Tíminn - 17.02.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 17.02.1966, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 17. febnrar 1966 og hlýtur þar að vera átt við saum í riðið net. Færi vel á því, að mínu áliti, að taka upp orðið riðsprang í stað orðskrípsins fílering, og athug- andi væri að taka upp orðið sprang sem samheiti um ;aum gerðir með opnum grunnum. þ. e. riðsprang, úrrakssaum og úrskurðarsaum. Óneitanlega hljóma þessi gömlu heiti betur en þýddu orð in, sem oftast hafa verið notuð og eru vel þess virði, að þau séu rifjuð upp. Úr því að ég fór að tala um orðskrípi í sambandi víð útsaumsorð, má ég til með rétt að minnast á kontúr- eða kontórstinginn, sem enn mun almennt vera svo nefndur hér á landi, þótt reynt hafi verið að útrýma honum raeð orð.unum leggsaumur eða línusaumur á seinni árum. Um þennan saura notaði Sigurður Guðmundsson málari orðið varpleggur í rit- um sínum og annað gamalt heiti saumsins er varpsaumur Varpleggur finnst mér aiveg Ijómandi gott orð, sterkt og hljómmikið, og vona ég, að því megi sem fyrst takast að útrýma konturstingnum úr ís lenzku hannyrðamáli. — — Stundum heyrist kvartað yfir því, að ekki séu til íslenzk hannyrðaheiti, og víst vantar mörg, en miklu fleiri eru þó til en almennt er haldið, ef að er gáð, eins og framangreind dæmi raunar sýna. En citt dæmi er orðið steypilykkja, ágætt íslenzkt orð um spor það, sem nú mun oftast kallað keðjuspor, greinilega bein þýð ing úr dönsku. Og margt er enn þá órannsakað bæði í Þjóð- minjasafni og annars staðar og efalítið eiga mörg orð eftir að koma í ljós og skýrast áður en lýkur. Sjálfsagt virðist að taka upp íslenzk heiti jafnóðum og þau finnast. Ég held líka, að öllum finnist nú orðið sjálf sagt að tala um augnasaum fremur en drottningarspor og refilsaum fremur en forníslenzk an saum, þótt ekki muni vera nema fáir áratugir síðan farið var að nota þessi orð aftur. En tökum annað dæmi: mjög er nú í tízku að hnýta og vefa svo- nefnd „rya“ teppi. Til er ís- lenzkt orð um hliðstæða tækni, það er röggvarvefnaður. Því ekki nota það? Tvær íslenzkar listakonur hafa þegar tekið það upp um vefnað sinn, þær Vig- dís Kristjánsdóttir og Ásgerður Búadóttir. Má hvort sem v!U tala um röggvarteppi < sbr röggvarfeldi) eða röggvuð tcppi, og ég sé ekki, að neitt mæli gegn því að taka upp sögnina að röggva í merking- unni að hnýta eða vefa röggv uð klæði. Það hljómar vel. en orðið „rya“ er hreint af- skræmi i íslenzku máli. Nú er farið að framleiða efni í þessi teppi hér á landi ag auglýsa i víðlesnum blöðum. Væri æskilegt. framleiðendur tækju hið forna, íslenzka he:ti upp í auglýsingar sinar, svo að það mætti festast aftur i málinu. — Kemur ekki sitthvað i ljós, menningarsögulegs eðlis, þegar rannsakaðar eru gamlar hannyrðir? Segja þær ekki yni islegt um ástand hvers tíma’ — Það gera þær vissulega. og eins gefa þær hugmynd um tízku bæði i aðferðum og munstrum. Einna gleggst finnst mér þær þó alltaf sýna- hve konur hafa funriið ótrúlega S0NDAG - „ ............... ,™ *,*.!.* » , » - V * — I® ingar i hannyrðum. Segja má, að rannsóknir á þessu sviði i'ylli með ýmsum hætti lífs- mynd hvers tima. — Væri ekKi æskilegt að hag- nýta íslenzk munstur sem mest við handavinnukennslu í skólum? — Jú. það tel ég alveg tví- mælalaust, og ég hef mikinn áhuga á að svo geti orðið. Og ekki sízt þar ættu lítil munst- ur að geta notazt margfalt bet- ur en munstur úr heilum tepp um. Annars veit ég. að nú sem stendur er miklu auðveldara að fara í handavinnuverzlanir og kaupa erlend munstur, sem fást þar snyrtilega frágengin með öllu efni, heldur en leita uppi islenzku munstrin og búa þau i hendur nemend um. En væri ekki hægt að skapa fyrir því áhuga hjá aðiium eins og hannyrðaverzl unum félagi handavinnukenn ara og Heimilisiðnaðarfélag- inu, að láta í sameiningu, vinna upp íslenzk munstur og afla, til þeirra þess efnis sem þarl7 Nóg úrval virðist til af efnum og garni og með nú- tíma ljósritunartækni ætti að vera auðvelt að gera ódýrar, en greinilegai myndir af munstrum til að fara eftir, þeg ar fyrst er búið að frumteikna þau Hér í Reykjavík koma alltaf nemendur úr 2. bekk unglingastigsins í heimsókn á Þjóðminjasafnið á hverjum vetri auk skólaheimsókna ut- an al landi. Ætli stúlkurnar fengji. ekk: meiri áhuga á safngripunum ef þær þekktu í þeim munstur og saumgerðir úr eigin vinnu. Sama ætti að gilda um