Vísir - 13.12.1973, Blaðsíða 6

Vísir - 13.12.1973, Blaðsíða 6
6 Vísir. Fimmtudagur 13. desember 1973. vísir Tjtgefandii-Reykjapcent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétiírsson Auglýsingastjóri: SkUli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 866ll Afgrei&sla: Hverfisgötu 32. Simi 86611, Ritstjórn: Si&umúla 14. Simi 86611 (7airnur) Askriftargjald kr. 360 á mánu&i innanlands i lausasölu kr. 22:00 eintakiö. BU&aprent hf. l’ctur Sigur&sson Vernd fyrir fólkið Mikilvægt skref i átt til aukinna borgararétt- inda hefur verið stigið hér á landi. Á alþingi hefur verið lagt fram stjórnarfrumvarp um umboðs- mann alþingis að norrænni fyrirmynd. Er frum- varpið samið i framhaldi af samþykkt tillögu um þetta efni frá Pétri Sigurðss. alþingism. Umboðsmaðurinn á að taka við kvörtunum fólks á hendur opinberum stjórnvöldum og embættismönnum og hafa starfslið til að rannsaka þessar kvartanir. Ef þær hafa við rök að styðjast, getur hann látið höfða mál gegn viðkomandi valdhöfum eða náð fram leiðréttingum með öðrum hætti. Um leið og umboðsmaðurinn er almenningi til halds og trausts gagnvart rikisbákninu, stuðlar hann einnig að bættri stjórnsýslu. Eftir þvi sem stjórnkerfið verður flóknara, eykst þörfin á slik- um umboðsmanni. Einstakir þingmenn hafa ekki lengur innsýn i rikisbáknið og geta ekki veitt þvi nægilegt aðhald. Þar við bætist, að frumkvæðið i opinberum málum er stöðugt að færast meira og meira i hendur embættismanna, sem einir hafa þá sérþekkingu, er hið flókna rikiskerfi krefst. Með þvi að snúa sér til umboðsmanns alþingis getur almenningur sparað sér dýran og timafrek- an málarekstur fyrir dómstólum. óhætt er að fullyrða, að þetta sé eitt mesta nauðsynjamál, sem alþingi hefur til meðferðar. — JK Afnám ranglætis Mörg dæmi eru um, að blásaklaust fólk verður illa fyrir barðinu á ranglátum lögum um fast- eignamat og sambýli i fjölbýlishúsum. Ef eigandi einnar ibúðar i fjölbýlishúsi greiðir ekki opinber gjöld af ibúðinni, eru allir hinir samábyrgir og verða að borga fyrir hann, ef þeir vilja komast hjá þvi, að ibúðir sinar verði auglýstar á uppboði. Þar á ofan komast nöfn sumra þeirra i Lög- birtingablaðið og aðra fjölmiðla undir stimpli vanskilamanna. Eggert G. Þorsteinsson al- þingismaður hefur flutt þarfa tillögu á alþingi um afnám þessa ranglætis. Vill hann láta meta hverja ibúð sem sérstaka einingu og að tryggt sé, að ekki séu aðrar ibúðir auglýstar til uppboðs eða aðfarar vegna vangoldinna gjalda en þær, sem i skuld eru hverju sinni. — JK Alþjóðleg háskóladeild vT’A'/'’'?' K«ííd t «. Porstcinsson. Alþingismennirnir Magnús Jónsson og Ellert B. Schram hafa á alþingi lagt til, að rikisstjórnin hefji sem fyrst viðræður við Sameinuðu þjóðirnar um, að ein eða fleiri deildir hins nýstofnaða há- skóla Sameinuðu þjóðanna verði staðsettar á íslandi eða að is- lenzkar rannsóknastofnanir taki upp sámvinnu við skólann um einstök verkefni. Háskóli Sameinuðu þjóðanna á að taka til starfa siðari hluta næsta árs og verða deildir hans Magnús jonsson dreifðar viða um lönd. Benda flutningsmenn tillögunnar á, að ísland henti vel til haf- og fiskifræða annars vegar og til jarðvis- inda og jarðhitarannsókna hins vegar. Er ekki að efa, að framgangur þessa máls mundi verða is- lenzkum rannsóknum mikil lyftistöng og verða efnahagslifinu til framdráttar. — JK HALASTJARNA TIL SÖLU Halastjörnu-ferðir, halastjörnu-bœkur, hala- stjörnu-samkvœmi — flest allt ó markaðnum kennt við halastjörnuna Kohoutek Kohoutek, „halastjarna aldarinnar”, er talin vera samsett úr fre&num iofttegundum og rykkornum. ísklumpur, blandaður ryki, sem þýtur gegnum himingeiminn á ofsa- hraða, er orðinn tekju- lind fésýslumanna hér á jörðu niðri. Það er halastjarnan Kohoutek, sem þarna