Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1940, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1940, Blaðsíða 1
Jfóðrðunblaðsitið 39. tölublaS. Sunnudaginn 29. september 1940. XV. árgangur. l.«Jold*ryn—h.f. Liggur vegurinn þangað? Eftir Guðmund Gíslason Hagalín i. orski presturinn og skáldið, Anders Hovden, hefir skrif- að æfiminningar sínar. Sú bók er talin ein hin best ritaða og merk- asta af öllum bókum hans. í henni segir hann stutta sögu um það, hvernig hann fann sjálfan sig sem skáld. Nú eru liðin 15 ár, síðan jeg les bók Hovdens, og jeg er ekki viss um, að jeg muni söguna nákvæmlega í öllum atriðum, en hitt veif jeg, að kjarni liennar er mjer enn í fersku minni. Anders Hovden hneigðist snemma til skáldskapar. Hann var á skólaárum sínum, og síðan alla ævi, góður vinur skáldsins Per Sivles. Þeir voru báðir Vestlend- ingar og báðir landsmálsmenn. Sivle skrifaði ekki mjög mikið að vöxtunum, en það er viðurkent, að sögukvæði hans sum og enn- fremur smákvæði, mjög ljóðræns eðlis, sjeu með því snjallasta í ljóðlist Norðmanna — og er þá allmikið sagt. Einnig þykja sum- ar smásögur • hans prýðilega gerð- ar. Eitt íslenskt snildarskáld, Stef- án frá Hvítadal, lærði meira af Sivle en nokkru öðru skáldi, án þess þó að vera honum að nokkru háður. Anders Hovden bar jafnan á skólaárum sínum skáldskap sinn undir Per Sivle. Sivle var ekki harður í dómum, en Hovden fann það þó gjörla, að ekki var Sivle hrifinn af skáldskap hans. Hovden vildi tolla sem mest í tiskunni í því, sem hann orti, án alls tillits til þess, hvort efni og efnismeð- ferð var í nokkru samræmi við eðli hans, mótun og lífsreynslu. Svo var það eitt sinn, þá £i hann hafði sýnt Per Sivle skáld- skap eftir sig, að Sivle mælti at' móði og gremju; — Því í ósköpunum reynirðu ekki, jeg vil ekki ákveða asninn þinn, að velja þjer eitthvað það að yrkisefni, sem þjer þykir vænt um og þú þekkir nokkurnveginn til hlítar! Anders Iíovden stökk ekki upp á nef sjer. Hann hugsaði málið og orti síðan um efni af því tagi, sem Sivle hafði bent honum á. Hann sýndi svo Sivle kvæðið eða kvæðin og fjekk nú loksins þann dóm, að hann mundi vera skáld. Hann hjelt síðan áfram á þeirri braut, sem hann nú var kominn á, og hann varð skáld, sem fylti vel sitt rúm í bókmentum Norð- manna, þó að ekki teljist hann til hinna stærstu spámanna þjóðar sinnar. Þessi saga hefir mjer nii dottið í hug í sambandi við tvær nýút- komnar íslenskar skáldsögur, Liggur vegurinn þangað ?, eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson og Á bökkum Bolafljóts, eftir Guðmund Daníelsson frá Guttormshaga. 2. Allur skáldskapur er fyrst og fremst undir tvennu kominn: Inn- lifun höfundarins í efnið og svo auðvitað getu hans til að gefa því listrænt og viðeigandi form. Sum- um finst hið síðara aðalatriðið, en hve mikil sem formgeta höf- undarins kann að vera, mun hún ekki njóta sín, ef hann fjallar um efni, sem hann hefir ekki samlag- ast. Listræn mun yfirleitt ekki verða formun neins skáldskapar- efnis, ef höfundurinn er ekki ylj- aður af þeirri glóð, sem hin djúpa innlifun ein getur tendrað. En slík innlifun getur því aðeins kom- ið til mála, að efnið sje nátengt lífi höfundarins — eða hafi að mínsta kosti — þó ekki hafi hann kynst því nema í svip — haft á hann djúp og innileg áhrif, og ekki einungis á skynsemina, held- ur líka og kannske fyrst og fremst á tilfinningar hans — og þá um leið hið meira og minna ósjáli- ráða hugmyndalíf. Það, sem skáld- ritahöfundur þekkir út í æsar og hefir mótað hann dýpst og var- anlegast, ætti því yfirleitt að henta honum best sem yrkisefni. En svo fer það að allmiklu leyti eftir eðli höfundarins, hvað af því, sem hann hefir kýust náið og haft hefir á hann djúptæk áhrif, # getur orðið honum efni í góðau skáldskap. Sumir eru bjartsýnir að eðli og jákvæðir, aðrir svartsýnir og neikvæðir, sumir hreinir og beinir, aðrir margslungnir og sjálfum sjer sundurþykkir. Setn- ingar þær, sem Per Sivle sagði við Anders Hovden, voru sagðar með tilliti til þeirrar þekkingar, /

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.