Vísir - 17.12.1975, Blaðsíða 12

Vísir - 17.12.1975, Blaðsíða 12
12 13 Crystul Palace Crystal Palace tryggði sér i gærkvöldi réttinn til að leika i þriöju um.ferð ensku bikarkeppninn- ar þegar liðið sigraði Millwall 2:1, á leikvelii sln- um Selhurst Park i London. Leikmenn Palace skoruðu tvivegis I fyrri hálf- leik, fyrst David Kemp og siðan Peter Taylor úr vitaspyrnu. Mark Millwall skoraöi.Jon Moore i siðari hálf- leik. Crystal Palace leikur gegn Scarborogh i næstu umferö á útivelli. Tveir leikir föru fram I annarri umferð bikar- keppninnar i gær og einum varð að fresta og uröu úrslitin þessi: Crystal Palace — Millwall 2:1 Rochdale—Gaeteshead 3:1 Leik Totting & Mitcham og Leatherhead varð að fresta þegar leikið hafði veriö I 57 minútur, vegna þess aö mikil ising myndaðist á leikvellin- um og dómarinn taldi of hættulegt að leika viö þær aðstæöur. Rochdale leikur gegn Norwich i næstu umferö. Þá lék iandslið Skotlands 23 ára og yngri við Rúmena og lauk leiknum með sigri skota 4:0. —BB Myndin er frá viöureign efstu liðanna, QPR og Derby á laugardaginn. Það eru þeir Colin Todd Derby til vinstri og Mick Leach QPIt til hægri sem berjast um boltann. Leiknum lauk með jafntefli 1:1. komst áfram Vilja betri knattspyrnu Austur-þjóöverjar ætla aö gera athyglisverða tilraun i sumar til að gera knattspyrnuna hjá sér betri og skemmtilegri. Ætla þeir að koma á keppni þar sem veitt eru aukastig fyrir þrjú mörk skoruö og minusstig fyrir grófan leik og töp. Fyrirkomulag keppninnar er þannig, aö liðun- um fjórtán sem skipa 1. deild og þeim tiu, sem skipa 2. deild — verður skipt niöur i fjóra riðla. Tvö stig verða veitt fyrir unninn leik, og þaö liö sem skorar þrjú mörk eða fleiri, fær eitt auka- stig, liðið sem tapar, fær tvö stig I minus. Eftir hvern leik fer svo fram vitaspyrnukeppni án til- lits til þess hver úrslit leiksins hafa orðiö og getur hún siöan haft áhrif á stöðuna i riölinum. tjá verður veitt eitt minusstig fyrir hverja bókun, tvö minusstig fyrir, ef leikmaður verður rekinn af leikvelli og fyrir hver tiu brot sem dæmd verða á lið. Sigurvegararnir i riölunum leika ekki til úr- slita. Það liö vinnur sem hefur hæstu stigatölu. Fari hins vegar svo aö tvö lið eða fleiri verði jöfn að stigum — á að fara fram vitaspyrnukeppni. — BB ■ Miðvikudagur 17. desember 1975. VISIR VISIR Miðvikudagur 17. desember 1975. Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal. AÖ.sjálfsögöu útvegaöi ég, honum lán fyrir bilnum. Hann er V. þess vjröi fyrir klúbbinn! .. y Hvaö eraöþér AHi?\5 Strák urinn er búinn aö fá nýjan bil — hann er ánægöur - og þaö gerir hann enn betri J V leikmann % j^'^Herra Jackson — þér >s rtakiö fram fyrir hendurnar á mér i sambandi viÖ bennan Einfalt j Spennandi Ódýrt Fœst í flestum bóka- og leikfanga- verslunum Heildsöludreifing: Frímerkjamiðstöðin h.f. Einvigi KR og Ármanns i körfuboltanum I gærkvöldi var stórkostlegt. Þá ekki siður einvigi þeirra Curtiss Carter og Jimmy Rogers — bæöi i leiknum og I lokin — þegar þeir slógust. Hér hefur Jimmy haft betur — meö boltann — og skorar eina af slnum mörgu körfum I leiknum. Ljósmynd Einar. „Við gefum ekkert og það verður borist til þrautar" sem Blóðug slagsmál á milli blökkumannanna Hún stóðst svo sannarlega fyrirsögnin sem við höfðum i blað- inu i gær um leik KR og Ármanns i 1. deildinni i körfuknattleik, sem við sögðum þá frá að ætti að fara fram i Laugardals- höllinni um kvöldið. Þar stóð með stærsta letri....... „Blökku- mannaslagur i Höllinni i kvöld!” .... og slagur var það, sem hinir fjöl- mörgu áhorfendur (metaðsókn að körfu- knattleik á íslandi) — fengu að sjá. Það var ekki nóg með að áhorf- endur fengju að sjá blökkumenn- ina, Jimmu Rogers og Curtiss Carter, berjast undir körfunum, — þeir fengu lika að sjá þá nota hnefana hvor á annan á loka- sekúndum leiksins, og það svo kröftuglega að blóðið