Tíminn - 03.04.1966, Blaðsíða 12

Tíminn - 03.04.1966, Blaðsíða 12
 78. tbl. — Sunnudagur 3. apríl 1966 — 50. árg. HELMINGUR 1500 MILLJONA ASÍUBÚA YNGRIEN 21 ÁRS FB—Reylcjavík, laugardag. Menn velta nú fyrir sér spurn ingunni um það, hvað verði um öll bömin í Asíu, en af þeim 1500 milljónum manna, sem byggja Asíu, er helmingurinn yngri en 21 árs. Á ráðstefnu, sem nýlega var haldin í Bankok, var rætt, hvernig bezt megi fullnægja þörfum þess- ara milljóna bama og unglinga að því er segir í fréttabréfi frá Sam einuðu þjóðunum. Þýzkar Hussar- eldhúsinnrétt- ingar fluttar inn EJ—Reykjavík, laugardag. Málningarvörur s.f. hafa hafið innflutning eldhúsinnréttinga frá Vestur-Þýzkalandi. Eld'húsinnrétting þessi kallast Hussar-samfellu-eldhúsinnrétting. Vinnuborð, allar hurðir og fram stykki eru, utan og innan, klædd með Resopal. Hliðar, skúffubotn ar og skilrúm eru klædd m'éð PVC harðplastplötum. Eldhúsborð in eru lokuð upp vig vegginn ineð 3.5 sm breiðum lista, en borðkant ar fremst eru lokaðir með listurn úr ryðfríu stáli. Eldhúsinnrétting ar þessar svara til hinna frá- brugðnu krafa fólks. Fjöldi vel og haganlega útbúinna skápa ger ir mögulegt að áætla fyrir hvem og einn eldhúsinnréttingu sam kvæmt teikningum. Le ngdarmetrinn af þessari eld húsinnréttingu mun kosta, með núverandi tollum, um 5000 krán- ur. ERU ANDVIGAR BJÓRFRUM- VARPINU Kvenfélagið Hlíf á Akureyri hef ur sent blaðinu eftirfarandi álykt- un: .Fundur haldinn i Kvenfélaginu Hlíf, Afeureyri 10. marz 1966 bein ir þeirri eindregnu ósk til Alþing is, að bjórfmmvarp það, sem nú er til umræðu, nái ekki. fram að ganga. Fundurinn lítur einnig svo á, að áfengisógæfa þjóðarinnar sé komin á það stig, að engu megi þar á bæta.“ Ráðstefnuna sátu fjölmargir full trúar ýmissa stofnana hvaðnæva að úr heiminum, fulltrúar Samein uðu þjóðanna, og sex af sérstofn unum þeirra, ásamt fulltrúum Rauða krossins, skátahreyfingar- innar. líknarstofnana og margra annarar, ásamt fulltrúum 24 Asíu landa. Meðal umræðuefna vom mannfjölgunarvandamálin, tak- mörkun bameigna, næringarefna- skortur, smábarnagæzla og mennt un barna og unglinga. Frumkvæði að ráðstefnunni áttu Efnahagsnefnd Sameinuð'i þjóð anna fyrir Asíu (ECAFE) og Bamahjálpin (UNICEF). f um- ræðunum kom það m.a. fram. að rannsókn hefði leitt í ljós, að sá hluti íbúa hvers lands, sem tæki jákvæða afstöðu til takmörkunar barneigna næmi frá 65 af hundr- aði í Tyrklandi upp í 90 af hundr aði á Taiwan (Formósu). 1 flest um Asjulöndum tvöfaldast íbúatal an pú á 25 árum. Pulltrúi Barna- hjálp'arinnar sagði, að stofnunin mundi taka til athugunar spurn- inguna um hjálp við lönd, sem hafa þörf á takmörkun barneigna. á ráðstefna í Addls Ábeba í maí. Enda þótt menntun miði áfram í Asíu, eru enn mörg vandamál ó Framhald á bls. 23. Niðursoðin þorskhrogn eru komin á markaðinn FB—Reykjavík, Iaugardag. Nýlega fréttma við, að Mat vælaiðjan h.f. á Bíldunal hefði sett í nokkrar verzianir ný, niðursoðin þorskhrogD, sem annars eru framleidil fyrir cr lenda markaði. Flestuni íslend ingum