Vísir - 21.10.1974, Blaðsíða 10

Vísir - 21.10.1974, Blaðsíða 10
10 Bœði spjöldin óloft í fyrsta leiknum! Körfuknattleiksmenn hafa tekið upp þá nýbreytni nú i sambandi við islandsmótið i körfuknattleik að iáta dómarana fá gui og rauð spjöld til að nota á sama hátt og dómarar i knattspyrnu. Er þetta gert til aö reyna að stemma stigu við óiþróttamanniegni fram- komu körfuknattleiks- manna, en þeir hafa til þessa verið ósparir á að láta dómarana heyra I sér og þá ekki sparað þeim kveðjurnar frekar en aðrir. Það þurfti heidur ekki lengi að biða eftir þvi, að fyrstu spjöidin færu á loft i islandsmótinu. Strax eftir leik Ármanns og UMFN, sem var fyrsti leikur mótsins, fékk þjálfari Njarö- víkinganna að sjá spjöldin. Fyrst fékk hann það gula, og siðan það rauða strax á eftir. Aganefnd KKÍ fær öll „spjaidamál” til meðferðar og mun dæma eftir svipuðum reglum og Aganefnd knatt- spyrnusambandsins. Þrjú gul spjöld þýðir einn leikur I keppnisbann og sömuleiðis eitt rautt spjald. Með öðrum orðum þýðir þetta fyrir þjálfarann hjá UMFN, að hann fær ekki að stjórna liöi sinu i næsta leik. —klp Frásögn íslendings, sem lék í kvikmynd, þar sem Burt Lancaster lék Móses... „PJÖTLURNAR" • CHANGE HEIMSÓTTIR SAMÚEL í SOHO • SAMÚEL Á ÓLAFSVÖKU ÍR í vandrœðum með ný- liðana fró Snœfellsnesi Annars fátt um merkileg úrslit í fyrstu leikjunum í Íslandsmótinu í körfuknattleik 1975 Stefán Bjarkason fyrrum leik- maður mcð Val en nú leikmaður með Njarðvlkum, skoraði fyrstu stigin i islandsmótinu i körfu- knattleik 1975. Þau skoraði hann i fyrsta leik mótsins, sem var á milli UMFN og Armanns, sem fram fór i iþróttahúsinu i Njarð- vikum á laugardaginn. Mótið var sett með ræðu for- manns KKl, Einars Bollasonar, en áður höfðu bæði liðin gengið inn á leikvöllinn og fór fremstur Ármenningurinn Birgir örn Birgis með islenzka fánann. Þetta er 18. keppnisár Birgis i körfu- knattleik, en hann hóf að leika með meistaraflokki Armanns aðeins 15 ára gamall, og 16 ára gamall lék hann sinn fyrsta a- landsleik. Þrátt fyrir fyrstu körfuna nægði hún Njarðvikingunum skammt i leiknum við Ármann. Reykjavikurliðið, sem margir telja að verði íslandsmeistari i ár. náði fljótlega yfirhöndinni og sigraði i leiknum með 16 stiga mun — 78:62. öllu meiri spenna var i leiknum á eftir, en þar áttust við nýlið- arnir i deildinni, Snæfell, sem er eins og nafnið bendir' til af Snæfellsnesinu, og 1R. Snæfell- ingarnir stóðu vel i ÍR-ingunum, sem mega muna fifil sinn fegurri i 1. deild. Þeir höfðu það samt af að sigra nýliðana, þótt ekki væri á sem glæsilegastan hátt, eða aðeins með 5 stigum — 66:61. Snæfellingarnir léku aftur i deildinni i gær, og mættu þá 1S i Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Þar tókst þeim ekki eins vel upp og á móti 1R — stúdentarnir sigruðu með 21 stigs mun — 70:49. Fjórði leikurinn i 1. deild um helgina var leikur Vals og HSK og lauk honum með stórsigri Vals- manna, sem skoruðu 80 stig á móti 54 stigum Skarphéðins- manna. Áttunda liðið i 1. deild — KR — átti fri um þessa helgi, og einnig i kvöld, en þá verður leikið i Reykjavikurmótinu i Laugar- dalshöllinni. Eigast þá m.a. við Armann og 1S. Einn mikilvægur leikur fór fram i 2. deild um helgina. Fram, sem sigraði i 3. deild i fyrra, lék við Borgarnes, sem féll úr 1. deild. Þeim leik lauk með fjögra stiga