Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 8
40Ö LÉSBOK morqunblaðsins Skáldið og heimilisfaðirinn Oorsteinn Erlingsson Frásögn frú Guðrúnar J. Erlings LEIFUR HEPNI. ESSI saga byrjar vestur í Ameríku. Þar var kona ein er hjet Miss Horsford. Hún átti íandsvæði á þeim slóðum, sem sagnfræðingar telja að Leifur hepni og fjelagar hans hafi farið um. Þar þóttist faðir hennar hafa fundið tóftarbrot og datt hon- um í hug að þar væru leifar af skálum þeirra víkinga. Nokkru áður hafði dr. Valtýr Guðmunds- son skrifað hina ítarlegu bók sína um byggingar Islendinga á lýð- veldistímanum. Það var mikið verk á sinni tíð og rómað. Það var doktorsritgerð hans. Til hans leitaði hin ameríska efnakona, svo að hún gæti fengið vísinda- legan úrskurð um hvort þessi til- gáta föður síns væri rjett. Nú geta menn furðað sig á því, hvað þetta kom Þorsteini Erlingssyni við og frú Guðrúnu konu hans. En orsakir liggja til alls, og orsakirnar til samfunda þeirra er að finna í hugleiðing- um þessarar amerísku konu. Hún vildi fá dr. Valtý vestur til þess að rannsaka þessar forn- leifar.Hann var ekki vanur forn- leifagreftri. — Doktorsritgerð hans var bygð á rannsóknum fornrita. Áður en hann færi vest ur vildi hann afla sjer kunnleika á fornum rústum og bæjartóft- um hjer heima. Heilsa hans og annríki hamiaði honum frá að leggja sjálfur í þann leiðangur. Hann fekk vin sinn Þorstein Er- lingsson í lið með sjer. Þorsteinn var þá búsettur í Höfn. Þeir voru miklir mátar. Og Þorsteinn fór til íslands til þess að takast þessa rannsókn á hendur. Miss Horsford borgaði brúsann. Þetta var sumarið 1895. Þegar Þorsteinn kom hingað til Reykjavíkur var hann óráð- inn í því, hvar hann ættti að bera niður til fornleifarannsókna sinna. Hann var hjer í Reykja- vík í nokkra daga til þess að at- huga sitt mál. Þá mætti hann eitt sinn Þórhalli Bjarnasyni þá- verandi prestaskólakennara. — Þeir voru góðvinir. Þórhallur bauð Þorsteini til kvöldverðar. Hann bauð nokkrum fleiri gest- um. Þar var m. a. Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi. Þá bar vel í veiði fyrir Þorsteini. Þeir tóku tal saman um fornminjar. Þorsteinn skýrði frá erindi sínu. Brynjólfur benti honum á, að á Tungufellsheiðum væri marg- ar fornar bæjartóftir. Hvatti Brynjólfur Þorstein að fara þangað, og eins í Þjórsárdal, en um þann stað munu þeir hafa hugleitt dr. Valtýr og hann. — Brynjólfur bauðst til að skrifa kunningja sínum sr. Steindóri Briem í Hruna og biðja hann að greiða götu Þorsteins. Síðan hjelt Þorsteinn þangað austur og til Tungufells. — Þar gisti hann. Þarl var hann um kyrt í tvo daga. Þar fekk hann fylgd upp í óbygðirnar til rann- sókna sinna. En í Tungufelli var Guðrún þá 17 ára stúlka. Þorsteinn gerði sínar forn- minjarannsóknir eins og um var talað. Síðan fóru þeir dr. Val- týr og hann vestur. Hugmynd Miss Horsford reyndist röng, er vestur kom. — Engin „fingraför“ Leifs hepna í hennar landareign. Og þar með er hún úr sögunni. En hefði hún ekki verið, hefði Þorsteinn Erlingsson aldrei kom- ið að Tungufelli. Á HEIMILI FRÚ GUÐRÚNAR. Hjer um daginn heimsótti jeg frú Guðrúnu á heimili hennar í Þingholtsstræti 33. Þar hefir hún búið ekkja í 25 ár. Húsið höfðu þau reist sjer árið 1911, þrem árum áður en Þorsteinn dó. Þar er alt með sömu um- merkjum og það áður var. Á stofuhurðinni er út að for- stofuganginum snýr stendur nafnskilti hans á hurðinni, þó aldarfjórðungur sje liðinn síðan hann hvarf þaðan. En þegar inn kemur er skrifborðið hans eins og það var, bókaskáparnir — alt, eins og hann skildi við það. I 25 ár hefir minningin um hann lifað í þessum stofum. Það er eins og sá andi friðar og kær- leika, sem altaf var utan um þann mann, sje þarna enn. ÞEGAR ÞORSTEINN ORKTI. Hvernig vann hann að kvæð- um sínum, hvernig var hann þegar hann orkti, var eitt af því fyrsta sem jeg spurði frú Guð- rúnu. Hún skýrði svo frá: Þegar hann orkti kvæði sín þurfti hann helst að hafa al- gert næði. Ýmist gekk hann um gólf, eða hann sat í ruggustól, sem altaf var í skrifstofu hans. Næði var honum nauðsynlegt, sagði hann, vegna þess að hug- myndirnar^ hendingarnar „eru eins og fuglar, sem fljúga burt og koma kannske aldrei aftur, ef mjer tekst ekki að handsama þær á fluginu". Jeg reyndi vitanlega sem jeg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.