Tíminn - 25.06.1966, Blaðsíða 13

Tíminn - 25.06.1966, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 25. júní 1966 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Elns og sagt var frá á íþróttasíSunni í gær, lék Brazilía „upphituna-.-leik" á Spáni fyrr í vikunni og sigraSi meS 5:3. Pele skoraSi þrjú mörk — og á myndinni hér aS ofan sést hann lengst til hægri skora eitt af mörkunum. Almennt er Brazilíumönnum spáS sigri í heimsmeistarakeppninni, sem háS verSur i næsta mánuði. Tvísýnt í 2. deild Alf-Reykjavík. — Tveir leikir fóru fram í 2. deild fslandsmáts- ins i knattspyrnu í fyrrakvöld — báðir í a-riðli. f öðrum leiknnm mættust Haukar og Vestmanna- eyingar og urðu úrslit þau, að Haukar unnu með 5:1, og hafa þar með tekið forystu í riðlinum. f hinum leiknum mættust íþrótta- bandalag Suðurnesja og Fram. Vann Fram þann leik auðveldlega, 6:0. Með þessum síðustu úrslitum hafa öll liðin í a-riðli tapað 2 stigum eða meira og er keppnin því mjög tvísýn. Staðan er nú þessi: A-riðilI: . Haukar 4 2 1 1 9:5 5 Víkingur 3 2 0 1 5:4 4 Fram 2 1 0 1 6:1 2 Vestm. 2 1 0 1 4:7 2 Suðurn. 3 0 1 2 4:11 1 B-riðiIl: Breiðablik 3 2 1 0 4:2 5 ísafjörður 4 2 0 2 7:7 4 FH 3 1 0 2 4:5 2 Sigluf. 2 0 1 1 2:3 1 Dennis Law á sölulista Manchester Utd. hefur sett frægasta leikmann sinn, Skot- ann Dennis Law, á sÖlulista. Ástæðan er sú, að Law gerði mjög háar kröfur, sem félagið taldi sig ekki geta orðið við. Setti Matt Busgy, framkv.stj. Manchester Utd. því Law á sölulista í fyrrakvöld. Búizt er við, að Law hverfi úr brezku knattspymunni, en talið er, að fjársterk félög á meginlandinu muni bjóða í hann 150—200 þús. sterlingspund. Law byrjaði feril sinn hjá Huddersficld aðeins 16 ára gamall. Árið 1960 keypti Manch City hann fyrir 55 þús. sterl- ingspund, sem var metupphæð á þeim tíma. Aðeins ári síðar hvarf hann frá Manchester til Torino á Ítalíu fyrir 100 þús. sterlingspund. Manchester Utd. Dennis Law keypti hann svo 1962 fyrir 115 þús. sterlingspund, sem var metupphæð á Brctlandscyjiim fyrir knattspyrnumann. Law hefur síðan leikið með Manch- ester Utd. við góðan orðstír og orðið bæði dcildar og bikar- meistari með félaginu. Hann er eins og kunnugt er, skozk- ur Iandsliðsmaður og lék m.a. með heimsliðinu á móti Eng- landi. Nýr grasvöllur opnaður á Selfossi: Heimamenn vígðu völl inn með stórum sigri Valsmenn deild eftir Valur sigraði Þrótt í 1. í' deildar keppninni i knattspyrnu i Ifyrrakvöld með 4:1 og hefur þar með tekið forystu í keppninni, Sveinamót háð um helgina hafa forystu í 1. sigur gegn Þrótti |hlotið 5 stig eftir 4 leiki. Leikur |inn í fyrrakvöld var að mörgu i leyti vel leikiun og skemmtileg- ur sérstaklega í fyrri hálfleik en : þá var um mjög jafna viðureign að ræða. Hans Guðmundsson, skoraði fyrsta mark Vals með lang skoti cn Ölafur Brynjólfsson jafnaði fyrir Þrótt þegar u.þ.b. 15 mínútur voru liðnar. Fyrir hlé' skoraði Hermann Gunnarsson 2:1 fyrir Val með skalla eftir fyrirgjöf Reynis á kantinum. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik. í sípari hálfleik náðu Vals menn snemma meiri ítökum í leiknum og pressuðu til að byrja með fast að marki Þróttar. Her- mann miðherji átti uppptök að þriðja marki Vals sem Ingvar rak endahnútinn á — og fjórða og síðasta markið skorðai Ragnar. Það sást greinilega á leik Vals í fyrrakvöld að liðið stefnir að sigri í mótinu, og lætur sér ekkert minna nægja. Það er athyglisvert að liðið hefur skorað 8 mörk í hinum 4 leikjum, eða 2 mörk að meðalatali í leik. Framherjarn ir eru óragir við að skjóta — og Framhald á bls. U Sveinameistaramót íslands fer fram á Laugardalsvellinum um helgina, þ.e. í dag og á morgun og hefst kcppni báða daga kl. 14. Tilkynnt hefur verið um þátt- töku 