Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1932, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1932, Blaðsíða 2
14 LESBÓK MCRGUNBLAÐSlKS þrekmaður beitir sjer óvægilega, getur svo farið, að liann verði of- jarl þeirra, sem honum eru nær- staddir, eða því um líkur þeirra meðal, sem það trje í skógi, sem vex hinum trjánum yfir höfuð, svo að lággróður og ungviði lendi í skugga eða hlljóti forsæluhlutskifti. Það er fýsilegt til frásagnar, að eitt trje verði með yfirburðum. En þó má það ekki sitja yfir hluta hinna trjánna, nje kæfa þau í myrkri. Kjarkur manns má ekki ná þeim ofvexti, að hann beiti sjer á kostn- að annara eðKshátta, er manndómi henta eða eru dýrmætir sálu manns eða stundlegri heill. Harðjaxlaður þrekmaður, sem lætur sjer vaxa neglur fyrir góm, getur orðið varg- ur í vjeum, þar sem friðheilagt skyldi vera. Hann er til þess bú- inn að troða undir fótum fögur og viðkvæm blóm, sem vaxa í vegi hans eða með fram götu hans. — Hann er vís til að vekja hatur og úJfúð kringum sig. Og liann getur orðið mölur í annara eigum, án þess að lögin nái til hans, eða rjett- arfar gangi yfir hann. Af hans andgufu geta myndast ský, sem byrgja fyrir sól. Því sterkari sem hann er, því meira tjóni er viðbriið að hann valdi. — Segja má með sanni, að þrekið sje uppistaða í vef sálar vorrar, sú uppistaða er erfið, en ívafið er þá sú viðbót, sem einstaklingurinn leggur til frá sjálfum sjer og kem- ur fram í meðférð þreks eða kjarks. Innri maðurinn má ekki verða þræll kjarksins, heldur frels- ingi hans eða þjónn. Jeg drap á það, að maðurinn yxi við að fást við mikils háttar eða gott viðfangsefni. Sú fullyrð- ing styðst við frásögn, sem nýlega var birt- í blaði um Edison xipp- finningamanninn mikla, sem er ný- lega fallinn frá og fjölkunnugastur hefir verið í rafmagnsfræðum al'lra manna. Hann mælti á þá leið, að afburðamaðurinn (geníið) væri að tveim hundruðustu arfþegi ham- ingjunnar. En að níutíu og átta hundruðustu hlutum, væri hann vaxinn af sjálfsdáðum með því móti, að hann þroskaðist sífelt við það að neyta krafta sinna af ítr- asta megni, leggja sig í líma og vanda sig svo sem framast er unt. Þegar þannig er starfað og breytt,. er huganum einbeitt og vöðvakrafturinn notaður í samræmi við mátt hugans. Þarna lítur þrek- mann, sem er þrautseigur — hvort tveggja á franrárskarandi hátt, til dásamlegrar fyrirmyndar öldum og óbornum. Maðurinn verður að byggja upp skapgerð sína, til þess að hann verði þrekmaður. Húsagerðarmeist- ari sjer fyrir sjer húsið, sem liann ætlar að byggja það eftir áætlun eða fyrirmynd. Skapgerðarlistin er áþekk húsagerðarlist og þó mik- ilvægari. Þrekmaður er í raun rjettri mikilmenni, þó að í þröng- um verkahring starfi. Húsbóndi og húsfreyja, þó að fátæk sje, geta talist þrekmenni og þá um leið mikilmenni, ef þau standa æðru- laus í stríðinu og „bera höfuðið hátt í heiðurs fátækt“. Og þeir sem eru á einhvern hátt brautryðjend ur, eru þrekmenní ef þeir eru góð- gerðamenn alþjóðar. Að öðrum kosti eru þeir illmenni og „grípa þá gjald sitt í eldi“, eins og Bólu- Hjálmar orðar það. Stephan G. Stephanson segir einhvers staðar, að það sje mikils- vert hverjum manni að kunna þá list. „að lepja upp mola af lífsins stig, og láta’ ekki baslið smækka sig“. Þarna er þrekmanni lýst, sem hefir ástundun til að bera, eða neytir hennar sjálfum sjer til vaxt- ar og öðrum tii hagræðis. Jeg mintist á það að þrekmaður þyrfti að vera þrautseigur, þ. e. a. s. þolgóður í þrautinni. Alt líf er að sumu leyti þraut eða þjáning. Þetta má orða öðru vísi og segja að þjáning sje skilyrði þess, að verðmæti og dýrmæti fáist. T. d. a. t. setur náttúran líf í veð, þegar líf á að fæðast. Þarna er þraut- seigju þörf og brýn nauðsyn hennar. Þau lög verða eigi brotin og þeim er alls eklci unt að breyta. Þegar nú um þjóð vora er að ræða, og einstaklinga hennar, verð ur ekki vjefengt, að Islands börn- um er jafnmikil þörf á að vera. þrautseig, sem þeim er nauðsyn- legt að vera þrekrík. Það að vera. þrautseigur, táknar að vera út- haldsgóður í andstreymi, vera gæddur þolrifjum, vera fastur á fótum, eiga brekkumegin: vera brattgengur. Þegar um það er að tefla, að bjargast í landinu sem vjer búum í, verður að gæta þess og geta um það, rifja það upp fyrir sjer og öðrum, að þjóð vor og einstakling- ar hennar, liafa lengstum lifað í varnaraðstöðu. Og nú er híin þann- ig stödd, að varla er um annað að gera en verjast falli. Það er að vísu satt, að bóndi verður að drýgja dáð um sláttinn, og sjó- maðurinn hlýtur að heyja sóknar- baráttuna á vertíðinni, ef þeir eiga að bera úr býtum meira en hálfan hlut. Þá er þörf á miklu þreki, á báðar síður. En oftast lifum vjer í vamaraðstöðu. 0g börn landsins eða þjóðarinnar hefa lengstum síð- an á landnáinstíð bjargað sjer gegnum áföll aldanna með því að beita þrautseigju í varnaraðstöðu. Grípa verður til þeirrar aðferðar enn sem fyrri, þegar í nauðirnar rekur. Barátta blasir nú við á báða bóga. Og þá dettur mjer í hug her- kænska og hershöfðingjar. Sumum þeirra er sú list lagin að sækja fram í sókn og vinna sigra. Oðr- um er sú kænska tdtæk, að bjarga her á flótta, eða leifum hers á undanhaldi. Hersoddviti þarf að kunna báðar þessar lístir, ef vel á að fara úr höndum hans herstjóm- in. Og forsprakkar þjóða þurfa að vera færir um sókn og vÖm, eftir því sem við horfir. — Þegar enski hershöfðingínn barðist við Napole- on við Waterloo, var hann í varn- araðstoðu. Hann var fáorður, en ákveðinn og hann stóð af sjer stór- skotahríðina með þessari skipun til liermanna sinna. „Þokið yður saman“. Mundum vjer nú geta gert ann- að betra en það, eða happasælla? Bretar höguðu sjer á þenna hátt á 8.1. hausti — þeir þokuðu sjer sam- an, þegar flokkar andstæðinga gengu í eina skjaldborg til að veita mótstöðu kreppunni sem vofði yfir eða steðjaði að þjóðinni. Þetta hátterni minnir á vísu í Ulf- arsrímum, sem segir frá mönnum, börðust við ofurefK: „Bökum snúa saman sín, svo með prýði vörðust“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.