lak. Viðureign þeirra félaganna lauk þannig, að Jimmy Rogers hafði sigur i körfuboltanum, en „Trukkurinn” fór með sigur af hólmi i hnefaleikunum. Slagsmálin hófust þegar nokkr- ar sekúndur voru eftir af leikn- um, og Ármann var tveimur stig- ur yfir — 83:81. „Trukkurinn” braut þá visvitandi á Rogers i örvæntingafullri tilraun til að ná knettinum á einhvern hátt. Rogers tók þessu óstinnt upp og áður en nokkur maður gat áttað sig, voru þeir komnir i hörku- slagsmál. Eftir mikinn darraðardans á miðjum vellin- um, þar sem „Trukkurinn” hafði sýnilega betur, tókst loks að skilja þá i sundur, og þeim báðum visað af leikvelli, sem er mjög sjaldgæfur viðburður i körfu- knattleik. Þá lak blóð úr andliti Rogers, en á „Trukknum” sást ekki neitt. Ármenningar fengu tvö vita- köst þegar loks komst ró á — úr þeim báðum skoruðu þeir, og sigurinn i leiknum var þeirra — 85:81. Má með sanni segja að þeir hafi sloppið þar vel, þvf þegar rúmar tvær minútur voru eftir af -leiknum var KR 8 stigum yfir 80:72. Armenningar náðu að kom- ast yfir 81:80, eftir að Kolbeinn Pálsson var kominn út af með 5 villur hjá KR. Viö það misstu KR-ingarnir tökin á leiknum — þeir náðu að visu að jafna 81:81 — en hinir leikvönu kappar Ar- manns, sem léku frábærlega á lokaminútunum, rötuðu réttu leiðina eftir að Kolbeinn var farinn, og höfðu bæði stigin. Þessi leikur er án efa einhver skemmtilegasti körfuknattleikur sem hér hefur farið fram i langan tima — og eru þá hin hressilegu slagsmál í lokin ekki meðtalin. Hann var frá upphafi til enda hnifjafnog geysilega spennandi. t hálfleik var munurinn 4 stig — 41:37 fyrir Armann — en siðari hálfleiknum lauk með jafntefli 44:44. Það var mikill hraði i leiknum, og þá ekki siður harka. Réðu dómararnir ekki nægilega vel við leikinn — slepptu mörgum brot- um á báða bóga, en þó fóru KR-ingarnir öllu verr út úr viðskiptunum við þá á lokaminút- unum. Jimmy Rogers var hreint frá- bær i þessum leik og kom mun betur út úr honum en „Trukkur- inn”. Skoraði Jimmy 35 stig — 9 stigum meir en „Trukkurinn” — og i vörninni var hann mun virk- ari. Að vísu var varnarleikurinn hjá „Trukknum” oft á tiðum stór- kostlegur — sérstaklega þegar hann var að hirða fráköstin — en i sókninni fékk hann litinn frið — hafði stundum allt að þrjá menn á sér. Kolbeinn Pálsson var einnig mjög góður i þessum leik — skor- aði þó ekki nema 4 stig — öll i fyrri hálfleik — en i spilinu og vörninni var hann allt i öllu. Þá átti Bjarni Jóhannsson ágæta spretti — skoraði 16 stig — svo og Gunnar Jóakimsson, sem skoraði 10 stig. Fyrir utan Jimmy Rogers átti Bjöm Magnússon mjög góðan leik með Ármanni, og einnig Birgir örn Birgis, en hann var litið inn á — fékk 4 villur snemma i fyrri hálfleik. Jón Sigurðsson hefur oft verið betri en i þetta sinn — skoraði nú 9 stig — en hann átti góða kafla á milli— eins og t.d. á lokamínútunum — en þá náði hann spretti, sem gerði að mestu út um þenna sögulega leik. — klp Ég ó engan vin þegar ég spila „Þegar ég spila körfubolta á ég engan vin i hópi þeirra, sem ég leik á móti,” sagöi „Trukk- urinn” er við loks áræddum aö yröa á hann. „Ég fer inn á til að vinna og berjast — en þetta var kannski heldur of mikið af þvi góða. Ég braut viljandi á Jimmy — treysti á þaö aö dæmd yrðu tvö vitaköst á mig, og þeim mistæk- ist að skora úr þeim. Þaö var okkar eina von til að geta jafn- að. Ég var orðin æstur og mjög óhress út af dómunum á okkur þarna á siðustu sekúndunni, og þegar hann slæmdi til min hendi eftir brotiö, sauð upp úr hjá mér. Þaö gctur alltaf komiö fyrir I hörðum leik aö menn missi Stjórn á sér, og það gerði ég þarna þvi miöur. Viö Jimmy erum góöir vinir og mikið sam- an, og þvi þykir mér þetta leiðinlegt. En þetta er búiö og gert og verður ekki aftur tekið úr þessu.” „Við gerum okkur fulla grein fyrir þvi að júgóslavarnir verða crfiðir viðfangs, en erum samt staðráðnir i að