sigri Borgnesinganna. —klp NYTT TOLUBLAÐ KEMUR ÚT í DAG EFNI M.A.: Visir. Mánudagur 21. október 1974. Visir. Mánudagur 21. október 1974. FH hafði það - komst í 2. lotu Evrópumótsins! FH hafði það af að merja sigur gegn sænsku meisturunum SAAB í síð- ari leik liðanna í Evrópu- keppninni í handknattleilo sem fram fór í Laugar- dalshöllinni á laugardag- inn. Munurinn í þeim leik var tvö mörk og nægðu þessi tvö mörk FH-ingum til að komast áfram í keppninni með saman- lagða markatölu 36:35. Það hefði nægt þeim að sigra með einu marki i siðari leiknum — þá hefðu þeir komizt áfram á betri markatölu, eða fleiri mörk- um skoruðum á útivelli, en ef jafntefli hefði orðið i þessum leik hefði SAAB komizt áfram. Leikur FH var langt frá þvi að vera glæsilegur og litið var það betra hjá Sviunum, sem voru meö hálft lið að þeirra eigin sögn. Varnarleikur FH var langt frá þvi að vera góður — markvarzlan litil sem engin, nema á fyrstu minút- unum — og sóknin einhæf. FH-ingar skoruðu 16 mörk i Hann er hátt yfir öllum, hann Geir Hallsteinsson, þegar hann lætur þetta skot riöa af á SAAB-markiö I Evrópulciknum á laugardaginn. Sviarnir voru sammála um, aö þeir hefðu leikið sér að FH I báðum leikjunum, ef Geir hefði ekki leikið með — hann hefði komiö FH áfram. Ljósmyndir Bj. Bj.... Dómarafundur Handknattleiksdómarafélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn i Valsheimilinu i kvöld og hefst hann kl. 20.30. Stjórnin. leiknum — Sviarnir 14 — og af þessum 16 mörkum skoruðu þeir Geir Hallsteinsson og Viðar Simonarson 14 mörk, eða 7 mörk hvor. Hin tvö mörkin skoruðu þeir Jón Gestur og Sæmundur Stefánsson. Fleiri voru um bitann hjá SAAB og þar var markvarzlan i allt öðr- um gæðaflokki en hjá FH. 1 markinu stóð Hans Jonsson, sem varði meistaralega hvað eftir annað og var ásamt Geir bezti maður leiksins. Menn bjuggust við miklum slagsmálum I þessum leik, eins og I fyrri leiknum, en mjög góðir dómarar — Norðmennirnir John Hugo Larsen og öivind Bolstad — héldu leikmönnum i skefjum með ákveðnum dómum og brottrekstri af velli. Alls visuðu þeir 4 FH-ing- um út af fyrir grófan leik, en 3 Sviar fengu að kæla sig. Leikurinn var harður, en ekki teljandi grófur. FH-ingarnir voru harðari af sér og brutu oft hálf klaufalega á mótherjunum, sem kunnu betur að brjóta „pent”. Aftur á móti kunnu Hafnfirðing- arnir betur að hemja skapið og græddu tvimælalaust þessi tvö mörk, sem þeir þurftu, á því. Svi- arnir voru meö eilifar kvartanir og hefur það trúlega kostað þá sigurinn — eða a .m .k. jafntefli — I þessum mikilvæga leik. Geir Hallsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins, en heldur var fátt um mörk fyrstu minút- urnar — staðan var 2:2, þegar 17 minútur voru búnar af leiknum. A siðustu minútum hálfleiksins færðist svolitið fjör I markaskor- unina, en þá breyttist staðan úr 5:5 I 9:6 fyrir FH. Sviarnir skoruðu 3 fyrstu mörk- in i siðari hálfleik og jöfnuðu þar með i 9:9, en þeir Viðar og Geir komu FH aftur yfir og sáu um það, að sænsku meistararnir næðu aldrei forustunni. Þeir náðu að jafna 11:11 og 12:12, en FH komst i 14:12 og svo 16:13. Sviarn- ir áttu siðasta markiö i leiknum — þeirra 14. mark — og á siðustu sekúndunni áttu þeir gullið tæki- færi, en Hjalti Einarsson, sem lék sinn 400. leik með FH, varöi þá glæsilega — og i eina skiptið i sið- ari