Vísir - 26.02.1975, Blaðsíða 2

Vísir - 26.02.1975, Blaðsíða 2
2 Vlsir. Miövikudagur 26. febrúar 1975 risBsm-- Viltu fá zetuna aftur? Þorgrimur Einarsson, gjaldkeri: — Ég vil gjarnan hafa zetuna, já. Mér finnst hún fegra málið og gera það að verkum, að auðveld- ara er að rekja uppruna þess. Eins lærði ég hana i skóla. Flosi ólafsson, leikari: — Mér finnst, að zetan megi fara burt ásamt mörgu öðru, sem stendur islenzku skrifuðu máli fyrir þrif- um. Júiius Karlsson, nemi: — Ég vil tvimælalaust hafa hana. Ég hef vanizt henni og vil þvi hafa hana áfram. Mér finnst máliö fallegra, réttara og auðskiljanlegra með henni. Guðmundur Steinsson, prentari: — Mér er alveg nákvæmlega sama. Sjálfur nota ég hana áfram. Guðmundur Sveinsson, verka- maður: — Ég er meö þvi að hún fái að vera áfram. Þetta er vani fremur en spurningin um fegurð. Zetan er búin aö vera I málinu svo lengi. Björn Ingþór Hilmarsson, raf- virkjanemi: — Ég vildi frekar sleppa henni. Hún var alltaf að fltekjast fyrir mér. Eini staður- inn, sem ég vil hafa zetuna áfram á er á bilnúmerum. Ég þekki svo marga á Z-númerum, að ég sakn- aði þess ef þeir misstu zetuna sina. Myndin sýnir hluta af þvi svæöi Kópavogs, sem miöbæjarskipulagiö nær til. Næst á myndinni eru ibúöa- blokkir, sem siöar meir eiga aö lykjast utan um garö. Undir þeim eru biiastæði, sem á daginn eiga aö nýtast fyrir starfsemi á svæðinu, en á nóttunni fyrir Ibúa húsanna. A miöri mynd er félagsheimilið, en milli þess og bankahússins yzt til vinstri sér ofan á tveggja hæöa bílageymsluna, sem veriö er aö reisa. — Svæöið vestan við gjána mun eiga að blöa um sinn, en þar er meðal annars ráðgert, að Menntaskóli Kópavogs rlsi. — Ljósm. Bragi. Miðbœr — þar er blandað saman starfsemi og íbúðum Markmiðið með miðbæjar- skipulagi Kópavogs er að tryggja eftir getu, að þar veröi ekki „dauð borg” eftir lokunar- tinia skrifstofa og verzlana. Meiningin er aö tengja þar sam- an eftir megni þjónustumiö- stöövar, athafnir og umferö, og heimili. Þar veröa þvl ekki að- eins fyrirtæki, heldur lika Ibúö- ir. Miðbæjarkjarninn er hugsað- ur hringur, sem dreginn er með brúna milli Borgarholtsbrautar og Digranesvegar sem næst i miðpunkti. Að vestan nær hringurinn að húsunum vestan við kirkjuna, að austan inn á leikvöll Kópavogsskóla, að Vill ekki vínhús í Keflavík Suöurnesjamaöur hringdi: „Ég vil skora á heilt hugsandi Suðurnesjamenn að taka hönd- um saman um það að hindra opnun vinveitingahúsa i Kefla- vik. Fanatiker kunna einhverjir að segja, sem lesa þessa áskor- un mina, en ég vil biðja þá hina sömu að doka andartak við og hugleiöa málið. Fram til þesa höfum við verið blessunarlega laus við vinveit- ingahús hér á Suðurnesjum. Það hefur þó ekki komið i veg fyrir það, að þeir sem vilja öðru hvoru lyfta sér upp með glas i hendi, hafa getað látið það eftir sér. Þeir hafa einfaldlega skroppið til Reykjavikur eða Hafnarfjarðar þar sem vin- veitingahus eru. Eins eru alltaf öðru hverju haldnar félagssam- komur i samkomuhúsum hér syöra þar sem vin er á boðstólum. Enn um sögu Svövu Frú M.L. skrifar: ,,Ég vil þakka H.E. fyrir fram- lag sitt til gagnrýni á sögu Svövu Jakobsdóttur, sem nefnd var „Saga handa börnum”. Hún var frumflutt 26. janúar og ekki mátti minna vera en að flytja þennan óþverra aftur 22. febrúar. Ég er furðu lostin, að enginn af klerkum okkar, kennurum, sálfræðingum og barnaverndar- mönnum hafi látiö til sin heyra um þessa barnasögu, svo falleg sem hún var, og likleg til að gefa gott fordæmi. Þaö er ekki litiö framlag, sem Svava Jakobsdóttir leggur til kvennaársins 1975. En ég vænti þess, að Rikisútvarpið og aðrir fjölmiðlar, að ógleymdum bókaútgefendum, hlifi okkur viö sögum eftir Svövu Jakobsdótt- ur. Hvers er að vænta? Mig langar til að fá þvi svar- að, hvers vegna þetta for- kastanlega verk er kallað „Saga handa börnum”. Maður fyllist hryllingi og viðbjóði, að nokkur manneskja, sem á að heita með heilbrigöa skynsemi, skuli geta borið svona nokkuð á borð. Er engin ritskoðun i okkar háttvirta Rikisútvarpi? Ég er nú svo tornæm, að ég get ekki séð, hvaða tilgangi svona skrif eiga að þjóna. Ef þetta á aö vera eitthvaö skemmtilegt og fyndið fer það fram hjá mér.” En litum nú á það, sem tekur viö, ef vinveitingahús opna hér i löngum bunum. Þau verða trú- lega opin 20 ára og eldri. Staöirnir yrðu jafnvel opnir ungu fólki á aldrinum 18 og 19 ára eins og sum vinhúsin i Reykjavik. Þegar lokkandi vinhús verða opnuð, þarf enginn að efast um, hvernig fer. ölvun eykst. Þeir sem drukkið hafa i hófi freistast til að teygja sig oftar i glasið þegar það er rétt að þeim á svo freistandi hátt. Ég er ekki sá einfeldningur, að gera mér ekki grein fyrir þvi, að það er vin á samkomum unga fólksins á dansleikjum hér syðra. Þeir komast alltaf yfir vin með einhverjum hætti ef þeir nenna að bera sig eftir „björginni”. En gerum þeim það ekki of auðvelt. Það er lika guðsþakkarvert á meðan margir hinna eldri þurfa að hafa talsvert fyrir þvi að „detta i það”. Gerum þeim þaö ekki heldur of auðvelt, að leggja lag sitt við Bakkus.” Það var þetta með Ijónin_________ Jói hringdi: „Ég hringi ekki til að nöldra. Aðeins til að segja ykkur brand- ara, sem gæti verið góður með öllu nöldrinu i lesendadálkum Visis á morgun. Sagan er svona: Móðir i Ameriku fór með son sinn i dýragarðinn og sýndi hon- um öll dýrin. Þau voru á leiðinni út, þegar strákurinn spurði móður sina: — Mamma, hvernig elskast ljónin? — Æ, ég veit það ekki, vinur. Pabbi þinn og félagar hans eru allir i Kiwanis.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.