Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1956, Blaðsíða 1
FORFEÐIR VO
«——- —-----------------------------------------♦
VÉR vitum að landnámsmenn fslands komu frá Noregi, og vér
getum rakið ættir vorar til ýmissa höfðlngja er þar voru uppi á
8. öld, eða fyr. Þenna fróðleik geyma sögur vorar. En þar fyrir
framan var fortíðin myrkri hulin, þangað til fornfræðin kom til
sögunnar. Hún tekur við þar sem sagnamennina þrýtur og rekur
söguna á sinn hátt frá örófi vetra, segir oss frá lífsbaráttu og kjör-
um forfeðra, sem vér höfum engar sagnir af. Söguþjóðinni mun
þykja fróðlegt að kynnast þessu og því er hér í stuttu máli rakin
saga forfeðra vorra framan úr grárri forneskju. Greinin er byggð
á „Norges historie“ eftir Andreas Holmsen, fyrsta hluta hennar,
sem gerist löngu áður en sögur hófust og er eingöngu byggður á
þeirri fræðslu sem fornminjar veita.
4>----------------------------------------------
I.
STEINALDARMENN
&
R J Á R ísaldir hafa að minnsta
kosti gengið yfir Noreg, en á
milli þeirra voru hlýinda tímabil.
Bæði ísaldirnar og bilin milli
þeirra náðu yfir þúsundir ára.
Menn huggðu að á seinustu ísöld
hefði legið samfelldur jökull yfir
allan Noreg, og samkvæmt þeirri
kenningu hefði þá ekkert líf getað
þróazt þar um þúsundir ára. Allur
gróður hefði því átt að berast þang-
að eftir ísöld og dýr og menn kom-
ið þangað smám saman á eftir.
En nýustu rannsóknir sýna ann-
að. Nú er það vitað, að alla seinustu
ísöld voru +;1 'ökullaus svæði á
norður- og vesturströnd Noregs,
enda þótt samfelld íshella næði þá
suður á mitt Þýzkaland og langar
leiðir inn í Rússland.
Elztu minjar um mannabústaði í
Noregi eru fundnar þar sem sízt
skyldi ætla, langt norður á Finn-
mörk. Fyrstu bústaðirnir, sem
menn rákust á, voru hjá Komsa í
Altafirði, og vegna þess hefur þetta
verið kallað ,,Komsa-tímabilið“.
Þarna hafa frumstæðir veiðimenn
átt heima og gizkuðu sumir forn-
fræðingar á, að þeir hefði komið
þangað að austan. En þegar þess
er gætt, að á seinustu ísöld var ein
íshella frá Finnmörk austur fyrir
Elztu steinsverkfæri fundln í Altaflrði:
tvær sköfur og broddur.
■’wl