Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1938, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1938, Blaðsíða 1
JftlorðttnMaðsinð 17. tölublað. Sunnudaginn 1. iraí 1938. XIII. árgangur. ÍMfold*r?r«atamiðja h.f. Forfeður mannkynsins Neanderthalmaðurin'n. Flestir kannast líklega við, að á síðustu áratugum hafa orðið til og dáið irt fjölmörg kyn hunda og annara liúsdýra vegna áhrifa mannanna. En líklega hafa færri gert sjer það ljóst, að á saina hátt hefir líka farið hjá mannkyninu, vegna áhrifa nátt- úrunnar, því að á liðnum öldum hafa kynflokkar þess verið marg- falt fleiri en nú. Þeir hafa komið fram hver af öðrum^ lifað og dáið út, ýmist fullkomlega eða svo, að þeir hafa skilið eftir sig nýja kynflokka, sem síðar liafa bland- ast og breyst alt til dagsins í dag. Leifar ýmissa þessara frummanna, — manna, sem líktust öpum og öpum, sem líktust mönnum, — finnast nú í jarðlögum, mýrum og gömlum hellum víðsvegar í ver- öldinni. Og öðru livoru koma þess- ir útdauðu kynflokkar jafnvel fram meðal nútímamanna, og þó líklega oftast Neanderthalmaður- inn, sem sumir vilja telja Charles Danvin, Beethoven og Schmeling hnefaleikakappa í ætt við! Sá þessara frummanna, sem er nærri jafn frægur og mestu stjórn- málamenn nútímans, er Peking- maðurinn, Sinanthropus pekinens- is, þótt hann hafi verið uppi fyrir heilli miljón ára. Nú í vetur þaut nafn hans enn einu sinni um allan hinn mentaða heim: efri kjálki úr honum hafði fundist. Sú tilkynn- ing kom frá Peking Union Medieal College, PUMC, ]iar sem mann- fræðingar vinna stanslaust þrátt fyrir stríð og neyð, og dr. Franz Weidenreich athugar rólega hin gömlu bein hinna fornu manna og dregur af þeim ályktanir, til að auka þekkingu okkar sem mest á sviði mannfræðinnar. I raun og veru eru aðeins til leifar tuttugu og fjögurra Peking- manna í Frummannasafninu í Pek- ing. En það voru aðeins hauskúp- ur, neðrikjálkar og ýms líkams- bein, þar til efrikjálkinn fanst í vetur þarna í Lao Niu Kou í hellaf jallinu við bæinn Chou Kou- Tien í suðvestur frá Peking, þar sem allar minjarnar hafa fundist. í safninu eru auk þess nokkur hundruð tannir úr „Pekingþjóð- inni“ og steináhöld, sem fundist hafa meðal beinaruslsins. Fyrir nokkrum mánuðum birt- ust ýms erlend blaðaviðtöl við dr. Weidenreich, sem er þýsk- Rhodesíumaðurinn. ur vísindamaður, er sjer um geymsluna á leifum þessa ógeð- felda frænda forfeðra okkar. I þeiin viðtölum ljet dr. Weid- enreich meðal annars í ljós, að tennur Pekingmannsins líkist mjög tönnum Mongólanna, en sjeu þó dálítið stærri, og að neðrikjálkinn minni mjög á Eskimóa, Lappa og hina fornu Norðmenn, er blandast höfðu Löppunum. Pekingmaðurinn er sem sagt Mongóli, en hefir auk þess vissa beinplötu í afturhluta hauskúpunnar, sem aðeiijs finst í kúpum hinnar vitdauðu Inkaþjóð- ar í Suður-Ameríku. Auk þess vantar hann framvaxna höku, eins og sjimpansinn og órangútanginn, en heilinn er mjög stór, þótt enn- ið sje lágt og afturhalt. Hendurn- ar^eru nær alveg eins og hendur nútimamannsins, en fæturnir eru frumstæðir mjög. Og augnabrún- irnar eru með stórum beinbogum. Dr. Weidenreich kvað auðsjeð ætt- armót með Sinanthropus og Neanderthalmanninum, sem og að Pekingmaðurinn væri maður, en ekki api, eins og margir hjeldu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.