39 sveina frá 7 félögum og héraðssamböndum, en búast má við, að einhverjir fleiri bætist í hópinn um helgina. íþróttafélag Reykjavíkur er með flesta þátttakendur eða 10 alls, og F.H. þar næst með 9. Það verður áreiðanlega mjög skemmtilegt að sjá hessa ungu drengi þreyta keppni um helgina og er ástæða að hvetja fólk til þess að fjölmenna á Laugardals- völlinn og horfa á piltana og hvetja þá í keppninni. Margir Framhald á bls. 14 Tilraunalið og pressulið valin Alf — Reykjavík- — N. k. þriðju dagskvöld fer fram á Laugardals vellinum pressulcikur — og mæt as'. tilraunalið landsliðsnefndar og lið blaðamanna. Lið lands- Iiðsnefndar er skipað leikmönn- um yngri en 24 ára, en eins og kunnugt. er, leikur landsliðið und ir 24 ára gegn Dönum 4. júlí- Lið jblaðamanna er skipað leikmönn- um yngrj og eldri en 24 ára. Lið landsliðsnefndar er skip að eftirtöldum leikmönnum, talið frá markverði til vinstri útherja: Guttormur Ólafsson, Þrótti, Jó hannes Altason, Fram, Guðni Kjartansson, Keflavík, Magnús Torfason, Keflavík, Ársæll Kjart ansson, KR, Magnús Jónatansson, Akureyri, Hörður Markan, KR, Eyleifur Hafsteinsson, KR, Her- Framhald á bl. 14 Alf-Reykjavík, föstudagur. Sl. þriðjudagskvöld var vígður á Selfossi nýr knattspyrnuvöllur, stór grasvöllur, en unnið hefur verið að byggingu hans undanfar- in ár. Völlurinn var opnaður með leik í fslandsmóti 2. flokks óg léku Selfoss og Breiðablik úr Kópavogi. Tveir landsleikir Vestur-Þýzkalar.d og Júgóslavía léku landsleik í knattspyrnu i fyrrakvöld og urðu úrslit þau, að V-Þjóðverjar sigru u með 2:0. Þá gerðu Spánn og Uruguay jafn- tefli, 1:1, i leik, sem fram fór í La Corunni á Spáni. Svo fóru leikar, að piltarnir á Selfossi unnu með 5 mörkum gegn engu. Má því segja, að heima- menn hafi vígt völlinn á viðeig- andi hátt. Annars virðist sem svo, að á Selfossi sé í uppsiglingu efni- legt knattspyrnulið þar sem 2. flokkur staðarins er. í gærkvöldi léku piltarnir æfingaleik gegn Víking á nýia grasvellinum og unnu með 8:1. Áður hafa piltarn- ir leikið æfingaleiki gegn jafnöldr- um sínum í Reykjavík og náð góð- um árangri. Á sunnudaginn stend- u r svo til, að þeir leiki gegn ungl •ilandsliðinu og verður þá vænt 1 ■ cga leikið á Selfossi. Opnun hins nýja grasvallar á Selfossi markar tímamót i íþrótta sögu staðarins - og verður von andi til enn frekari eflingar íþrótta á Selfossi. Knattspyrnuleikir um helgina Alf — Reykjavík. — Mikið verður um að vera í knatt- spyrnunni í dag og á morgun leikið í 1. og 2. deild og auk þess fara fram margir leikir i yngri aldursflokkunum. Á morgun, sunnudag, leika i 1. deild á Akureyri heima menn gegn Akranesi og verð- ur þetta fyrsti leikurinn fyrir lorðan á þessu keppnistíma- hili. Á Njarðvíkurvellinum leika Keflvíkingar gegn KR. Ráðir Ieikirnir hefjast klukkan 16 Þá leika í 2. deild á ísa i~——m—miiririiniwiw i« firði heimamenn gegn Siglu- firði Á morgun á einnig að fara fram leikur á Selfossi í 4. fl UMF Selfoss gegn ÍBS Rl. Í5. í dag kl. 16 leika í Kópa- vogi í 2. deild Breiðablik og FH. í iandsmóti 2. fl. leika á Akranesi heimamenn gegn Vík ing kl. 16. í Hafnarfirði leika í landsmóti 5. fl. kl. 15 FH og ÍBS og strax á eftir í 3 flokki Haukar og ÍBS. í Kefla vík eiga svo að leika i dag í landsmóti 3 fl ÍBK og FH kl 16. Á Selfossi leika kl. 16 í 5 fl. UMF Selfoss og Haukar. Þá leika loks í landsmóti í dag á Víkingsvelli Víkingur og Akranes í 5. 4. og 3. flokki Hefst fyrsti leikurinn kl. 14 Rvíkurmóti yngri flokk annna verður haldið áfram ; dag. Valsmenn leika gegn Þrótti — og Fram gegn KR Fara leikirnir fram á Fram vellinum, Valsvellinum, KR- vellinum, Háskólavelli og Mela velli. Fyrstu leikir hefjast kl 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.