Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 5
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 497 Sölvahóll. (Teikn. Winstrups 1846). asi Árnasyni rokkasmið og bjuggu þau þarna. Synir þeirra voru þeir vegavinnuverkstjórarnir Árni og Erlendur í Kópavogi og Magnús bókhaldari í Keflavík og Ingibjörg, sem nú er nýlátin. Þar sem Berg stóð er nú Grundarstígur 2) 23. Hinriksbær. Þar rjett fyrir ofan, bygður um 1838, en nú rif- inn. (Þessi bær er kendur við Hin- rik Árnason frá Laugarnesi en hjet að rjettu lagi Efstibær. Þar er nú Spítalastígur 4). 24. Loftsbær. í neðri Þingholts- röðinni var norðastur bær, sem átti gamli Loftur, en er nú rifinn og þar komið tvíloftað hús; 1830 átti þann bæ Einar nokkur kallað- ur spámaður; sá bær var álitinn elstur í þeirri röð. (Þetta mun vera sama býlið og fyrst var kallað Þingholt. Þar risu seinna upp fjög- ur kot önnur. Bærinn var kendur við Loft gamla Þorkelsson frá Kleppi er þar bjó lengi, en þar áð- ur hafði hann verið kallaður Val- gerðarbær. Þar er nú Þingholts- stræti 3. Hinir fjórir bæirnir voru: 25. Magnúsarbær kendur við Magnús Arason, en oftast þó kall- aður Eirnýarbær í höfuðið á konu hans, Eirnýju Erlendsdóttur. Er- lendur Magnússon gullsmiður, tengdasonur Eirnýjar, reif bæinn og bygði þar timburhús. 26. Sigvaldabær, kendur við Sig- valda Nikulásson, afa sjera Ingvars á Skeggjastöðum. Þennan bæ keypti Erlendur gullsmiður líka er hann bygði. Þar sem þessir tveir bæir stóðu er nú ísafoldarprent- smiðja. 27. Sigríðarbær, kendur við ekkju, sem gætti þá kúa bæar- manna. 28. Suðurbær. Þar bjó lengi He!gi trjesmiður, faðir þeirra tónskáld- anna Jónasar og Helga. Helgi reif bæinn og bygði þar timburhús sem enn stendur (Þingholtsstræti 9). Það hús er bygt úr afgangi af Mentaskólatimbrinu, þegar hann var bygður. Þarna var oft gleð- skapur mikill, dansleikar haldnir í Suðurstofunni og kaffi drukkið í Norðurstofunni. Þar hafa margir mentamenn búið á námsárum sín- um). 29. Grænaborg. Um 1830 eða Htið seinna, bygðist Grænaborg og Mó- hús litlu seinna. (Grænaborg stóð fyrir sunnan Landspítalann, rjett þar hjá sem nú er samnefnt barna- heimili. Þann bæ bygði fyrst Gísli nokkur Gíslason og ræktaði tún- blett þar í kring. Seinna bjó þar lengi Hinrik sonur hans og sein- ast ekkja hans). 30. Móhús. (Það var syðst í Þing- holtunum. Þar ljet G. Lambertsen græða út mikið tún, alla leið nið- ur að tjörn. Um 1890 keyptu þeir Þórhallur Bjarnarson (síðar bisk- up) og Geir Zoega Móhús með allri lóð. Skömmu síðar varð Þórhallur einkaeigandi eignarinnar. Ljet hann þá rífa Móhús og byggja þar timburhús, sem haiin nefndi Lauf- ás, og enn stendur). Þá voru líka Stöðlakots og Skál- holtsþorpin í líku formi og nú er, en byggingar þó mikið betri nú orðið. 31.—33. Stöðlakot. (Þar bjuggu einu sinni fimm fjölskyldur, en býlin hafa þó naumast verið fleiri en þrjú: Norðurbær, Miðbær og Syðstibær. í Norðurbænum bjó einu sinni Jón Árnason ríki, er gaf bænum aleigu sína. (Jóns Árnasonar legat). Jón 'dó 1874. Þessi býli voru sunnan- við Bók- hlöðustíginn, gegnt fimlefkahúsi Mentaskólans). 34.—36. Skálholtsköt. (Þar voru einu sinni fimm fjölskyldur tómt- húsmanna en þrjú býífc-id) Þar bjuggu þau Ari Magnússon og Bergþóra Einarsdóttir „Dúks“ og er mikill ættleggur frá þeim kom- inn. Þessir bæir stóðu milli Lauf- ásvegar 19 og Bethaníu). MIÐBÆRINN Þá voru nú ekki fleiai þæjr fyr- ir austan læk. Fvrir vestan. læk voru 1830: 37. Lækjarkot, setn enn standa rústir af. (Þessi bær hjet áður Kirkjuból. Þann bæ reisti Einar Valdason frá Arnarhóli 1799 Síðar eignaðist Runólfur Klemensson bæinn og eftir dauða hans bjó þar Þorkell sonur hans og Jón sonur hans. Seinna eignaðist Ólafur Ólafs

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.