Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Blaðsíða 8
500 LESBOK MORGUNBLAÐSINS Mvnd úr bók Gaimards — líklcga Dúkskot. Ilclgakot í höfuðið á Helga nokkr- um Þorkelssyni, er það reisti. Seinna bjó þar Vigfús halti Pjet- ursson vefari og þá skifti bærinn um nafn. Þar bjó seinast Þórður útvegsbóndi Torfason faðir Þor- gríms Iæknis í Keflavík. Vigfúsar- kot brann með Glasgow). 65. Hóll eða Hólkot (var nyr^t í Grjótaþorpi. Þar bjó Asmundur faðir Jóns, sem lengi var afgreiðslu maður hjá Sameinaða. Ásmundur var afi Árna Eiríkssonar leikara og kaupmanns. Seirina bjó þarna Guðmundur Þórðarson, einn af Borgarabæjarbræðrum og gerði garðinn frægan. Hann var venju- lega kallaður Guðmundur á Hóln- um. Hann var mikils metinn borg- ari og bæjarfulltrúi. Nyrst á Hóls- lóðinni stendur nú Vesturgata 9, Hóll var oft kallaður ^Kófið“). 65. Borgarabær (var fyrir norð- an Brekkubæ. Hjet hann upphaf- lega Marteinsbær, kendur við Mar- tcin nokkurn Högnason, sem reisti hann. Guðmundur borgari Bjarna- son keypti bæinn af Marteini og upp frá því var hann altaf kallað- ur Borgarabær. Sonur Guðmund- ar var Þórður hafnsögumaður en synir hans hinir kunnu Borgara- bæarbræður: Guðmundur á Hóln- um, Jón í Hlíðarhúsum, Pjetur í Oddgeirsbæ, Þorkell í Grjóta og Sigurður í Steinhúsinu). 66. Höltcrsbær. (Hann hjet upp- haflega Þorfinnsbær og var kend- ur við Þorfinn Þorbjarnarson lög- rjettu mann, d. 1802. Seinna kcypti bæinn N. N. Melbye beykir og var hann þá kallaður Melbysbær. Síðar eignaðist hann Diðrik Hölter skó- ari og þá breytti hann enn um nafn og var kallaður Höltersbær). Höltersbær og Borgarabær voru rifnir samtímis og Glasgow bygð þar. Eru þar enn kjallararústii hennar. 67. Höll (Rjettu nafni hjet kot þetta Helluland, en var í skopi kallað Höll. Það stóð þar sem nú er vesturendinn á húsum versl- Geirs Zoega, andspænis Vestur- götu 11). 68. Dúkskot (var bygt um alda- mótin 1800 af Jóni Jónssyni frá Dúk í Skagafirði. Var hann alment nefndur Jón dúkur og þannig dró bærinn nafn af honum. Dúkskot var altaf talið með betri bæum. Jón var hálfbróðir sjera Jónasar i Reykholti föður Þórðar háyfirdóm- ara). 69. Gróubær (var kendur við Gróu Ingimundardóttur frá Brermu og stóð rjett hjá Dúkskoti. Gróa var móðir Margrjetar seinustu konu Einars Þórðarsonar prentara. Það er ekki ýkja langt síðan að Dúkskot og Gróubær hurfu og end- inn á Garðastræti var lagður yfir rústir þeirra). 70. Jafetsbær. (Þennan bæ mun hafa reist Einar Jafetsson íaktor og var hann þá kallaður Norður- bær. Seinna bjó Jafet Einarsson gullsmiður þar, d. 1872, og skifti bærinð þá um nafn. Hann stóð þar sem nú er Vesturgata 15). 71. Merkisteinn rifinn og þar komið steinhús. (Þessi bær stóð þar sem nú er Vesturgata 12. Þar bjó lengi Kristján Jónsson, er hafði verið leiðsögumaður á dönsku eft- irlitsskipi og þá tekið sjer nafnið Hágensen. Eftir það vann hann að snjómokstri á vetrum, en bikun báta á sumrin. „En á helgum dög- um klæddist Hágensen uniformi með gyltum hnöppum, leifum frá þeim tímum er hann var til or- logs“. 72. —78. Hlíðarhiísabæirnir eru í líku formi og 1830. (Þeir voru 7 alls og stóðu þar sem nú er Vest- urgata 24—26 og austurendinn af Nýlendugötu. Tún Hlíðarhúsa, Götuhúsa og Landakots náðu sam- an. Hlíðarhús voru sjálfstæð jörð. eign Helgafellskirkju á Snæfells- nesi. Bæirnir þarna hjetu: Vestur- bær, Norðurbær, Sundið, Skálinn, Miðbær, Jónsbær og Austuvbær. Voru þeir taldir með bestu bæum og þar hafa búið margir merkis- menn). 79. Melur, áður kallað Þónskot. (Stóð þar sem seinöa voru bvgð húsin Ás og Hof, Sólvallagata 23 og 25). 80. Landakot (var ein af bestu hjáleigum Reykjavíkur, en var lagt til innrjettinganna ásamt Götu- húsum. Skömmu eftir 1800 eign- aðist Petræus kaupmaður það og síðar L. M. Knudsen kaupmaður.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.