þykja lirogn mesta hnossgæti, en eiga ekki kost á þeim nema stutta/i tíma úr ár inu á vertíðmni og óft ekki einu sinni þá, eins og Revk- víkingar kannast við í vetur. • Virðist þarna vera kærkom in tilbreytni fyrir íslenzkar húsmæður, því bæði má nota hrognin með fiski upphituð og svo steikt eins og erlendir nota þau aðallega. Auk þess er hér um að ræða mjög bæti efnarika fæðu. Okkur er sagt að hrognin fáist í SÍS, Austur stræti og í Kron hér í Reykja vík og hjá flestum kaupfélög unum um landið en sjálfsagt munu flestar verzlanir einnig koma til með að hafa þau á boð stólunum á næstunni, þegar fólk fær tækifæri til að kynn- ast þessari vöru. Dósirnar eru með 600 gramma innihaldi með mjög skemmtilegum miða, prentuð- um í mörgum litum. Einnig fylgir dósalykill, en svo má einnig opna dósimar í báða enda með venjulegum dósa- hníf og þrýsta innihaldinu í heilu lagi út úr dósinni eins og t.d. fiskbúðing. Verðið er mjög svipað því og ný brogn kosta hjá fisksölum, en vita- skuld hefur himnan verið skil in frá, sem gerir matinn enn lystilegri. Alf—Reykjavík, laugardag. Skákþing íslands hefst n.k. mánudag kl. 13 og verður hað að Hótel Sögu. Meðal keppenda eru flestir okkar beztu skákmenn þ.á. m. núverandi íslandsmeistari GuS mundur Sigurjónsson, nýbakaður ReykjavíkurmeistarL Jón Kristins son, Jón Hálfdanarson, Björn Þor steinsson, Sigurður Jónsson, Gunn ar Gunnarsson o.fl. í meistaraflokki eru keppendur alls 26, þar af 11 utanbæjarmenn. í 1. fl. eru 8 keppendur, þar af 5 utanbæjarmenn. í 2. flokki em 15 keppendur og í unglingaflokki 13, þar af 6 frá Akránesi og 1 frá ísafirði. 2. umferð verður einnig háð n. k. mánudag og hefst hún kl. 20. AKRANES Framsóknarfélag Akraness held ur skemmtisamkomu í félagsheim ili sínu, Sunnubraut 21 í kvöld, sunnudagskvöld kl. 8.30 síðdegis. Til skemmtunar Framsóknarvist og kvikmyndasýning, öllum heim ill aðgangur meðan húsrúm leyfir. FUF Akranesi Aðalfundur Félags ungra Fram sóknarmanna á Akranesi verður haldinn í Framsóknarhúsinu mánudaginn 4. apríl og hefst kl. 8.30 síðdegis. Venjuleg aðalfund- arstörf. Fjölmennið stundvísiega. Stjórnin. SK0ÐUN BIFREIÐA í REYKJAVIK STENDUR FRA 12. APRÍL TIL12.0KTÓBER F/estir bifvé/avirkjar á iandinu hafa aú sótt Ijósastillinganéntskeið SJ—Reykjavík, laugardag. Tíminn ræddi í dag við Gest Ó1 afsson, forstöðumann Bifreiðaeft irlits ríkisms, og innti hann eftir nýjnngum í sambandi við skoðun bifreiða í ár. Skoðun bifreiða í Reykjavík hefst 12. aprfl. Bifreiða fjöldi á skrá er nú nm 15 þúsund. Skoðunin mun standa yfir allt fram til 15. október, og á hverj- um degi verða.150 bifreiðir skoð- aðar. Skoðunargjöld hækka ekkL Skoðun fer fram með sama hætti og tíðkazt hefur — fylgja ber reglugerð um útbúnað bíla, engir aufeahlutir mega vera fram an á þeim, og engar tilslakanir verða gerðar í sambandi við aur- hlífarnar. Rétt er að benda á, að mörg verkstæði hafa gert sig sek um að setja aurhMfarnar ekki rétt á bílana, en sérstök ákvæði enu um staðsetningu þeirra. Bifreið fær ekki fullnaðarskoð un nema