Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1931, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1931, Blaðsíða 1
EinKennilegt landndm í Ásíralíu. Saga sameignarbygðar. Eftir próf. A. Lodcwyckx. Próf. A. Lodewyckx. A 19. öldinni voru raargar til- raunir gerðar í ýmsum löndum til þess að stofna sameignarlendur, í þeirri von að hagur manna yrði þá betri. P.lestar af tilraunum þess- um liafa þó staðið skamman tíma. Á ferðum mínum um Ástralíu í fyrra, rakst jeg á leifar af gamalli sameignarmannabygð, sem þá mátti heita fal'lin í gleymsku. Jeg rannsakaði síðan uppruna hennar og sögu, eftir því sem unt var, og þykir mjer ekki ólíklegt, að les- endum Morgunblaðsins þætti gam- an að heyra frá henni sagt, því ekkert hefir verið um hana ritað utan Ástralíu. í>að eru nú nálega 100 ár síðan, árið 1838, að nokkur þúsund þýskra Lútherstrúarmanna fluttu tii Ás-tralíu, sökum þess að þeim þótti prússneska stjórnin skerða trúairbragðafrelsi þeirra. Þessir út- fiytjendur voru mjög guðhræddir og strangtrúaðir eftir fornum Lút- herskum sið, og vildu halda öllum kenningum Lúthers hreinum og óspiltum. Þeir stofnuðu því sjer- staka þýska söfnuði í Suður- Ástralíu og síðar í Victoria, New South Wales og Queenslandi. — Standa margir þeirra enn í full- um blóma. Meðal þessara manna voru nokkrir trúarvinglsmenn, sem höfðu sínar sjerstöku skoðanir á ýmsum kenningum biblíunnar, og urðu prestum sínum til margvís- legra vandræða. Einn þeirra var maður nokkur frá Posen að nafni Johan Priedrich Krumnow. Fátt er kunnugt um æfi Krum- nows á Þýskalandi, en svo virðist sem hann hafi hallast að kenning- um Herrnhúta bræðraf jelagsins, og staðið í sambandi við það. Krumnow mátti heita óment.aður maður og stundaði klæðskeraiðn. Hann var lágur vexti, næstum því dvergur og talaði þýsku með svo einkennilegu, .óþægilegu nefhljóði, að erfitt var að skilja hann. Þrátt fyrir þetta hafði hann einhver dularfull áhrif á þessa einföldu, þýsku landnema í Suður-Ástralíu. Margir þeirra sóttu trúarsamkom- ur, sem hann hjelt , á heimilum fylgismanna sinna. Hann flutti fagnaðarboðskapinn eftir sínu höfði, kendi að endurkoma Krists væri í nánd og lagði mikla áherslu á það, að allir sannkristnir menn ættu að hafa sameign á öllu, sem þeir ætti. Sagði hann og, að sjer væri gefið vald til þess að reka út illa anda. Kunna menn að segja frá nokkrum dæmum hversu hann fór að því. Hann hagaði sjer svipað og dáleiðendur gera á vorum dög- um, en þuldi annars biblíustaði til þess að reka þann vonda burtu. Sameignin var þó aðalatriðið í kenningu Krumnows. Hann reyndi í nokkur ár að stofna sameignar- bygð í Lobctal, en misheppnaðist það. Hann yfirgaf því Suður- Ástralíu og urðu Lúthersku klerk- arnir því fegnir. Pluttist hann þá til nágrannanýlendunnar Victoria. Eitthvað 10—12 landnemar flutt ust með honum, svo og fjölskyldur þeirra. Alt voru.þetta trúir læri- sveinar hans og aðdáendur, enda afhentu þeir Krumnow allar eignir sínar og fyrir þær keypti hann um 1000 hektara af landi í Vestur- Victoria, nálægt Hamilton. Það var á lágum graslendisásum, sem vel voru fallnir til fjárræktar. Þýsku landnemarnir tóku nú strax til starfa og brátt reis þar upp dálítið sveitaþorp. Þrjár af byggingunum standa enn og bera

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.