er að nálgast jörðina, og hana hafa fésýslumenn hagnýtt sér i auglýsing- um, og þá einkanlega i skemmtiiðnaðinum og ferðamannabransanum. Halastjarnan nálgast sólina úr ytri hlutum himingeimsins. Hún er á leið umhverfis sólina og kemur næst jörðu upp úr áramótunum. Þvi er haldið fram, að það verði ógleymanleg sjón þeim, sem koma auga á hana, en hún á að vera sjáanleg berum augum. Það munu líða 19.000 ár, áður en hún sést aftur frá jörðu. Þá staðreynd hafa kaupsýslumenn hér á jöröinni hagnýtt sér með klókindalegum hætti. t mörgum vestrænum rikjum hafa menn byrjað auglýsingaher- ferð um, að fólk ætti ekki að missa af þessu einstæða tækifæri til þess að sjá halastjörnuna. Auðvitað sést hún skýrar i sjón- aukum, eins og sjónaukafram- leiðendur hafa flýtt sér að benda rækilega á. En fyrst verða menn að lesa sér til um hana, eins og blaðaútgefendur hafa lika vakið athygli á. Bezt er að virða hana fyrir sér úr bátum eða skipum, samkvæmt auglýsingum ferða- stofanna. Og við þetta einstæða tækifæri er sjálfsagt að skála auðvitað i Kohoutek-sjússum. Jamm og já. Fjörkippur i sölu sjón- auka Löngu áður en stjarnan varð sýnileg berum augum, fundu gleraugnasalar mikinn fjörkipp i sölu sjónauka. Núna siðustu daga hafa verið settir upp Kohou- tek-hljómleikar, Kohoutek-sam- sæti og skipulagðar Kohoutek-ferðir. Kohoutek-bækur renna út eins og heitar lummur, og Kohoutek-skyrtuboli getur maður auðvitað fengið i Banda- rikjunum. Macy’s — hið fræga Nóramaga- sin þeirra i New York — boðaði i heilsiðu auglýsingu nýlega, að „halastjarna aldarinnar væri farin að nálgast” og hvatti fólk til þess að kaupa sér sjónauka. Sá ódýrasti kostaði 25 dollara, en sá öflugasti 300 dollara. — Og viti menn! Salan fjórfaldaðist fyrstu dagana eftir að auglýsing- in birtist, ef marka má upp- lýsingar fulltrúa Macy’s. Aðeins hjaðnaði hún aftur og er nú aðeins tvöföld. Þeir, sem til stjörnunnar sjá, segjast geta greint hana i venju- legum sjónauka, og sé hún núna ásýndar likt og rauö bóla á stjörnubjörtum nóttum. Sýnist hún limd upp á himinhvolfið, en i rauninni þýtur hún áfram með hraða, sem er um 160.000 km á klukkustund. Illlllllllll m mm Umsjón: Guðmundur Pétursson „Halastjörnupopp” Til þess að halda upp á ferðalag stjörnunnar héfur brezka popp- hljómsveitin „Hawkwind” þegar efnt til tilkomumikilla hljómleika i New York, þar sem 3.500 ung- menni hlýddu á „geim-tónlist” og horfðu á skuggamyndir af Kohou- tek. Aðrar borgir hafa svo apað þetta eftir. 1 stjarnfræðistofnuninni Hayden i New York er að finna stóran sal, sem hefur verið inn- réttaður eins og himingeimurinn, séður neðan frá jörðu. Fjórum sinnum á dag er haldin þar sýning á þvi, hvernig Kohoutek þýtur um geiminn. Núna ilok þessarar viku verður haldið þar heljarmikið samkvæmi fyrir halastjörnu- áhangendur. úr lofti og af sjó Fyrir harðasta kjarna Kohoutek-dýrkenda hefur Hayden-stofnunin þó gengið enn íengra.Leigð hefur verið Júmbó þota, sætum i henni fækkað, gluggar stækkaðir og i þakið sett lúga fyrir stjörnukiki, og þessari flugvél skal flogið i skoðunarferð fyrstu sex daga janúarmánaðar, meðan Kohoutek sést bezt frá jörðu. Or flugvél, sem er i neðra lagi gufuhvolfsins, yrði hala- stjarnan einstæð sjón. Skemmtiferðaskipið „Queen Elizabeth II”, hóf þriggja daga Kohoutek-ferðir fyrir strönd Suður-Karolina núna þann 9. desember. Um borð hefur verið komið fyrir stjörnukfkjum. Farseðillinn kostar um 12 þúsund krónur, og eru allar ferðirnar upppantaðar. Svona i öryggisskyni — ef það kynni að hafa farið framhjá ein- hverjum, sem sagt hefur verið i útvarpi, sjónvarpi og blöðum um halastjörnuna — þá hefur bóka- forlag eitt gefið út bók um Kohou- tek. Hefur hún verið prentuð i 500.000 eintökum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.