Lesbók Morgunblaðsins - 09.12.1934, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 09.12.1934, Blaðsíða 1
Franskt spitalaskip strandar á Meðallandsfjöru. Eftir Einar Sigurfinnsson. Það mun ekki ofsagt, að hvergi hjer á landi hafa skipströnd orðið jafn tíð eins og í Meðallandi. Standa þar enn flök skipa, sem strandað hafa fyrir mörgurn árum, en sum eru komin á kaf i sand. Af öllum bygðum landsins hafa bændur í Meðallandi haft mest af sjóslysum að segja, björgun úr sjávarháska, erfiði við að koma sjóhröktum mönnum til bæja, taka á móti þeim og greiða veg þeirra til hafnar, þaðan, sem þeir gátu flust heim, og hefir þá venjulega Rcykjavík verið valin. En það væri löng og merki- leg saga, ef segja ætti frá svaðilferðum Skaftfellinga með strand- menn yfir vötn og torfærur hingað til Reykjavíkur. Til þess að gefa lesendum Lesbókar lýsingu á skipstrandi þarna eystra, hefir hún fcngið Einar Sigurfinnssön, glöggvan og greinagóðan mann, til þess að segja frá einu strandi þar. Kaus hann að segja frá því, er hið fagra og vandaða franska spítala- skip „St. Paul" strandaði við Meðalland árið 1899. Það var uiðdiinm þoka í lofti þann 15. apríl 18!)!), o<r því var ekki að furða þó myrkrið væri svart næstu nótt, enda mun þá hafa verið torvelt að greina lágu syörtu sandströndina, austan við Kúðafljótsós. — Morgunin næsta var nokkuð farið að rofa til. Urðu nokkrir Meðallendingar þess þá varir, að skip mundi vera strand- að. Var þá þegar að vanda brugðið við, og margir menn riðu til strandar, því líklegt var að þar væri menn sem þyrftu aðstoðar við. Áður en rnenn komu allnærri sjónum, sást íyrir víst að skip stóð þarna á grunni, og það miklu stærra en flest þau skip, sem venjulegt var að sjá þar úti fyrir. Siglutrjen voru þrjú og það eitt sýndi að varla væri hjer um fiskí- ;,kip- áð ræða. Menn liriiðuðu ferð sinni sem unt var. og brátt var komið á stramlstaðinn. Þá var orðið lág- sjávað og mátti milli ólaga kom- ast hrakningslítið að skipshliðinni. Skipverjar voru kotnnir á land og voru á gangi á víð og dreif um fjöruna. Þeiin var fljótlega safnað saman og leyndi sjer ekki, að þeir urðu mjög fegnir að sjá menn. Lýstu þeir fögnuði sínum með lát- bragði og bendingum, en mál þeirra skildist ekki, þó gátu þeir látið skiljast að öll skipsliöfnin, 20 manns, væri komin á land, og allir ómeiddir. Blautir voru þeir mjög, en ekki mjög kalt, með því frentur var hlýtt í veðri. Nú var leitað ráðs að komast upp í skipið og tókst það Ínuan skanis, og var þá þegar tekið á land dálítið af matvælum, fatnað- ur skipverj'a o. fl., einflife sbgl o‘g fleira, tíl að gera úr skýli fyrir „vöktimenn“, Þetta strandaða skip stóð þarna á rjettum kili og var hið fríðasta að sjá. Það sneri stafni tií austurs og var þannig' flatt með strönd- inni. Nafn þess stóð á því skýr- um stöfum: St. Paul, Le Havre. Ekki var tími til að skoða skipið innan, nema að örlitlu leyti, en auðsjeð var á öTIu að frágangur var liinn vandaðasti, snotur og vistleg lierbergi, búin smekkleguni og hentugum húsgögnum. Ríku- leg matar og drykkjarföng, ásamt margskonar áhöldum. Á þilfari stóð vjelbátur í skorðum, auk tveggja róðrabáta. Nú var undinn braður bugur að því að koina strandmönnunum lieim til bæja, og var það um iy2 stundar ferð. Þeir voru allir settir á hesta, en misjafnlega g'ekk þeim að sitja á þeim. Um það leyti, sem lagt var af stað heimleiðis kom sóknarprestur Meðallendinga suður í fjöru. Það var síra Gísli Jónsson á Langholti, síðar prestur að Mosfelli í Gríms- nesi. Hann talaði og skildi frönsku og gaf sig þegar á tal við strand- mennina og glaðnaði mjög yfir þeim við það. Síra Gísli skýrði nú frá, að þetta væri frakkneskt spítalaskip, sem værí lijer víð land til aðstoðai' franska þilskipaflotanuni, taka móti veikum og slösuðum mönnuirt o. s‘. frv.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.