hálfleiknum. Eins og fyrr segir skoruðu þeir Geir og Viðar 14 af 16 mörkum FH i leiknum. Skottilraunir þeirra voru margar, sérstaklega þó hjá Viðari, sem var með mjög slæma útkomu — liklega þá verstu sem hann hefur átt um dagana. Hann hefur varla verið með undir 20 skottilraunir, þar af 4 viti, sem gáfu 3 mörk. 1 vörninni bar Gils Stefánsson af öðrum FH-ingum og notaði hraustleg tök Svianna eins og I fyrri leiknum. Voru þeir sýnilega hálfhræddir við hann og vildu helztvera á öðrum staö i vörninni en þar sem hann var. Mörk Svianna i þessum leik skoruðu: Bo Lennart Persson 5, Lars Jonsson, Per Ove Anders- son, Greger Larsson og Jan Jons- son 2 mörk hver og Jan-Ake Fredrikson eitt mark. Mörk FH Gaman vœri að fó Árósa-KFUM nœst! — segir Geir Hallsteinsson í sambandi við Evrópukeppnina „Það var hálfgerð tauga- veiklun I þessum leik hjá ðkkur, og hann var langt frá þvi að vera góður,” sagði Geir llall- steinsson, er við töluðum við hann eftir leikinn við SAAB. „Við vorum hræddir, þegar við sáum, að Gunnar Einarsson gat ekki leikið vegna meiðsla, sem hann hafði orðið fyrir kvöldið fyrir ieikinn, og svo sló markvörðurinn þeirra okkur al- veg út af laginu með að verja ó- trúlegustu skot. Þeir spiluðu lika skynsamlega með þennan litla mannskap, sem þeir höfðu, og fengu ótrú- lega mikið út úr honum. En þetta er áð koma hjá okkur, og við verðum sterkari og sterkari með hverri viku.” — Hvaða lið ég vildi helzt fá sem mótherja I næstu umferð? „Mér er sama hvað við fáum, en þó held ég, að það gæti orðið gaman að fá dönsku meistarana Arhus KFUM.” skoruöu: Geir Hallsteinsson 7, Viðar Simonarson 7, Sæmundur Stefánsson 1 og Jón Gestur 1. -klp- Haukar í úrslit! Haukar tryggðu sér rétt til að leika til úrslita I meistaraflokki karla I Reykjanesmótinu I hand- knattleik með þvi að sigra Akur- nesinga..þeir eru nú ekki af Reykjanesinu! - 34:14 I slðasta leik sinum I a-riðli mótsins, sem fram fór I gær. Önnur úrslit þá urðu þau, að FH sigraði ÍBK 20:7 og Breiðablik sigraði Stjörnuna 16:13. Ein umferð er eftir I m.fl. — fyrir utan úrslitaleikinn — og fer hún fram n.k. sunnudag. Þá lcikur Grótta við ÍBK i b-riðlinum, og ef Grótta sigrar i þeim leik, verður úrslita- leikurinn á milli Hauka og Gróttu, en ekki Hauka og FII eins og allir höfðu reiknað með. —klp Við erum beztu vinir „Ég hef aldrei heyrt um það áður, að leikmenn i handknatt- leik hafi verið dæmdir I keppn- isbann af alþjóðasambandinu fyrir grófan leik,” sagði sænski leikmaðurinn Leif Olsson, sem var ásamt Ólafi Einarssyni dæmdur I keppnisbann fyrir sið- ari leik FH og SAAB i Evrópu- keppninni. „Þetta var smáslagur á milii okkar i fyrri leiknum og liklega báðum að kenna. En hann gaf samt ekki tilefni til að setja okk- ur I leikbann, frekar en margt annað, sem skeði I þeim leik og öðrum leikjum, sem ég hef tekið þátt I. Við erum góðir vinir eftir þetta — þekkjumst likiega enn betur fyrir vikið og höfum báðir gaman af þvi að hafa brotið þetta blað i sögu handknatt- leiksiþróttarinnar. Við I SAAB héldum, að við kæmumst áfram, þegar viö fréttum, að við ættum að leika við FH I 1. umferð keppninnar, en við verðum nú aö sætta okkur við að vera slegnir út. Það hefði aldrei gerzt, ef viö hefðum haft fullt lið og jafnvel ekki, ef þiö hefðuð ekki haft Geir Hall- stcinsson. Hann sá um að koma FH áfram