Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1931, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1931, Blaðsíða 4
132 ESBÓK MORGUNBLAÐSINS Byltingin áSpáni. Macia ofurstó bráðabirgðaforseti Kataloníu. byggingum, og lýðveldismenu ýstu því yfir, að lýþveldi væri sett á stofn. Hvergi þorðu yfirvöldin að skerast í leikinn. Spánska stjórnin, konungssinna- stjórn Aznars, sá sjer ekki annað fært en að segja af sjer. Konung- urinn leitaði nú samvinnu við Zam- ora. en hann n itaði samvinnu við konunginn. Konungurinn bauðst þá til að afsala sjer völdum í hendur sonar síns, prinsins af Asturiu, en lýðveldismenn heimtuðu lýðveldi þegar í stað. Konungurinn hafði nú aðeins um tvent að velja: Annað hvort að setja hart á móti hörðu eða að fara frá völdum. Mótspyma af hálfu konungsins hefði án efa leitt til borgarastríðs. Foringjar kon- ungssinna ráðlögðu því konungn- um að fara frá völdum. Að lokum afrjeð hann að gefast upp. Gerði hann það til þess að komast hjá borgarastríði ? Eða gat hann ekki reitt sig á herinn? Kl. 6 þ. 14. var tilkvnt opinber- lega, að konungurinn væri farinn frá völdum. Romanones utanrikis- ráðherra gekk á fund Zamoras og lagði alt vald í hans hendur. Zamora hafði skömmu áður mvnd- af lýðveldisstjórn. Að kvöldi sama dags fór Alfons 13. frá Madrid. Klökkur kvaddi hann hirðfólkið og sagði um leið: „Jeg fer úr landi. en kem aftur“. Hann ók svo í bíl til Cartagena. Rpánskt herskip beið hans þar og flutti svo hinn síðasta konung Baráttan milli lýðveldismanna og konungsins á Spáni er á enda, að minsta kosti fvrst um sinn. Enn einn af konungunum í Evrópu er farinn frá völdum. Alfonso 13. hefir bættst við í hóp hinna mörgu konunga, sem steypt hefir verið af stóli síðan heimsófriðnum lauk. Lýðveldi er sett á stofn á Spáni. Og einræðið er á enda þar í landi. Lán virðist ekki fylgja einræðinu, livorki þar nje annars staðar. Tímarnir breytast. Fjöldi Spán- verja flýðu land og lifðu í útlegð á einræðisárunum. Nii streyma þeir heim til Spánar. Á frönsk-spánsku landamærastöðinni Hendaye mæta þeir öðrum straumi, aðalsmönnum o. ö. konungssinnum, sem flytja með sjer skartgripi sína og aðra verðmæta hluti. Fyrir nokkrum vikum voru að- alleiðtogar lýðveldismanna, Zam- ora o. flv, pólitískir fangar í Mo- delo-fangelsinu í Madrid. Nú er Zamera æðsti valdhafi á Spáni, stjórnarforseti hins nýja lýðveldis. Flestir ráðherranna í stjórn hans eru fjelagar hans frá Modelo-fang- elsinu. Ilinn mikli og óvænti sigur lýð- veldismanna við bæjarstjórnar- kosningarnar þ. 12. þ. m. neyddi konunginn að lokum til þess að fara frá völdum. Fyrst eftir kosn- ingarnar ætlaði hann sjer þó að sitja áfrara við völd og gefast- ekki upp fyr en í fulla hnefana. En lýð- veldishreyfingin var orðin honum ofurefli. Hinn 14. þ. m. var upp reisn hafin í flestum borgum á Spáni. Ibúarnir í Barcelona, höfuð- borginni í Kataloniu, riðu á vaðið og settu lýðveldi á stofn undir’ forystu Macia ofursta. Uppreisnin breiddist á fáeinum klukkustundum um svo að segja alt landið. í hverri borginni á fætur annari voru fánar lýðveldis- ins dregnir á stöng á opinberum Alfons konungur, myndin te kin rjett áður en hann varð að hrökklast frá völdum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.