Vísir - 24.07.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 24.07.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Fimmtudagur 24. jiíll 1975. 3 Orlofsheimili félagasamtakanna: Geta ekki annað eftirspurninni Viða um land reka hin ýmsu félagasamtök orlofsheimili, það er sumarhús, sem félagsmcnn geta fengið leigð I viku tlma. Flest þessara húsa eru mjög fullkomin, hafa rafmagn og hita og eru búin helztu heimilistækj- um, eins og eldavél og Isskáp. Leigan á þessum húsum fyrir vikuna er á bilinu 5000-9000 kr. Þegar blaðamaður Visis hafði samband við nokkra forsvars- menn orlofsheimila og spurði um aðsókn að þessum sumar- húsum, þá var sama svarið alls staðar: Hjá okkur hefur verið fullbókað siðan um mánaða- mótin mai-júni og allt fram i september. Að Munaðarnesi i Borgarfirði, þar sem Bandalag starfsmanna rikis og bæja á 67 sumarhús, er mjög mikil aðsókn. Sem dæmi um þetta má nefna, að Starfs- mannafélag rikisstarfsmanna á 10 bústaði og getur þannig ráð- stafað 170 vikum yfir sumarið. Sex hundruð aðilar sóttu um þessa bústaði. Félögin vinza þannig úr umsóknum, að þeir félagar, sem hafa verið lengst i félögun- um eða félagsmenn, sem ekki hafa áður fengið úthlutun eru látnir ganga fyrir. Þrátt fyrir þessa miklu að- sókn að bústöðunum hefur verið litil aðsókn að tjaldstæðunum, að sögn forsvarsmanna. A staðnum er starfrækt verzlun, sem er einnig notuð af nágrannaorlofsbyggðum bæði á Svignaskarði og við Hreðavatn. Iðja, félag verksmiðjufólks, leigirút7 bústaði i Svignaskarði auk þess eru ýmis önnur félög með bústaði á þessu svæði.Eru bústaðirnir um 19 að tölu alls. Fulltrúi Iðju sagði að þessir bústaðir nýttust ekki eins vel, þar eð fyrirtækin færu yfirleitt öll i fri á sama tima.júni og júli. Þar sem svo mikil eftirspurn er eftir bústöðum, hefur verið gripið til þess ráðs að láta draga um hverjir fengju húsin og hefur fólki, sem sótti um, veriö boðið að vera viðstatt. A þessu svæði hafa ýmis félög I hyggju að byggja sumarhús á næstu árum. í skipulagi er ráð- gert að byggja 30 til viðbótar, siðan á að vera eitt miðstöðvar- hús með matsölustað, sauna- böðum og þess háttar. Félög innan Sjómannadags- ráðs og Sjómannasambands Is- lands eru með 14 hús að Hrauni i ölfusi. Tuttugu og sex aðildar- félög innan A.S.Í. eiga 36 hús að ölfusborgum I ölfusi. Aðsókn að þessum húsum hefur verið gifurleg. Prentarafélagið er með 5 bústaði i Miðdal við Laugarvatn og einn aö Illugastöðum I Fnjóskadal. Þarna er sama sagan og hjá Iðju, að það hefur orðið að draga um hverjir ættu að fá leigðan bústað að þessu sinni. Prentarafélagið á stóra jörð I Miðdal i Laugardal. Þeir hafa leyft 36 félagsmönnum sinum að byggja á þessu landi, auk þess eru 15-20 bústaðir i byggingu. Þeir hafa I hyggju að koma upp tjaldstæðum þarna með snyrtiaðstöðu. Þeir hafa líka i hyggju að reisa barnaheimili fyrir börn félagsmanna ásamt hressingarhæli fyrir aldraða prentara. Samvinnustarfsmenn eru með 10 hús við Hreðavatn i Borgarfirði. Auk þess er starfs- mannafélag Samvinnutrygg- inga með 12 bústaði. Einnig er Bifröst rekin sem sumardvalar- heimili samvinnumanna. Þá er Starfsmannafélag