og er þvi ekki neitt undarlegt, þótt menn segi hann einn bezta handknattleiksmann heims —ég er a.m.k. sammála þvi.” Marði tveggja marka sigur gegn sœnsku meisturunum Saab — Viðar og Geir skoruðu fjórtón af sextón mðrkum FH i leiknum Nú var ólíkt betur dœmt „Þessi leikur var eins harður og fyrri leik- urinn, en hann var bara ólikt betur dæmdur af þessum norsku dómurum en af þessum dönsku, sem við fengum þá”, sagði Birgir Björnsson þjálfari FH eftir leikinn. „Ég er ánægður meö að komast áfram en ekki neitt sérlega ánægður með leikinn hjá strákunum. en þetta er gott, þegar þess er gætt, að við gátum ekki notaö bræöurna ólaf og GunnarEinarssyni, en það var mikil blóö- taka fyrir okkur. Nú biður maður bara spenntur eftir þvl að vita, hvaða lið við fáum I næstu umferð. Ég vona, að það verði belglsku meistararnir, en þeir fengu þá ensku I 1. umferð og hijóta að hafa unnið þá. Lið úr austurblokkinni vildi ég helzt ekki fá fyrr en I þriöju eða fjórðu um- ferð, en þá verðum við llka komnir I gott form”. FH er allt of einhœft lið! „Þaö var meiri handbolti I þessum leik enl þeim fyrri, sem var einn grófasti ieikur , sem ég hef séð um dagana” sagði bezti mað- ur SAAB I leiknum á laugardaginn, mark- vörðurinn Hans Jonsson, sem hefur lcikið 26 sinnum I sænska landsliðinu. „En viö vorum aðeins með háift liö og get- um ekkert þannig. Viö sýndum þaö I fyrri leiknum, sem við áttum aö vinna með fimm mörkum, ef allt heföi veriö I lagi; I þessum leik og I fyrsta leiknum i deildinni um slðustu helgi, en þá töpuðum við fyrir Hellas 17:12. FH er ekki eins gott lið og ég reiknaöi með. Við hefðum leikiö okkur að þvl með þessu hálfa liöi ef það hefði ekki haft Geir Hall- steinsson. Það hefur enga linumenn og mjög slaka markmenn, en góðar skyttur fyrir ut- an. Það er of einhæft I nútlma handknattleik. Þessir dómarar voru betri en I fyrri leikn- um —en samt ekki nógu góöir. Það er hart að fá á sig 3—4 mörk, sem greinilega eru á llnu. En ég kenni þeim samt ekki um tapið þvl að þessu má maöur alltaf búast við. En það er eitt, sem ég öfunda ykkur af hér á islandi, það eru áhorfendurnir — þeir eru stórkost- legir I einu orði sagt og þeir skemmtilegustu sem maður spilar fyrir”. Léku of mikið með munninum! „Við höfðum frétt af fyrri leiknum og séö fyrirsagnir úr sænskum blöðum I blöðunum hér og bjuggumst þvi við hinu vcrsta” sögðu norsku dómararnir John Hugo Larsen og öi- vind Bolstad, sem báðir hafa margsinnis dæmt áöur hér á landi. „En þetta var ekki svo hroðalega erfitt, þótt svo að hcitt hafi verið I kolunum. Við reiknuðum með hörku og bjuggum okkur undir það, en þetta var oft meiri leikaraskap- ur en harka, sem menn voru aö sýna, eins og t.d. á lokaminútunum. Það var ekki mikill handbolti I þessum leik — allt of mikið fum og læti til að hægt sé að telja þetta góðan leik. En.islenzka liðið var bctra og það hélt sér á mottunni nær allan timann. Það var ekki mcð ncitt röfl og aðfinnslur eins og það sænska, sem spilaði meira með munninum en höndunum og höföinu. Ef sænsku leikmennirnir heföu hagað sér eins og allir Islenzku leikmennirnir — ekki verið að láta okkur fara i laugarnar á sér og kenna okkur um það, sem miður fór — hefði það sigrað i þcssum leik. Það einbeitti sér meir að því en leiknum og féll á þvi.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.