Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1956, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1956, Blaðsíða 1
Séra Jón Auðuns dómpróíasiur: ARFUR SKÁLHOLTS ■^G ÍHUGA fyrri daga, ár þau, sem löngu eru liðin“, sagði eltt af skáldum Hebrea, en hví skyldum vér minnast hins liðna? Geymist það ekki bezt í djúpum óminnisöldunnar, sem flestu skol- aði burt, sem áður var, eða lukti það hrönnum blárra vatna? Iiví skyldum vér setjast við hin gömlu kumbl og kalla fram myndir og minningar þess, sem níu aldir haía breitt yfir voð hins græna svarð- ar og gleymzku? I veltandi straumiðu stundar, sem líður, og hróðugir yfir afrek- um, sem vér eigum örlitla hlut- deild í, er það heilsusamlegt að sitja við hin gömlu kumbl. Daglega lesum vér, daglega heyrum vér um þær dáðir, sem Öld vor hefir drýgt. Og vér tölum stundum eins og vér hefðum skap- að þetta ein á fáur> áratuf’” •’ i :i't 0£? r’“” ' að Pallas Aþena hefði í einu veí« fangj. . höíði Seiís. Vér gleymum því, að ræturnar liggja aítur í aldir, sem löngu eru liðnar. Vér gleymum því, að það, Séra Jón Auðuns. sem vér erum hróðug yfir, höfum vér ekki skapað nema að hverfandi litlu leyti, að það er aríur, sem h.eíir safnazt saman á öldum og árþúsundum. Vér lifum á fórnum, sem fyrir löngu voru færðar. Vér njótum ávaxtanna af baráttu manna, sem fyrir löngu luku veg- ferðinni um jörðina. Væri snilld Matthíasar hugsan- leg, ef Egill á Borg hefði ekki kveð- ið á norræna tungu þúsund árum fyrr? Væri trúaróður Hallgríms til, ef Eysteinn hefði ekki slegið hörpuna og kveðið Lilju löngu fyrr? Og hefði Lilja fæðst, ef harpa Davíðs konungs hefði ekki ómað gegn um aldir áður? Hefðum vér 1 eyrt hið volduga tónahaf kantöt- unnar í Skálholti, ef Bach og aðrir hefðu ekki áður sungið trúðaróð sinn í tónum? Og einnig þeir lifðu á arfi, sem eldri kynslóðir létu þeim eftir. „Er mælt hér eitt orð, sem ei fyrr var kunnað?“ Tungan er aríur, ættirnar hafa sorfið stálið, mótað málminn og brætt, og þess vegna liggur oss þetta fagra mál á vör- um í dag. Flest þeirra verðmæta, sem vér njótum, eru gamall arfur, og vér þiggjum þann arf með tvennu móti: sem blóðarf eða samfélags- arf. Blóðeríðin mótar líkamleg og sálarleg einkenni vor. Eríðavísind- in geta rakið hana og ílokkað. Hin menningarlegu, truarlegu, list-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.