að ljósin séu rétt stállt Þar sem breytingar hafa verið gerðar á ljósastillingakröfum hafa 150 bifvélavirkjar í Reykjavjk ver ið þjálfaðir í sambandi við þessar breytingar. Ennfremur var haldið námskeið á Akureyri með þátt- töku margra Norðlendinga. Það var Umferðamefnd Reykjavikur og Ljóstæknifélag fslands er stóðu að þessum breytingum og komu þessir aðilar sér saman um ákveðnar reglur, en lengi fékkst ekki samkomulag um hvað fjar- lægð þyrfti að vera mikil frá ljós keri að spjaldi. Bifreiðaeftirlitið taldi, að 10 m fjarlægð væri of löng, þar sem verkstæðin eru yfir leitt ekki nógu stór. Fallizt var á, að nægja myndi, að fjarlægðin yrði 5 m. Hægt er að fá sérstök tæki erlendis frá, sem gera bað Framhald á bls. 22. Islenzk lög við kínversk Ijóð GB—Reykjavík, laugardag. I Gamlabíói n. k. mánudags- og Á vortónleikum Pólýfónkórsins I Þriðjudagskvöld, verða frumflutt sem að þessu sinni verða haldnir í ný e^,!) ^r- ^en Jónsson, I samin við enska þýðingu texta BÍTLAR I STAÐ GÖMLU SNILLINGANNA GÞE—Reykjavík, laugardag. Spaugilegt atvik kom fyrir á skólatónleikum í Háskólabíói í gær. Salurinn var þéttskipaðiir ungu, músíkölsku skólafólki, sem hafði búið sig undir að hlýða á verk gamalla tónsnill- inga. Mikil stemning ríktj i salnum, þegar tónleikamir voru að hefjast og höfðu flest ir sett upp siparisvipinn. Stjófn andinn Bohdan Wodisko iyfti tónsprotanum, og hljóðfæra- leikararnir ætluðu að fara að leika, en þá kom nú heldur betur annað hljóð í strokkinn en búizt hafði verið við, gjall andi bítlamúsík hljómaði um salinn. Þetta kom að vonum m.iög flatt upp á alla viðstadda hljóð færaleikararnir litu hver á annan með ráðleysisvip, stjórn andinn stóð eins og steingerv ingur með upprétta höndina. en glaðvær hlátur skólafólks blandaðist saman við þessa ó- boðnu tónlist. Stjórnandinn áttaði sig brátt og sló af og vildi þá svo kynlega til, að tón listin hljóðnaði. Það tók hljóð- færaleikara og stjórnanda góða Framhald á bls 23 úr hinum fræga kínverska Ijóða flokki eftir Lao Tze. Tónverk þessi eru ný af nálinni, aðeins tveir mánuðir síðan dr. Jón lauk við þau og skrifaði þau taunar fyrir kammerhljómsveit og kór, en nú verða þau samt flutt án undir Ieiks, og fer Halldór Vilhelmsson með einsöngs hlutverk, ensöng stjóri er Ingólfur Guðbrandsson. Efnisskrá tónleikanna skiptist í þrennt. Fyrst verða lög eftir ítölsku 16. aldar meistarana Pale strina og Gesualdo, einnig eftir ensku tónskáldin Thomas Weelk es, John Dowland og Thomas Morley. Fjalla þessir söngvar um Framhald á bls. 23. MÚTMÆLA SKATTI Á FÓÐURBÆTI FB—Reykjavík, iaugardag Á fjölmennum aðalfundi Búnaðarfélags Holtahrepps 29. marz s.l. var samþykkt tillaga, þar sem mótmælt var framkomnum tillögum um sérstakan skatt á fóður bæti. Tillagan var borin upp og samþykkt með öll- um greiddum atkvæðum. „Aðalfundur Búnaðarfé- lags Holtahrepps, haldinn að Laugalandi 29. marz 1966 mótmælir mjög ákveð ið þeim tillögum, sem fram hafa komið um sérstakan skatt á fóðurbæti".

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.