Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.1956, Blaðsíða 1
Tómas Tryggvason:
IBarjgtmM&íiá
Sunnudagur 27. maí 1956
XXXI. irg. ,
19. tbl.
Jarðscrja Þingvalla
þEGAR rannsaka skal og rekja
jarðsögu einhvers svæðis, er
hægt að líkja því við bitaþraut, þar
sem nokkur hluti bitanna er glat-
aður. Þrautin er sú, að koma þeim
bitum, sem ennþá kunna að finn-
as* á réttan stað og fylla síðan í
eyðurnar með hjálp hugmynda-
flugsins eins og sennilegast má
þykja. Úrlausnin verður því með
persónulegum blæ, og ætíð getur
orkað tvímælis, hvort allir bitarnir
séu rétt lagðir og að fyllt sé í eyð-
urnar á réttan hátt.
Land okkar er einkum skapað og
mótað fyrir tiíverknað tveggja
meginafla, elds og ísa. Sem þriðia
meginafl mætti nefna öfl í jarð-
skorpunni, sem vaida misgengi og
öðrum jarðskorpuhræringum, en
þær koma mjög við jarðsögu Þing-
vallasvæðisins.
Talið er að ísland hafi verið þak-
ið jöklum um milljón ára skeið, og
að ekki séu liðin nema 10.000 ár
síðan ísöldinni' létti. ísöldin var
ekki látlaus fimbulvetur, heldur
skiftist hún í kaldari og hlýrri
tímabil.. Á kuldaskeiðunum huldi
jökull landið, en á vortimabilun-
Frá Þingvolluns
*
t