Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1940, Blaðsíða 1
JMoí’awnblaSsáns
43. tölublaC. Sunnudaginn 27. október 1940. XV. árgangur.
Prestaæfir Sighvats Borgfirðings
mest lesna rit Landsbókasafnsins
Eftir Finn Sigmundssson magister
Prestaæfir Sighvats Gr. Borgfirðings í bókahillu í Landsbókasafninu.
Nokkur undanfarin ár hefir
enginn starfsdagur í Lands-
bókasafninu liðið svo, að ekki
væri beðið um Prestaæfir Sig-
hvats Grímssonar Borgfirðings.
Það mundi einhver hafa brosað
hjerna á árunum, þegar Skúli
Thoroddsen var að reyna að sargu
út úr þinginu 200 króna styrk
handa Sighvati gamla í Höfða,
til þess að hann gæti veitt sjer
þá ánægju að hverfa frá búhokri
sínu nokkrar vikur til fræðiiðk-
ana hjer í söfnunum, ef því hefði
þá verið spáð, að Prestaæfir hans
yrðu 30—40 árum síðar mest lesna
rit Landsbókasafnsins. En þetta er
nú samt komið á daginn, og mjer
finst vel mega vekja á því athygli.
ef vera kynni, að einhver góður
Vestfirðingur eða annar kunnug-
ur maður yrði þá fremur til þess
að minnast í ræðu eða riti þessa
einstaka eljumanns á 100 ára af-
mæli hans, sem nú er á næstu
grösum. — Eins og kunnugt er
eignaðist Landsbókasafnið öll
handrit Sighvats að honum látu-
um og eru þau þögult vitni um
geysilega elju og fræðiáhuga fá-
tæks bóndamanns við óblíð æfi-
kjör, og hefir Sighvatur, eins og
raunar margir fleiri fræðimenn úr
alþýðustjett, hlotið of litla viður-
kenningu fyrir mikið starf og ó-
drepandi þrautseigju við söfnun
og uppskrift margs konar fróð-
s
Sighvatur Grímsson Borgfirðingur
leiks, þó að ýmislegt fánýtt hafi
flotið með eins og jafnan vill
verða. En um Prestaæfir hans a.
m. k. er það að segja, að þar er
saman dreginn geysimikill per-
sónusögulegur fróðleikur, sem
handhægt er að hafa á einum stað
og mörgum kemur að gagni, sem
þess háttar grúski sinng.
★
Sighvatur Grímsson Borgfirð-
ingur var fæddur í Nýjabæ á
Skipaskaga í Borgarfjarðarsýslu
20. desember 1840. Voru foreldrar
hans Grímur Einarsson og Guðrún
Sighvatsdóttir, þurrabúðarhjón á
Akranesi. Ólst Sighvatur upp við