Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1935, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1935, Blaðsíða 1
 Sunnudaginn 23. júní 1935. X. árgangur. • fiiM'<rT>rentsmi0)a i t. Helgafell Ágrip — eftir Lúðvík Kriifjánsion. Inst á Snæfellsnesi, norðan- verðu, teygir sig nes nokkurt í norður, er Þórsnes heitir. Fremst í Þórsnesi stendur Stykkishólmur, en nokkru ofar því miðju rís Helgafell upp úr holtadrögunum, 73 m. hátt. Þegar upp á Helga- fell er komið virðist það nær spor- öskjulagað að ofan, en að austan og norðan er það all þverhnýpt. Vestanmegin er feliið talsvert á- valt, en hallast þó mest beint til suðurs, og stendur þar bærinn og túnið. Helgafell hefir verið nokkurs- ltonar landvættur Þórsnesþings um tíu alda skeið, — þögull áhorfandi hinna helstu atburða á þessum slóðum. Þórólfur Mostrarskegg nam alt Þórsnes. Hann var trúmaður mik- i'U og þótti honum Þór öruggastur til góðra heita. Mun trúin á Þór hjer á landi hvergi hafa verið slík sem í Þórsnesþingi, og benda til þess ýmsir hlutir, þótt eigi verði hjer nefndir nema fáir. AlUr synir Þorláks á Eyri eru kendir við Þór, fjórir af sjö sonum Þorfinns á Rauðamel, auk þess sem Rauð- melingar nefna sitt Helgafell Þórisbjörg. Þórólfur Mostrar- skegg kennir landnám sitt og son við Þór og loks má geta þess að Þuríðar nafnið er mjög algengt þar í hjeraði. En hjer er sagan Helgafell. Eftir málverki. um trú Þórsnesinga eigi sögð nema hálf, því í raun rjettri mótuðu þeir sjálfir trú sína á tilveruna eftir dauðann, og gerðu Helgafell að því musteri, „at þangat skýldi enginn maðr óþveginn líta, ok þar var svá mikil friðhelgi, at engu skyldi granda í fjallinu, hvárki fje nje mönnum, nema sjálft gengi braut, þat var trú þeirra Þórólfs frænda at þeir dæi allir í fjallit". Slík trú, sem hjer birtist var eigi eins dæmi hjer á landi. Þess getur víðar að menn dæi í fjöll eða hóla. Trúin og helgin á Helga- felli mun að einhverju leyti hafa þorrið eftir að kristni hafði verið lögtekin. En eigi að síður var þjóðtrú Islendinga svo styrk, að enn í dag eimir eftir af þeim hugs unum, er tengdu fyrstu íbúa hjer- aðsins við Helgafell. Flestir, sem einhver skil kunna á Helgafelli ganga upp á það í fyrsta sinn, án þess að líta til vinstri nje hægri. Með þrjár óskir í brjósti er lagt á brattann og hvergi stað- næmst fyr en komið er hæst á fellið. Þá leggur vegfarandinn óskir sínar í vald vættanna, sem byggja fellið, með þeirri von að látið verði skeika að sköpuðu um afdrif þeirra. Slíkar og þvílíkar eru stoðir íslenskrar þjóðtrúar, að tönn tímans hefir ekki í rúmar tíu aldir fengið máð burtu með öllu úr vitund þjóðarinnar þá trú, er Þórólfur Mostrarskegg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.