Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1931, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1931, Blaðsíða 1
Oxford Eftir Óskar J. Þorláksson cand theol. „Sweet city with dreaming spires.“ Stúdentar á kappróðraræfingu á ánni hjá Oxford. í fögru umliverfi á bökkum Thamesárinnar stendur borgin Oxford. Lágar hæðir liggja að henni á alla vegu og stendur hún því í einskonar dalverpi. Cherwell, sem er ein af þverám Thames, rennur einnig gegnum útjaðar borgarinnar. Óvíða mun vera fegurra um- hverfi en þar, sem Thames og Cherwell renna saman; eru þær báðar lygnar og renna áfram hægt og sígandi. Bakkar þeirra eru vaxnir fögr- um trjám, er breiða þjett limið niður yfir vatnsflötinn. Víðast hvar í útjöðrum borgarinnar eru skemtigarðar með trjágörðum og sljettum flötum, og loks taka við lágar hæðir, sem gefa fagurt út- sýni yfir borgina. Flestir þeir, sem koma til Ox- ford í fyrsta sinn munu verða hrifnir af borginni og umhverfi hennar. Oxford á sjer nierkilega sögu. Er hennar fyrst getið í ann- álum árið 912 og er aldur borg- arinnar miðaður við það ár, en gera má ráð fyrir, að hún sje all- mikið eldri, enda eru til munn- mælasögur, sem benda mjög til að svo sje. Skömmu eftir aldamótin 11 hundruð, er farið að geta um Oxford sem mentasetur, en hið fyrsta „college“ er ekki talið stofnað fyrri en 1249 (University College) og er það elsta stofnun hins núverandi Oxfordháskóla. Upp frá því rís upp hvert „col- lege“ af öðru og eru flest þeirra stofnuð á árunum frá 1250-—1628 (eitt stofnað 1868) jafnframt því, sem borgin vex hröðum skrefum. Auk þess hafa á síðustu tímum verið stofnuð nokkur „colleges“, sem eru í sambandi við háskól- ann, án þess að vera hluti af hon- um í eiginlegum skilningi. Nafnið háskólaborg ber Oxford með rjettu, því háskólinn setur bæði svip sinn á borgina og á borgarlífið, enda á borgin óefað vöxt sinn og viðgang háskólanum að þakka. Háskólinn saman stendur af yf- ir tuttugu mismunandi „colleges“, sem dreifð eru um miðbik borg- arinnar, og er hvert þeirra að nokkuru leyti stofnun út af fyrir sig, þótt þau sjeu öll í nánu sam- bandi. Öll eru þessi „colleges“ risa- vaxnar byggingar, bygð í fögrum stíl með turnum og ótal turnspír- um, sem gnæfa við himin, þegar menn nálgast borgina. Venjuleg- ast eru þau bygð í ferhyming og er fagur rennisljettur grasflötur (quad) í miðju. Hverju „college" fylgir kapella (chapel) sem bygð er í gotneskum stíl, fagurlega skreytt með gömlu og nýju skrauti og stundum glugg- um, sem varpa töfrablandinni birtu inn í þessi virðulegu guðs- hús. Hvert „college" hefir og sitt eigið bókasafn. Auk þess fylgja

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.