Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1933, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
387
A J ÓLUM
HJÁ Jóíil SlGVRÐSSYNI.
FRÁSÖGN INDRIÐA EINARSSONAR.
Einn af þeim, sem setiíS hafa við veisluglaðning á heimili Jóns Sigurfcsson-
ar forseta, er Indriði Einarsson rithöfundur. Hann hefir sagt blaðinu, til
birtingar í Jóla-Lesbók, frá endurminningum sínum um heimilishagi Jóns
Sigurðssonar, frá jólaveislum og sun nudagaglaðningi, en IndriÖi var boðs-
gestur Jóns forseta á fernum jólu
koma heim til Indriða
Einarssonar, í litla húsið hans
niðri í bænum, sem ekki er við
neina götu, en stendur í miðri
húsaþyrpingunni, sunnan Kirkju-
strætis, er sem að koma að
tjaldabaki, þar sem enginn sjer
mann, en maður er þó í návist
við leiksvið Reykjavíkurlífsins.
I samanburði við háu húsin,
alt umhverfis, er sem þetta litla
hús hafi falið sig þarna, ósnort-
ið af öllu umhverfinu — þátt-
ur úr liðnum árum.
En húsráðandinn Indriði, er
alt í senn, fortíð, nútíð og fram-
tíð, geymir minningafjöld síð-
ustu 60—70 ára, er þátttakandi
í því sem gerist og með hugann
1 framtíðinni.
ÍSLENSKA HIRÐIN,
— Það var eins og að vera
boðinn til hirðarinnar, að vera
boðinn til Forsetans, sagði Ind-
riði, er þetta bar á góma.
— Jeg var þar aldrei á að-
fangadagskvöld, eða jóladag-
ana. Þá daga hafði Forseti ekki
boð, nema þá fyrir nánasta
skyldfólk. En svo hjelt hann
fjölmennari jólaboð, ýmist á
Gamlárskvöld t. d. eða á Þrett-
ándanum. Jeg var boðinn þang-
að á fernum jólum. 6. jan. var
jeg þar 1874.
— Hvaða gestum munið þjer
eftir?
— Það voru fyrst og fremst
Sigurðarnir tveir, Sigurður
Jónsson, uppeldissonur þeirra
hjóna, síðar sýslumaður í Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu,
og Sigurður Lárentíus Jónas-
son, er var aðstoðarmaður For-
seta við ýms störf. Hann var
skrifari í utanríkisráðuneytinu,
og síðar skjalavörður þar. Þeir
unnu saman vissar stundir,
einkum á miðvikudögum, For-
seti og Sigurður við afgreiðslu
á Bókmentafjelagsbókum og
brjefum o. fl.
Þá var einn sjálfsagðasti
gesturinn, Ásgeir Ásg'eirsson,
eldri, kaupmaður á Isafirði.
Hann var aðal umboðsmaður
Jóns við þingkosningar, því ekki
fór Jón vestur til að tala við
kjósendur. Hjálmar Johnsen,
kaupm. í Flatey, frú Magda-
lena Lichtenberg, síðar frú
Helgasen, systir Geirs Zoega
kaupmanns, glæsileg kona á
yngri árum, átti Lichtenberg
kaptein fyrir mann, sigldi með
honum um öll höf, og voru
börn þeirra fjögur með í ferða-
volkinu. Sagði hún svo frá, að
þurft hefði hún að útbúa þau
oftar en einu sinni, til að
fleygja þeim niður í björgun-
arbátana, ef yfirgefa þyrfti
skipið. Fröken Sigríður Helga-
son, matráðskona (Oldfrue) á
Friðriksspítala, dóttir Helga
Helgasonar prentara á Akur-
eyri, Markús Snæbjörnsson,
kaupmaður í Patreksfirði, Þor-
lákur Johnson kaupmaður, er
hann var í Höfn. Hann var ná-
frændi frú Ingibjargar, konu
Jóns, og Tryggvi Gunnarsson,
er hann var ytra. — Af yngri
mönnum man jeg helst eftir
þeim Birni Jónssyni ritstjóra,
og Kristjáni Jónssyni, síðar há-
yfirdómara, en þeir voru miklir
mátar nafnarnir Jón forseti og
Jón á Gautlöndum. Þá man jeg
þar eftir Guðna Guðmundssyni
frá Mýrum, síðar lækni í Borg-
undarhólmi. Þorleifi Jónssyni,