Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1945, Blaðsíða 26

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1945, Blaðsíða 26
644 LESBOK MORGUNBLAÐSINS festríðir sauðfje; aðrir kalla það vatnssótt; það sýnist eins og heil- inn í höfðinu verði að vatni, eða renni sundur. Doða og lakasótt kúa tilfellur ogsvo. Þeim hefir stundum. batnað við stólpípu, við brennivín segja aðrir, við kalfsiðrin soðin og látin ofan í þær segja þriðju. Og ekki veit jeg rök fyrir því hvort þetta er læknismeðal, eða batnar af sjálfu sjer til, en við stólpípu hefi jeg vitað bregða til bata laka- góttar kú. Alt það sem sú 38 spurning hefir um fornleifar finst hjer ekkei't, nema ef það væri dómhringar, garð- lög raikil, hróf og af haugiim þykj- ast menn sumir vita hjer og hvar. Grettistök. eru líka nefnd víða, þó Grettir hafi aldrei tekið á þeim hendi, því ef klettur er einhver af- burða stór, svo skal hann heita Grettistak. Lögrjetta er kölluð hjer í túni, máske eftir Hrafn. Það er ferhyrnt tóftarbrot, 4 faðmar á hvorn veg. Ilrófsmerki eru við sjó- inn, eftir tein- eða tolfæring; þar segiát skúta Hrafns hafa staðið í, í hverja synir hans hlupu, þá þeir komu sjer undan morði eður bruna. Ekkert veit jeg af fornsögum eða fornkvæðum nokkrum hjer í þess- ari sókn, því jeg tel ekki trjeka- leik, sem hjer er til, máske frá pápísku, en leturlaus. Skrúður IJr sóknariýsingu eftir síra Ólaf Indriðason á Kolfreyjustað. SKRÚÐSEY, alment kölluð Skrúður, upphá eins og lítið fjall, nærri kringlótt, 1/12 mílu á hvern veg, víðast hvar að sunnan, vestan og norðan sett misháum þverhnýpt- um björgum neðau til, en grasi vax- in að oían og að austan sumstaðar að sjómáli. Að austan gengur inn vík sú, er Hellisvík heitir; að henni heldur að sunnan flughátt bjarg, • en að norðan sæbrattar klappir. úpp af henni gengur hellir mikill, rúmlega 50 faðmar á lengd og með- al steinsnar á hæð. Ilann skiftist í tvo hluta af bergi því, sem tak- markar hann og inn í hann skerst á báðar síður skáhalt um miðbikið og myndar nokkurs konar stór- gjörvar dyr á hinum innra helli, sem eins og hinn er hvelfdur að ofan, en þó á þann veg, að mænir þvelfingarinnar liggur þvers yfir hellinum. Innri hellirinn breikkar fyrir innan dyrnar mikið til suðurs, og er þar nálægt 50 föðmum á breidd. Sá fremri er töluvert mjórri. 1 framhellinum er bjart að fram- an. Þar verpir fjöldi ritfugla upp um alt bergið, og er indæli mikið að skoða helli þennan, einkum um morguntíma framan af sumri, þá sólin skín upp á hann, alt er á ferð og ílugi, en kliður fuglanna og niður sjávarins kveður við í hinni tignarlegu byggingu. Allur hellirinn liggur í vestur og eru veggir hans innanverðir að sunnan og vestan þvergnýpt bjarg, en að norðanverðu gengur niður frá hvelfingunni alt fram til miðs, brött skriða mjög lausgrýtt, af bleikum sandsteini. Fyrir framan hana að norðan er aftur bjargvegg- ur undir mestöllum framhellinum. Gólf hellisins er ósljett og víða torfært af hraungrjóti er íallið hef- ir úr berginu. í innra hellinum er býsna draugalegt og dimt, því þar sjest engin skíma ntan lítil undir- lúrta þá er menn hafa staðið þar nokkra stund. Sjest þá fyrst óglögt til mænis og umhverfis innan um hellirinn. Þá sýnist tilsýndar inn- anvert, upp yfir skriðunni, litlar dyr, sein þegar gengið er upp í skriðuna og skoðað við Ijós, ekki er nema grunnur skúti upp í bergið Skrúður (Ljósm,: Björn Arnórsson.)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.