útskurðar — og leð urvinnumunstur fyrir pilta. Sonu: minn ætlar nú að búa til handa mér leðurveski með dreKamyndum úr gömlu klæði Verðui forvitnilegt að sjá hvernig til tekst. Væri ekki þörf á að búa til kennslubók i útsaumi á íslenzku, svipaða því, sem til eru erlendis’ Þae tel ég aiveg víst. Mætti hugsa sér slíka bók Uannski fremur sem handbók en kennslubók. Gæti hún þá orð- ið nemendum til stuðnings bæði heima og í tímum og kennurum til lettis við tilsögn ina, en jafnframt yrði hún nemendum að gagni við upp- rifjun eftir að skólagöngu lyki þeim til fróðleiks og uppörvunar, sem við hannyrðir fást tilsagnarlaust. Slík bók þyrft ekki að vera mjög stór til þess að koma að gagní ég hef séð ýmsar hand hæga' bækui erlendar. þar sem fjölbreytlu efni. nákvæm um skvringarmyndum af spor um með tilheyrandi útskýring um og auk oess nokkurt úrva) táknrænna munstra, er komið fyrii á tiitölulega fáum blað síðuni Þótt ekki væri annað fyndist mér að gjarnan mætti taka til athugunar að gera slíkt bók um íslenzkan út- saum sem nemendum í barna- og unglingaskólum yrði gefinn kostui á að eignast við vægu verðt — En svo að ég viki aftur að nýju bókinni þinni — Er ekki mikið verk að gera heila munsturbók': — Jú, það er mikil ná- kvæmnisvmna Fyrst var að taka upp munstrin úr munum eða sjónabókum á saffiinu og teikna þau, mörg með litatákn um. inn á rúðustrikaðan papp Framhald á bls 15- __ TÍM1NN B- margar leiðir til að veita feg- urð inn í hið daglega líf með hannyrðum sínum, jafnvel á öldum hinna mestu þrenginga. Oft er, og með réttu, dáðst að tréskurði íslendinga, en iist- saumur og vefnaður íslenzkra kvenna er ekki síður aðdáunar verður, ekki aðeins ábreiðarn ar, reflarnir og aðrir stórir munir, heldur einnig litlu hvers dagslegu hlutirnir, spjaldofnu styttuböndin, fótofnu sokka böndin, rósuðu vettlingarnir, samfellu- og upphlutskmpi- ingarnir og flosuðu hempuborð arnir, svo eitthvað sé nefnt. Munstrin segja sitt hvað um menningartengsl við útlönd, en hér finnast líka mörg munstur, eins og ég gat reyndar um áður, sem ekki hafa fundizt að erlendar fyrirmyndir og kunna því að vera af innlendum upp runa. — Jafnvel aðferðir geía gefið bendingar um erlend menningartengsl. Fótvefnaður er gömul bandvefnaðaraðferð, kunn hér á landi fram á þenn an dag, en óþekkt með öllu, að því er virðist, á hinum Norður löndunum. Nú alveg nýverið bárust mér hins vegar upplýs ingar um, að á Araneyjum und an vesturströnd írlands séu enn þann dag í dag ofin belti a fæti og talið sé þar, að am ævaforna aðferð írska muni vera að ræða. — Er ekki saga gamalla ís- lenzkra hannyrða líka persónu saga í ríkum mæli? — Það held ég megi fullyrða. Margir munir í Þjóðminjasafni eru að minnsta kosti tengdir þekktum íslenzkum konum. Þar er altarisklæði gefið Laufás- kirkju af Ragnheiði Jónsdóttur, frú Gísla biskups Þorlákssonar á Hólum, rúmábreiða með nafni Þóru Stefánsdóttur, skálds Ólafssonar í Vallanesi og samfellur ísaumaðar af Guð rúnu og Halldóru Skúladætr- um fógeta Magnússonar. Nafn síðustu abbadísar Reyni- staðaklausturs, Sólveigar Rafnsdóttur, er þar íauni- að í altarisklæði frá Skarði á Skarðsströnd. og leif ar af nafni Brettefu Tómas- dóttur, prests Ólafssonar á Hálsi í Fnjoskadal sjást enn á altarisklæði úr þeirri kirkju. Við höfum öli áhuga á per- sónusöfeu, og mér finnst það gefa klæðunum aukið gildi að vita einhver deili á því, hverjum þau hafa verið tengd fyrrum, hver hafi unnið þau, átt þau e'íia gefið. Þyki mikils um vert að vita um höfunda fornra bóka, sé ég ekki, að það sé ómerkari vitneskja, að vönd- uð, silkisaumuð handlína í Þjóðminjasafninu sé unnin af Hólmfríði Palsdóttur Vídalín handa Þorbjörgu móður henn ar og að úti i London er til rúmábreiða sem Þorbjörg saumaði sjálf. Sér í lagi er fróðlegt, að eitt handaverk Hóimfríðar skuli hafa varð- veitzt því að eftir vísu föður hennar hefði annars mátt halda að hún þefði verið held ur klaufsk við saumaskapinn: Níu vetra nú i vor nemur seint íþróttir hefur saumað hvert eitt spor Hólmfríður Pálsdóttir, þótt reyndar sé það látið fylgja í vísnakveri Páls Vída- líns að tólf ára hafi hún kunn að alla sauma. Þá er líka gam an að velta pvi fyrir sér, hvort það sé undir tilviljun komið. hvað varðveitzt hefur af forn um handíðum. eða hvort viss ar ættir hafi haft sérstaka hæfileika til listrænnar tján-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.