Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1936, Blaðsíða 1
oraKnM&foúts
18. tölublað.
Sunnudag-inn 3. maí 1936.
XI. árgangur.
ía*/olA*r^r*Bt«mtðj* k.f.
NDLANDSFAR
hlaðið gulli og gimsteinum
strandará Islandi
Dýrmætasti farmur sem til
landsins hefir komið.
Mesta manntjón á einu skipi.
Eftir ÁRNA ÓLA
HaustiS 1667 strandaði hjer við land stórt hollenskt kaup-
far, komið frá Austindium. Það hjet „Het Wapen van
Amsterdam“ og var hlaðið dýrara farmi en nokkurt annað
skip, sem hjer hefir strandað síðan land bygðist. Og aldrei
mun, svo sögur fari af, hafa orðið jafn mikið nuinntjón við
neitt strand eins og bá. Þótti mjer bví hlýða að reynt væri
að rifja upp alt það, sem menn vita með sannindum um
skipstrand þetta, eða geymt er í munnmælum. En þegar jeg
fór að rannsaka sögu þessa, sá jeg fljótt, að þar var ekki á
visan að róa, því að flest skjöl og skilríki frá þeim tíma
munu glötuð vera, cn annálum ber ekki saman að sumu leyti.
Þær heimildir, scm jeg hefi stuðst við um eftirfarandi frá-
sögn, eru þessar: Arbækur Esphólíns, Vallaannáll, Fitja-
annáll, Kjósarannáll, Hestannáll, Hirðstjóraannáll Jóns próf.
Halldórssonar, Annáll Magnúss Magnússonar sýslumanns,
Vatnsfjarðarannáll yngri, Sýslumannaæfir, Islands ártali
Gísla Konráðssonar, Alþingisbækur (1669) og Onze IJslands-
vaarders in de 17de en 18de Eeuw, doktorsritgerð ungfrú
M. Simon Thomas um siglingar Hollcndinga til íslands á 17.
og 18. öld (prentuð í Amsterdam 1935).
Þar sem heimildir greinir á, verður þess getið srnám sam-
an, og reynt að hafa það, er sannast þykir.
OKIFIÐ „Het Wapen van Am-
^ sterdam“ (Skjaldarmérki Am-
sterdam) var e'ign siglinga- og
verslunarfjelagsins Kamer Am-
sterdam. Var það eitthvert glæsi-
legas.ta skipið í hinum glæsilega
verslunarflota HolleUdinga á
þeim árum. Skipstjórinn hjet
Reynier Brinckman. Var skipið
smíðað til þess að halda uppi
siglingum milli Java (og Ind-
lands?) og Hollands, og var þetta
fimta ferð þess. Mætti því ætla,
að skipið hafi verið nýlegt, en
þess ber að gæta, að á þeim árum
var lengur verið að fara hverja
för frá Hollandi til Austurindía
og heim aftur, heldur en er nú
á dögum.
Á þessum árum var stríð mííli
Hollendinga og Englendinga
Hin stóru kaupför, sem til Ind-
lands sigldu og komu þaðan aft-
ur með liina dýrmætustu farma,
þorðu því ekki að sigla um Erm-
arsund, heldur fóru þau ve'stan
við Bretlandseyjar. Var það venj-
an að þau sigldi svo vestarlega,
að ensk herskip næði þeim ekki.
Kom það þá stundum fyrir að svo
ve'starlega var siglt í Atlantshaf,