Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.1928, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.1928, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 127 lagskapinn í heild sinni, en ekki nianninn persónulega. Og þá kem- ur til greina, að Tammany hefir breytst til hins hetra síðan hann t,ók þar við forystu. Kjósendur verða að láta sjer lynda þó hann sje kaþólskur. Margir trúbræður hans hafa haft áhrifamikil embætti og farnast vel. Óvíst er hvernig Smith snýst við bannmálinu. Yart mun hann geta risið gegn lögunum. En ef hann lætur sjer þau lynda eins og þau eru, þá hverfur hann frá stefnu sinni. Enginn veit um stefnu hans í utanríkismáium, hvort hvm yfir- leitt er nokkur. Hann er eins og Aristide Briand að hann les aldrei bækur. Og þareð hann er hagsýnn XI. Frá Gibraltar til Wilhelmshaven. Þegar hinn ótakmarkaði kafbáta hernaður hófst, og siglingabanns- svæðin voru ákveðin, varð að taka tillit til hlutlausra ])jóða, að þær hefði óhindraða siglingaleið. En hitt þótti mörgum undarlegt, að ekki skyldi lagt siglingabann á Portúgal, sem átti í stríði við Þýskaland. Og sjerstaklega þótti okkur það leiðinlegt, úr því að við áttum nú leið þar framhjá, að þurfa að láta þau skip, er til port- úgalskra hafna stefndu, sæta ann- ari meðferð en skip, sem ætluðu til Bretlandseyja eða Frakklands. Okkur fanst það ekki rjettlátt, að þar undir ströndum eins óvina- ríkis yrðum við að stöðva hvert skip og rannsaka áður en við niættum skjóta það, en litlu norðar mættum við skjóta hvert skip í kaf fyrirvaralaust, án tillits til þjóðernis eða farms innanborðs. Fyrir sunnan Portúgal hittum við portúgalst seglskip með hjálp- maður gerir hann sjer eigi óþarfa fyrirhöfn. En hann er eins og Briand, hann hefir ráðgjafa góSa sjer við hlið. Meðal þeirra er hámentuð gyð'- ingakona, Moskowitz að nafni og Proskan, sem er hæstarjettardóm- ari. Smith á marga auðuga vini, er leggja vilja fje til kosninganna. Meðal þeirra er William Kenney, er-gaf 70,000 dollara í undirbúning undir prófkosninguna. Hann er talinn eiga 40 miljónir dollara, og býðst til að gefa aleigu sína í kosningasjóð, til þess að koma vini sínurn Smith í forsetastól. Vera má að Smith komist ekki að. En sigurinn verður þá andstæðing- um hans dýr. arvjel. Það hjet „Tres Macs“, ljómandi fallegt skip, hlaðið gas- olin og nafta. Þessu skipi urðum „Tres Macs“ ])ortugalska skipið, sem sökt var. Á myndinni sjást skipsbátarnir, sem koma róandi yfir til „U 52“. við að gefa viðvörun og mönnun- um frest til þess að bjarga sjer. Það var að vísu óvopnað, svo að hættan var engin. Við komum úr liafi og skutum á það viðvörunar- skoti. Fóru skipverjar þegar i bát- ana og reru til lands, en við sökt- um skipinu. Að því loknu hjeldum við vestur með landi og beygðum svo norður með vesturströndinni. Næsta morg- un hittum við gufuskip, sem við sáum að' var vopnað. Við fórum í kaf og drógum „hafsaugað“ niður svo að skipið gæti ekki sjeð okkur. Sigldum við nú blindandi í veg fyrir það, en vegna þess misturn við af skotfærinu. Komum við úr kafi svo sem 5000 metra frá skip- inu og byrjuðum að skjóta á það með fallbyssu. Var sjógangur mik- ill, þung og löng undiralda, og hæfðu kúlur okkar því ekki. Skip- ið sigldi í krákustígum og svaraði okkur með skothríð. Hafð'i það góðar fallbyssur, er ekki drógu skemra en fallbyssur okkar. Við skutum á það 60 skotum, en árang urinn varð enginn, svo að við sæj- um. Hættum við leiknum því, enda stóð skipið betur að vígi en við í orustunni, og auk þess hafði það sent út livað eftir annað ,,S. O. S.“ (save our souls) skeyti og máttum við eiga von fleiri óvina á hverri stundu. Það bagaði okkur líka, að vegna þess, hvað við höfðum skot- ið ört,, urðum við að skifta um „fallbvssusál." Þjer vitið að sjálf- sögðu ekki hvað „fallbyssusál" er. Það er hólkur', sem settur er innan í fallbyssuhlaupið. Er hann með nafarraufum og valda þær ])ví, að kúlan fær á sig snúning um leið og hiin þeytist fram úr hlaupinu. Og eftir því sem þessi snúnings- hraði er meiri, eftir því eru fall- byssurnar beinskeytari og brað- skeytari. t öllnm riflum eru þessar nafarraufar, sem setja snúning á kúlurnar, og hafa menn eflaust, tekið eftir því. En sá er munurinn á rifli og fallbyssu, að í riflinum eru snúningsraufarnar í hlaupinu sjálfu, en í fallbyssum í „sálinni“ — hólknum, sem stungið er inn í hlaupið. Þegar ört er skotið hitnar hólkur þessi gífurlega og við nún- inginn af kúlunum og minkandi mótstöðuafl vegna hitans, aflag- ast raufarnar og sljettast, svo að fallbyssan ber skakt og verður ekki jafn hraðskeytt og áður. — Nokkru eftir að við sleptum þessu skipi, hittura við spanskt Eftírprentun bðnnufi. Kafbátahernaðnrinii. Endurminningar Julius Schopka- (Skráð hefir Árni Óla).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.