Vísir - 08.11.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 08.11.1973, Blaðsíða 9
Visir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973. 9 cTVIenningarmál EDlllCGT OG ENGIN „flff" Athyglisverð Ijósmyndasýning skoðuð Hér er ein myndaserian á sýningunni. Sama myndin dregin hægt úr fókus. Aörar myndaseriur á þessari sýningu vekja enga sérstaka athygli. Það er hverjum ljósmyndara lærdómsrikt að viröa fyrir sér sýningu áhugaljósmyndaranna sex að Kjarvalsstöðum. Að visu er þar ekki brotið blað i sögu ljósmyndalistar, en sýningin er heiðarlegt framlag tií þessarar listgreinar — og minnir okkur á, að það er hugmyndin að baki ljósmyndunarinnar, sem mestu ræður. Ekki það, að nota hinar furðulegustu linsur framaná vélarnar og siðan gera hin margvislegustu ,,fiff” við stækkun myndarinnar. Greinilegt er, að náin sam- vinna er á milli ljósmyndaranna sex. Þeir draga mjög dám hver af öðrum. Sjálfsagt er það að- eins til góðs. Þá er það einnig auðséð, að þeir félagarnir hafa unnið sýninguna saman, bæði hvað snertir myndavalið og stækkun myndanna. Sýningin er lika óneitanlega heilsteypt mjög og virðist gefa góða yfirsýn yfir það, sem þessir ljósmyndarar hafa verið að fást við. Þessi sýning er að þvi leytinu frábrugðin hinni fyrri, sem þeir sömu stóðu að fyrir tveim árum, að hér er ekki verið að gera neinar kúnstir með negatifin, eins og nokkuð var um áður. Það er jafnvel minna gert að þvi núna að stækka út úr myndun- um, og hlýtur það að bera vott um ákveðnari vinnubrögð við ljósmyndunina sjálfa. Það er ekki að sjá, að ljós- myndararnir séu heldur i vand- ræðum með negatifin. Lýsingin virðist leika i höndum þeirra i allflestum tilvikum, og þeir eru farnir að gera meira að þvi að leika sér með ljós og skugga. Til dæmis er nokkuð um myndir, sem teknar eru á móti sól. Hér eru þeir greinilega að þreifa fyrir sér i rikara mæli en áður. Hugmyndaflug og ,,gott auga” er þessum sex ljós- myndurum óneitanlega gefið. Hvað hugmyndaflugið snertir vekur sérstaka athygli röð mynda af húsgöflum og öðru sliku. Það er til að mynda stór mynd, sem sýnir raunverulega Texti: Þórarinn Jón Magnússon Bragi Guðmundsson litið annað en svartan húsvegg, en I horni myndar er þó glugga- bora, sem litill drengur er að horfa út um. önnur mynd sýnir aftur litið annað en kvist og bárujárn, þó mjög gripandi mynd. Eins má taka sem dæmi mynd af telpu, sem er að kikja fyrir húsgafl. Hún nær þó ekki nema yfir lítinn hluta myndflatarins. Megnið af myndfletinum fer undir stigvél og bakhluta drengs, sem er tæpast i fókus. Góð mynd, sem hefði misst áhrifamátt sinn, ef svo mikið sem táin hefði verið skorin af stigvélunum. Eitthvað er á sýningunni af myndaflokkum. Þar eru ljós- myndararnir ennþá nokkuð fálmandi. Athyglisverö er að visu mynd af grjóti, sem er dregin út úr fókus, en af sliku er hægt að fá of mikið. Hins vegar getur „myndasaga” verið stór- brotið viðfangsefni, en á þessari sýningu er ekki neina slika aö finna, sem hrósverð má kallast. Forvitnilegar geta þær myndir talizt, sem teknar eru af „massa”, eins og t.d. myndin af timburhlaðanum og myndin frá fiskþurrkuninni. Hér tekst ljós- myndurunum nokkuð vel upp. Eins má að lokum bera lof á til- finningu þeirra fyrir fólki og öðru kviku. Þeir hafa beðið eftir réttu svipbrigðunum — og náð að smella af á hárréttu augna- bliki. „ÞETTA ER ÍSLAND” Litmyndir Gunnars Hannes- sonar eru landsmönnum að góðu kunnar. Framlag hans til sýningarinnar að Kjarvalsstöð- um mun þó ábyggilega koma flestum á óvart. Hér er Gunnar ekki að sýna aðra hlið á náttúru íslands en hann viðurkennir sjálfur, að sé hin eina sanna. Landslagsmyndir Gunnars á sýningunni, sem eru 560 talsins, eru ekki þær glansmyndir, sem við eigum að venjast af for- siðum landkynningarbæklinga, almanökum og póstkortum. Myndir, sem hafa laufguð tré i forgrunni, sæta stelpu á aðra hönd og yfirleitt annað það, sem skapað getur suðræna stemmningu. Hér tekst Gunnari miklu fremur að draga fram hrikalega náttúru landsins, sem er öll likari þvi sem við þekkjum. Og við tökum fúslega undir þau orð snillings- ins, að „þetta sé Island”. Kin af Kæreyjamyndunum á sýningunni. Þær myndir gefa sýning- unni aibrigðilegan.svip, enþærtóku tveir sýnendanna á siöasta sumri. Þrir áhugaljósmyndaranna vinna viö að skola eina myndanna, sem á sýninguna fóru. Þeir þurftu að koma sér upp sérstakri aðstöðu til að geta unnið hinar miklu stækkanir fyrir sýninguna, m.a. smiða þessa stóru bakka. Hvað skyldi langt siðan tökumaður þessarar myndar gerði fjöl- Loftmynd af Skeiðarársandi?— Nei, mynd af drullupolli á einni af götum Reykjavfkur. skyldu sina að myndaefni....?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.