Vísir - 04.07.1975, Blaðsíða 7
Vlsir. Föstudagur 4. júli 1875.
cTVIenningarmál
Satt að segja brá mér
nokkuð, þegar ég
heyrði þær fréttir að
Eyjólfur J. Eyfells
ætlaði að halda yfirlits-
sýningu á verkum sin-
um að Kjarvalsstöðum.
Ég hélt reyndar að sá
mæti maður væri
horfinn á vit feðra
sinna fyrir löngu og hér
væri einhver að gera
aðr a Ra gnheiði
biskupsdóttur i
málaralistinni.
En sem betur fer reynist
Eyjólfur vel lifandi, 89' ára
gamall og nálgast 90 árin, og
hafa afkomendur hans tekið
saman þessa sýningu á úrvali
verka hans frá upphafi, 125 að
tölu. Er þetta ekki sölusýning,
og eru verkin öll í einkaeign.
landinu, þvi túlkunin er frjálsari
en oft áður.
Þegar þessi yfirlitssýning er
athuguð sem sú heild, sem lifs-
starf málara er, kemur I ljós
það sem margir vissu, þ.e. að
Eyjólfur Eyfells var ekki braut-
ryðjandi eða stórbrotinn málari
og má e.t.v. segja, að hann og
fleiri „bókstaflega málandi” is-
lenskir listamenn hafi haft slæm
áhrif á islenska áhugamálara.
En Eyjólfur hefur i hógværð
sinni vart ætlað sér að ryðja
nýjar brautir, heldur aðeins að
vera sjálfum sér samkvæmur
og leyfa öðrum jafnframt að
njóta þess sem hann sá á
ferðum sinum. Og liklega skaut
Helgi Pjéturss. ekki langt fram-
hjá marki, er hann sagði 1930
um Eyjólf að hann væri
„bliðlyndastur islenskra
málara.” Margur málarinn
hefur séð fram á verri eftir-
mæli.
Sýning Eyjólfs J. Eyfells
stendur til 6. júli.
Elsta málverkið sem hér er til
sýnis er frá 1908, af Gaulverja-
bæ og gefur það tóninn fyrir
vinnubrögð Eyjólfs fram á
þennan dag. Er það laust og
varfærnislega málað og togast
þar á löngunin til að túlka og
löngunin til staðlýsingar og
verður hið siðarnefnda all-
jafnan ofan á i myndum hans.
Einnig eru stærð þessarar
myndar og litir hennar nokkuð
einkennandi fyrir verk Eyjólfs
sem heildar, — þau eru yfirleitt
smá og er myndfleti skipt all-
jafnt milli forgrunns, fjalla og
himins, og litir eru aldrei
glannalegir. Þótt einkennilegt
megi virðast, er túlkun Eyjólfs
frjálsari i þessari mynd frá
1908, en þeim sem á eftir fylgja,
en það eru að mestu skipa-
myndir t.d. af „Jóni forseta”
(1917) og „Gullfossi” (1915). Er
greinilegt að Eyjólfur hefur þá
verið orðinn dús við islenzka
náttúru, en hefur átt erfitt með
að fella þessa stóru möstruðu
dalla inn i skaut hennar. Senni-
lega hafa þau höfðað meir til
staöarmálarans i Eyjólfi og
leggur hann þvi alla áherzlu á
nákvæma lýsingu þessara tima-
mótaskipa á reykháfa þeirra og
kýraugu. Nær barnslega smá-
smugulega teiknuð liggja þessi
skip eins og útklippt áihafi sem
myndast við að bylta sér og
þeim. Enda tekur Eyjólfur aftur
til við að mála sitt landslag. 1
þvi er enginn ofsi, heldur er yfir
þvi rómantiskur rósemis og
værðarhjúpur, eins og á eilífu
vorkveldi, og einu merkin um
landnám eru hús eða kofar sem
oft virðast samgróin landinu.
Eöli landslagsmálverks Eyjólfs
breytist litið með árunum, en
sem teiknara fer honum fram.
Fram yfir 1930 máfinna klaufa-
lega og harða teikningu i verk-
um hans, útlinur fjalla leggjast
eins og pappirsörk ofan á bak-
grunn, en I seinni verkum hans
losnar mikið um vinnubrögðin
ogpensilför hans verða frjálsari
og sneggri Millispil á ferli
Eyjólfs er svo dvöl hans i
Þýskalandi 1923-24 undir hand-
leiðslu prófessors Castelli i
A Póstsendum
^ um land allt
SPORTlt
HLEMMTORGI - SÍMI 14390
DÚS VIÐ NÁTTÚRUNA
Dresden. Frá þeim tima eru lik-
lega (ég gat ekki komið auga á
ártöl) myndirnar nr. 100-104,
m.a. myndir af fólki. Merki-
legust þeirra er mynd af göml-
um manni (nr. 103) þar sem
Eyjólfur sýnir sæmilegt vald
yfir akademiskri höfuðmálun og
athyglisverð er einnig kópía
hans af barnshöfði þar við
hliöina. Synist mér Eyjólfur
vera aö kópera eitt af hinum
viðkvæmnisiegu börnum Spán-
verjans Murillo úr Dresden
listasafninu. Sýnir það nokkuð á
hvaða leið list Eyjólfs stefndi.
Þennan höfuðlærdóm notaði
hann sér ekki er heim kom, 1924,
þvi landslagið átti hug hans
allan.
Eyjólfur málar enn og eru
einna nýjustu myndir hans frá
Spáni (nr. 78-83) baðaðar sólar-
ljósi en lausar við sólroðavæmni
og er eins og Eyjólfur telji sig
ekki þurfa að lýsa sólarlöndum
eins nákvæmlega og föður-
I uflleguno Látið okkur aðstoða yður
Bjóðum m.a. tjöld í miklu úrvali, svefnpoka, vindsængur,
bakpoka, tjaldborð og stóla, kælitöskur, sjónauka og ótal
margt fleira. Hvergi betra verð
VÍSIR flytur helgar-
fréttirnar á mánu-
dógum. Degi fyrr en önnur dagblöð.
*—7 (gerist áskrifendur)
Fyrstur meó
fréttimar
vism
Vísir vísar á viðskiptin
VEIÐIMENN
Hjá okkur fáið þið
allt i veiðiferðina
m.a. stangir, hjól, línur, flugur, túpur,
lúrur, vöðlur, veiðitöskur, léttar
ogpægilegar veiðikápur og jafnvel
maðkinn.
Hvergi meira úrval
HVAÐ VANTAR?