Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1936, Blaðsíða 1
43. tölublað.
JiHorðMinl)íaí»sÍtT0
Sunnudaginn 25. október 1936.
XI. árangur.
k.f.
Frjettaritari Lesbókar í Færeyjum hefir
sent henni eftirfarandi grein:
R I NDADRA
Ævintýraleg
sem allir
og hættuleg veiði,
vilja taka þátt í.
Grindin króuð inni í vík, karlarnir uð stinga hana.
RINDABOÐ!
Grindaboð!
Köllin kveða við
um alla bygð. Ung-
lingar og börn
lilaupa á milli húsanna og hrópa:
Grindaboð!
Það er eins og skorin sje upp
herör. Karlmennirnir, sem eru
að heyvinnu uppi í hlíð, hætta að
vinna og hlusta.
Grindaboð! Það er komið
grindahlaup inn á fjörðinn! Allir
fleygja verkfærum sínum, þar
sem þeir standa og hlaupa sem
fætur toga til bygðar. Hestarnir
eru skildir eftir með aktýgjum,
ljáir og orf á víð og dreif. Hund-
arnir ærast og fara um kring
með gelti og ósköpum. Alt er í
uppnámi. Nú má ekki hugsa um
neitt nema grindina.
Heima fyrir er sami asinn á.
Konurnar taka til nesti handa
karlmönnunum í skyndi og þykk-
ar peysur og sjóklæði. Mennirnir
þrífa grindaspjót og skutul nið-
ur af vegg, festa hinn stóra
grindahníf við belti sjer og æða
svo niður til naustanna. Bátum
er skotið fram í skyndi, og um
leið og þeir fljóta, eru allir
komnir upp í. Þá koma konurnar
með nestisskrínur og hlífðarföt
og fleygja því út í bátana. Smá-
sveinar hlaupa fram og aftur í
fjörunni, hlæjandi og kallandi og
horfa aðdáunaraugum á mennina,
sem eiga að berjast við Jhvali. En
það er enginn tími til að kveðj-
ast. Grindin bíður ekki.
Fyrsti báturinn er kominn á
stað og beygir fyrir nesið. Svo
kemur hver báturinn af öðrum,
allir á fylstu ferð. Björgin berg-
mála skelli í hreyflunum og svart-
fugl og lundi flýja í dauðans of-
boði.
ORINDIN hefir sjest fyrir ut-
an Suðurvog, og fregnin
um það hefir farið sem eldur í
sinu um allar nálægar eyjar.
Vjelbátar með tvo eða þrjá
róðrarháta í eftirdragi stefna
hvaðanæva til Suðurvogar. Þeir
koma frá Straumey, Kolter, Sand-
ey og Vogey. Það eru næstu eyj-
arnar. En það koma líka bátar