berjast til þraut- ar” sagði Viðar Simonarson, landsliðsþjálfari, á blaðamanna- fundi sem stjórn HSt hélt í gær. Tilefni fundarins var landsleikur- inn við júgóslava i handknattleik i undankeppni Ólympiuleikanna i Laugardalshöllinni annað kvöld. „Það er engum blöðum um það að fletta, að júgóslavarnir hafa undirbúið sig m jög vel fyrir þenn- an leik og engu til sparað i þvi sambandi. Hvað viðvikur okkar undirbúningi, þá má segja að allt- af sé hægtað gera betur. Ég tel að ferðin til Danmerkur hafi verið okkur ómetanlegur undirbúning- ur fyrir þennan leik — og liðið hafi náð vel saman i þeirri ferð,” sagði Viðar. Landsliðið hefur ekki endan- lega verið valið, en það verður væntanlega gert eftir æfingu i kvöld. Landsliðshópinn skipa fimmtán leikmenn og þeir era: Ólafur Benediktsson, Guðjón Er- lendsson, Ólafur H. Jónsson, Axel Axelsson, Stefán Gunnarsson, Jón Karlsson, Gunnar Einarsson, Ólafur Einarsson, Friðrik Frið- riksson, Björgvin Björgvinsson, Arni Indriðason, Ingimar Har- aldsson, Viggó Sigurðsson, Sigur- bergur Sigsteinsson og Páll Björgvinsson. Tólf af þessum fimmtán manna hópi skipa liðið svo endanlega. Júgóslavneska landsliðið kom til landsins i gærkvöldi og var ákveðið að liðið léki hér einn aukaleik. Það hefur hins vegar komið i ljós, að illa stendur á ferðum fyrir þá héðan, þannig að þeir hafa nú boðist til að leika þriðja leikinn. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort af þessu geti orðið og þá hverjir andstæðing- arnir verði, en hugsanlega gæti það orðið lið sem blaðamenn veldu. ,,Það getur skipt sköpum i þessum leik, hver þáttur áhorf- endanna verður,” sagði Sigurður Jónsson, formaður HSl. „tslensk- ir áhorfendur hafa margoft sann- að hvers megnugir þeir geta verið — og við vonum að þeir láti sitt ekki eftir liggja núna frekar en svo oft áður. Forsala aðgöngumiða hófst i dag kl. 12:00 og verða miðarnir „Ég vil því „Þetta er I fyrsta sinn á min- um körfuknattíeiksierli aö.ég er rckinn af leikvelli og ég skamm- ast min virkilega fyrir þaö. Og þessi slagsmál." sagði Jimmy Rogers er við náðum tali af hon- um. Þá var kappinn orðinn rólegur — enda búinn aö fara i kalda sturtu og þvo af sér blóð- ið. „Ég hef áður verið slcginn i leik, en aldrei lent I svona slags- málurn fyrr. Ég vil helst gleyma þessu og ekki ræða meir um það. Ég vil aðeins fyrir hönd okkar bcggja afsaka framkomu okkar fyrir áhorfendum þarna i lokin — hún var hvorugum gleyma fyrst" okkar til sóma, og við vorum þar báöir i sökinni. Um sjálfan leikinn vil ég miklu frekar ræða. Þetta var góöur og spennandi leikur, og ég held aö þetta hafi verið einn besti leikurinn i deildinni til þessa. Ég hélt um tima, aö viö værum búnir aö tapa honum, en með góðri samvinnu unnum viö sigur á lokasprettinum. Ég vil ekkert um það segja, hvort liöiö hafi verið betra — við unnum á betri samvinnu og á þvi aö eiga fleiri menn en KR sem geta skotiö og skorað”. —klp— Tommy Galt er aö gera alla hjá Milford FC gráhæröa ltann getur ekki umgengist aðra leikmcnn liösins og lendir hvaö eftir annaö i Utistööum viö framkvæmdastjórann. Hann veröur litiö hrifinn þegar Tommy fær lánaöan pening til aö kaupa sör nýjan bil, og ræöir um þaö viö formann klúbbsins........................ 10I seldir úr happadrættisbifreið HSl i Austurstræti til kl. 18:00 og á sama tima á morgun. Leikurinn annað kvöld hefst kl. 20:30 i Laugardalshöllinni og verður hann dæmdur af norskum dómurum — John Hugo Larsen og öivind Bolstad. —BB Skíðafatnaður Glæsilegt úrval Atomic skíði Fischer skíði Spalding skíði Caberskór Skíðabindingar ALLT TIL SKÍÐAIÐKANA w — sagði Viðar Símonarson landsliðsþjálfari um landsleik Islands og Júgóslavíu í undankeppni Olympíuleikanna í handknattleik sem fer fram annað kvöld Þú getur unnið fjórar sólarlandsferðir á einn miða Blaksamband íslands

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.