Oliufélagsins með hús að Laugarvatni. Sam- tals geta þessi sumarhús og Bif- röst tekiö um 200 manns. Þó komast færri að en vilja. Þessi orlofsaðstaða er fyrir samvinnumenn um allt land. Samvinnumenn hafa i hyggju aö koma á skiptum á sumardvöl milli islenzkra samvinnumanna og samvinnumanna á hinum Norðurlöndunum. Þetta kemst að öllum likindum i framkvæmd næsta sumar að sögn forsvars- manna. Þó er helzti þröskuldur- inn dýr fargjöld til og frá Skandinaviu. Simamenn eru með 10 sumar- hús, flest eru við Apavatn I Laugardal. í Apavatni er leyfð stangaveiði frá landi og er ágæt veiði i vatninu. Einnig geta félagsmenn farið út á ára- og seglbátum. — HE. Wind Band — skólahljómsveit frá Glasgow I upptöku i Háskólabíói I gær. ENDURGJALDA HEIMSÓKN SKÓLA- HLJÓMSVEITAR KÓPAVOGS — leika meðal annars fyrir vistmenn á Reykjalundi Hér á landi er stödd 26 manna lúörasveit frá Glasgow á Skot- landi. Hún er að endurgjalda heimsókn skólahljómsveitar Kópavogs, sem var i Glasgow I júni siðastliðnum. Féiagar lúðra- sveitarinnar eru kennarar og nemendur i Allans Glens skólan- um, enda heitir lika lúðrasveitin Allan Glens—Wind Band. Hljóð- færaleikararnir eru á aldrinum 14-62 ára. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Enoch Jackson, en hann var áður meðlimur i Skozku sinfóniu- hljómsveitinni. Hljómsveitin kom hingað siðastliðin sunnudag og fer héðan 2. ágúst. Á fimmtudaginn ætlar hljdmsveitin að leika fyrir vist- menn á Reykjalundi, á laugardag kl. 14 leikur hún I Eden i Hvera- Nýstárleg málverkasýning: Hún verður með nokkuð óvenjulegu sniði, málverka- sýningin, sem Tarnús er að opna á Kjarvalsstöðum. t ráði er, að hljómsveitin Paradis mæti á vettvang eitt eða tvö kvöld og haldi hljómleika innan um málverkin. Á meðan dregur svo Tarnús liklega upp pensla gerði og á þriðjudag 29. júli verða tónleikar i Vighólaskóla i Kópa- vogi kl. 21.00. Ef veður leyfir, mun hljómsveitin leika á lóð Kársnesskóla föstudaginn 25. júli kl. 20 ásamt skólahljómsveit Kópavogs. Skotarnir munu skoða sig um i nágrenni Reykjavikur, fara meðal annars að Gullfossi og Geysi, til Akraness og viðar. Einnig munu þeir sitja boð bæjar- stjórnar Kópavogs og á föstudag veröa þeir gestir menntamála- ráðherra i Ráðherrabústaðnum. Þegar Visismenn smelltu mynd af hópnum var verið að taka upp nokkur lög með hljómsveitinni fyrir Rikisútvarpið. HE Málar mynd og liti og málar eina mynd undir þeim áhrifum, sem músikin veitir honum. Tarnús heitir reyndar fullu nafni Grétar Magnús Guð- mundsson. Sýnir hann samtals 35 myndir, sem málaðar eru á 11 árum. Þetta er fyrsta einka- YFIRLÝSING FRÁ FRAMKVÆMDA STJÓRA VÍSIS Vegna þeirra umræðna i fjöl- miðlum, sem orðið hafa undan- farna daga ogfylgthafa Ikjölfar aðalfundar Reykjaprents h/f, útgáfufélags dagblaðsins VIsis, telur undirritaður rétt að geta opinberlega eftirfarandi staðreynda. 1. Hin nýkjörna stjórn félagsins hefur ekki enn haldið neinn fund og þvi ekki getað skipt með sér verkum. Stjórnin hefur þvi ekki kjörið sér formann né falið nein- um einstökum stjórnarmanni að túlka skoðanir hennar opinber- lega. Á meðan svo er hlýtur undirritaður að teljast málsvari fyrirtækisins út á við, en yfirlýs- ingar einstakra stjórnarmanna aö teljast án ábyrgðar fyrir stjórnina, þar til hún hefur um slikar yfirlýsingar fjallað. 