimótunum á bls. 4. og baksíðu. Ungt fólk í hrakningum í Skeiðaró: „HÉLT ÞETTA VÆRI SÍÐASTA ÁIN" — sagði ökumaðurinn, œtlaði að Skaftafelli ásamt vinstúlku „Við vorum að skoða okkur um við Skeiöará og iangaði að fara upp að Skaftafelli. Ég hélt að þetta væri siðasta áin, sem þyrfti að fara yfir til að komast þangað”, sagði Leifur Ebeneser- son, sem ienti I hrakningum á jeppa I Skeiðará á sunnudaginn. „Ég hafði verið á ferðalagi ásamt vinkonu minni siðan á föstudag. Þegar ég kom að Skeiðará, fór ég út úr bilnum og Sveinbjörn Beinteinsson, allsherjargoöi Asatrúarmanna drekk- ur skál Þórs á biótinu á Draghálsi undir likneski af Þór, sem reist var i tilefni atburðarins. (Ljósm. ÞS.) REIDDUST GOÐIN? Hverju reiddust goöin? Eða voru þau bara að styrkja sina menn? Allavega hætti ekki að rigna á Draghálsi, þótt ákaft væri heitiö á guöina. En blót Ásatrúarmanna fór annars fram með tilþrifum og atorku. Sjá bls.2 athugaði vaðið, en fór þó ekki nógu langt, þvi að þegar ég var kominn á jeppanum út i miðja á snardýpkaði allt I einu og billinn fór á hliðina. Við komumst út um gluggann, og gekk það vel. Létum við fyrir- berast þarna á hlið jeppans. Þarna var fólk á bilum, sem gaf merki upp að Skaftafelli um, hvað hefði gerzt. Þá komst ég að þvi, að þetta var vestasta kvislin I Skeiðará og fólk frá Skaftafelli komst ekki að okkur. Hins vegar lét það vegavinnuflokk vita, sem var vestan megin við ána, og komu þeir til hjálpar. Þeir hentu reipi yfir til min I bilinn, og batt ég það fast, en bill- inn var alltaf á hreyfingu I ánni. Stúlkan fikraöi sig svo eftir reip- inu, en sökk á bólakaf, en þá kom einn úr vegavinnuflokknum og náði henni upp úr. Nú ætluðu þeir að ná I sverara reipi I vegavinnuskúrana, en þá tók jeppinn að hreyfast all- iskyggilega niður eftir ánni og færöist jafnframt austar. Ég beið þvi ekki eftir ööru reipi, en tók aö fikra mig áleiðis I land. Fór ég strax á bólakaf, og var mér sagt eftir á að ég hefði horfið I 2-3 minútur. Ég gerði mér ekki grein fyrir hvernig ég komst I land, en einhver náði I mig út I beljandi fljótinu. Farið var með okkur bæöi upp i vegavinnuskúrana, þar sem við fengum þurrt til að fara i og var stúlkan miklu hressari en ég. Ég fékk krampa og hélt, að mér myndi aldrei hlýna, svo Iskalt var mér. Þeir komu með sængur, teppi og hitapoka handa mér þarna i skúrunum. Viö vorum svo flutt suður I sjúkrabil og á slysavaröstofuna. Stúlkan fékk að fara heim, en ég var sendur hingað upp á Land- spítala og er mér sagt, aö ég þurfi að vera hérna i nokkra daga til athugunar. Ég var með hita fyrst, en er nú orðinn hitalaus og liður bara alveg ágætlega eftir allt saman. Jeppanum eru þeir búnir að ná upp, en ég veit ekki, hvort hann er skemmdur eða hvaö. Hvað er það llka, fyrst svona giftusamlega tókst til meö björgunina”, sagöi Leifur aö lok- um. — EVI. Leifur var á skjótum batavegi á l.andspitalanum i gær. (Ljósm. Vísis BG) Mikið eignatjón um helgina — en vel sloppið frá slysunum „Við getum ekki horft fram hjá þeirri staöreynd, aö mjög mikið eignatjón hefur orðiö um þessa helgi. Slys hafa alls ekki veriö mörg, en skemmdir á bilum valda miklum útgjöldum”, sagði Pétur Sveinbjarnarson, fram- kvæmdastjóri Umferðarráðs I viðtali viö VIsi í gær. „En ég held við getum verið ánægöir með, hve vel við höfum sloppiö frá slysum. Nú er búið að tilkynna okkur um 9 slys. Þar af er aöeins eitt þeirra alvarlegt. Alis konar óhöpp hafa aftur á móti veriðmjög mörg. Menn hafa ekið út af, velt bilum, ekið á brúarhandrið o.s.frv. En viö megum vera ánægðir meö, aö I alls átta ár hefur aldrei orðið dauðaslys i umferðinni um Verzlunarmannahelgina.” „Var umferðin núna eitthvað öðruvlsi en I fyrra um þessa helgi”? „Já, hún var miklu dreiföari, þ.e.a.s. menn óku mun jafnara um landið. Einnig fóru menn á dreiföari timum úr bænum. „Hvernig stóöu vegirnir sig”? „Vegakerfið var illa búið undir þessa miklu umferð. Þurrkar hafa verið vlðast hvar undanfarn- ar vikur og vegir þvl óheflaöir. Þetta gerði það að verkum, að vegirnir voru alls ekki I ákjósan- legu ástandi. Svo rigndi núna um helgina, en það þoldu ekki allir vegir. Þeir hafa spillzt mjög viða. Lögreglan I Reykjavik haföi búizt við tiltölulega rólegri helgi I bænum I þetta sinn. En svo fór að þessi helgi varö ekkert betri en venjuleg helgi. Fylliraftar og vandræðamenn stóöu sig vel I.að sjá lögreglunni fyrir nægum verkefnum. Mikiö var um ölvun, og voru fangageymslur ekkert tórnari en venjulega. Mörg smærri umferðaróhöpp gerðu einnig sitt til að halda lögreglunni við efnið. —ÓH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.