Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1943, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1943, Blaðsíða 1
2. tölublað. Sunnudagur 17. janúar 1943. XVII. árgangur. ..!.>ia»rpraotaml0J« kJ. ÍSLANDSFERÐ SIR JOSEPH BANKS 1772 Um þjóðhætti og þjóðarhag Eftir VILHJ. Þ, GlSLASON Joseph Banks, Esq. Myndin er gerð eftir málverki Sir J. Beynolds og er frá ferðum um þær mundir er Banks fór íslands- ferðiua. erkasti landkönnuður átj- ándu aldarinnar var James Cook og varð frægust Ástralíu- ferð hans 1770. Hann fór þrjár miklar rannsóknarferðir og var að síðustu veginn í viðureign við Suðurhafsmenn. Einn helsti sam verkamaður Cooks hjet Sir Joseph Banks, tiginn Englend- ingur og auðugur. Hann var fæddur 1743 og því nokkurveg- inn jafnaldri skáldsins sjera Jóns Þorlákssonar á Bægisá, svo að miðað sje við einhvern alkunnan Islending. Hugur Banks hneigðist snemma að íerðalögum og rannsóknum. -— H?.nr. fór til Nýfundnalands og Labrador, Ástralíh og Islands (1772). Hann var oft nefndur „faðir Ástralíu“. Hann varð mikill styrktarmaður vísinda og stundaði þau sjálfur. Hann var svo efnum búinn, að hann gat farið eftir tilhneigingum sínum og gert það eitt, sem hugur hans stóð til í þessum efnum. 1 Bretlandi var um þessar mundir nokkur áhugi á íslensk- um efnum og hafði verið síðan á sautjándu öld einkanlega. — Ýmsir helstu rithöfundar Eng- lendinga tóku að fást við íslensk eða önnur norræn fræði og höfðu þannig allmikil áhrif á enskan skáldskap. Gray, sem dó árið áð- ur en Banks fór í íslandsferðina, orti t. d. upp Darraðarljóð og Vegtamskviðu, Dryden hafði ort um Hervöru og Angantý o. m. fleira mætti telja. Svo var nokk- ur verslun milli íslands og Eng- lands. Þá má geta þess, að ferða- bækur frá. Islandi virðast hafa verið nokkuð lesnar meðal meiri- háttar manna á Bretlandi. Þann- ig segir Boswell fiá því um Samuel Johnson, að hann hafi lesið bók Horrebows, því að John son hafði oft orð á því í gaman- málum, þegar rætt var um þulu- lærdóm, að hann kynni utanbók- ar heilan kafla úr ferðabók frá íslandi. En það var sá makalausi kafli hjá Horrebou, sem hljóðar svo: „Um höggorma á Islandi. Á Islandi eru engir höggormar". Annars er einnig sagt, að Samu- el Johnson hafi eitt sinn sjálfur hugsað til íslandsferðar, en úr því varð ekki. Um þessar mupdir virðist það hafa verið nokkuð algeng skoðun í Bretlandi, að ísland væri eins- konar framhald eyjanna norður af Skotlandi. Töldu menn að þær og Færeyjar og ísland ættu að heyra saman að rjettu. Þá landa- fræði hef jeg einnig sjálfur heyrt fyrir fáum árum hjá ensk- um alþýðumanni í Oxford. Sama skoðun kom einnig fram hjá Sir Joseph Banks, er hann lagði fram fyrir ensku stjórnina hug- myndir sínar um það, að Eng- lendingar ættu að leggja Island undir sig. Menn hafa undrast það nokk- uð, hversvegna Banks fór íslands ferð sína og leitað á því ýmissa skýringa. Hann hafði eiginlega búið sig til þátttöku í öðrum leið angri Cooks til Ástralíu, en hætti við þátttökuna á síðustu stundu. Mun hafa valdið því ósamkomu- lag við flotastjómina. — Banks lagði sjálfur mikið fje til þess-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.