2. Um það atriði i ræðu for- manns fyrrverandi stjórnar, sem vitnað hefur verið til i fjöl- miðlum, þ.e. „Jónas Kristjáns- son hefur gefið til kynna, að hann hygðist hætta störfum við blaðið að eigin ósk o.s.frv.”, er sjálfsagt, að fram komi nánari skýring. Jónas Kristjánsson hefur aldrei sagt upp störfum sem ritstjóri dagblaðsins Visis. Fráfarandi stjórn Reykjaprents h/f hefur ekki bókað neitt um, aö störfum Jónasar myndi ljúka á næstunni og hefur aldrei sam- þykkt né yfirleitt rætt um, að honum yrði nokkurn tima sagt upp störfum. 3. Hið rétta er, að Jónas Kristjánsson „gaf til kynna að hann hygðist hætta störfum við blaðið ”, eftir að framkvæmdir yrðu samningar milli einstakra hluthafa um umfangsmiklar tilfærslur á hlutafjáreign i félaginu Reykja- prenti h/f , svo og Járnsíðu h/f, sem er eign nokkurra hluthafa Reykjaprents h/f. Þessar til- færslur hefðu þýtt það, að úr áðurnefndum félögum hefðu gengið menn, sem Jónas Kristjánsson mun hafa talið óheppilegt að missa sem samstarfsmenn. 4. Það reyndist ekki grundvöllur fyrir þvi að ljúka þessum samn- ingum, af ástæðum, sem Jónasi Kristjánssyni eru óviðkomandi, og þvi út i hött og engan veginn timabært að gefa opinberar yfirlýsingar um, að hann hygg- isthætta sem ritstjóri Visis. Það er augljóst, að um þetta mál á að fjalla í nýkjörinni stjórn Reykjaprents h/f og hvergi annars staðar. Þar til ákvörðun verður tekin um hið gagnstæða, lit ég þvi á Jónas Kristjánsson sem ritstjóra við dagblaðið Visi og mun haga ákvörðunum min- um i samræmi við það. 5. Sú tillaga, sem aðalfundur félagsins samþykkti hinn 22. júli s.l. og titt nefnd hefur verið, hlaut fullkomlega löglega með- ferð og var úrskurðuð löglega samþykktaf fundarstjóra. Það væri þvi einstaklega tillitslaust gagnvart fundarmönnum, ef Jónas Kristjánsson tæki ekki áskorun fundarins til yfirvegun- ar. Með þessu er engan veginn verið að reyna að hafa áhrif á gerðir ritstjórans, heldur aðeins dregnar fram staðreyndir þessa máls. Hitt er svo annað mál, að ég hef óskað eftir álitsgjörð tveggja valfnkunnra lögmanna um gildismat þessarar sam- þykktar aðalfundarins. 6. Allar vangaveltur um ráðningu nýs ritstjóra við VIsi ættu að vera óþarfar I þessu sambandi og koma kjarna þessa máls hreint ekkert við. Þaö er óþarfi að láta hann gjalda þess, að aðrir menn geta ekki skipu- lagt gerðir sinar og raunar ekki smekklegt. 24. júli 1975 Sveinn R. Eyjólfsson, framkv.stj. undir áhrifum Paradísar sýning Tarnúsar, en hann hefur einu sinni áður tekið þátt i sam- sýningu. Sýningin verður opnuð á laug- ardaginn og stendur til mánu- dags4.ágúst.Eropiðfrá kl. 2-10 á daginn. Ein myndin, sem Tarnús sýnir, er af móður, sem gefur ungabarni sinu að sjúga. Út úr munni móðurinnar hangir sigaretta sem hún tottar áfergjulega á meðan á athöfn- inni stendur. „ógeðslegt, en sést þvi miður stundum,” sagöi Tarnús og kallar myndina Móöurást. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.