Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lesbók Morgunblašsins

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lesbók Morgunblašsins

						LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

643

skyldu fylgjast að, og binda sig

svo saman þegar ofar drægi og

nauðsyn kræfi. Leiðtogi hverrar

sveitar skyldi verða fyrstur á kaðl-

inum og sá veikasti í miðið, eins og

venja er.

Glaða tunglskin var og svalt í

lofti þegar við komum út, og ekki

leið löng stund þar til allur hópur-

inn hélt af stað. Leiðin lá fyrst

skáhallt upp eftir jökulfönnum lítt

sprungnum. Hjarnið var svo stíf-

frosið, að ekki var viðlit að fóta sig

án jöklabrodda. Okkur miðaði vel

áfram, en þó mun það hafa tekið

um tvo tíma að komast upp á há

Cowlitz ranann uppi undir Gíbralt

ar klettinum, sem skagar út úr hlíð

um fjallsins eins og heljarmikill

höfði, þverhníptur á þrjá vegu.

Þarna var áð um hríð.

Áður hafði verið fært eftir sillum

utan í Gíbraltarklettinum, þannig

að engin hæð tapaðist. Fyrir nokkr-

um árum hafði hins vegar hrunið

mikið úr klettunum svo að þessi

leið lokaðist, og vorum við einn

fyrsti hópurinn, sem fékk leyfi til

að klífa fjalhð þessa leið eftir hrun

ið. Nú var ekki um annað að ræða

en láta sig síga niður á stalla fyrir

neðan okkur. Kaðli hafði verið kom

ið fyrir á þessum stað okkur til ör-

yggis. Létum við okkur fyrst síga

niður  eftir brattri skriðu og svo

Kákin, sem farið er

eí'tir framan í

Gibraltar-klettinum.

fram af tveggja mannhæða háum

stalh. Þarna gátum við sleppt kaðl-

inum og fylgt sillu skáhallt upp

eftir. Neðan við okkur skiptust á

brattar skriður og klettabelti, og

þar fyrir neðan brattur og sprung-

inn skriðjökull, annar armur Nisqu

ally jökulsins. Á hægri hönd höfð-

um við vesturvegg Gíbraltarkletts-

ins.

Framundan á vinstri hönd voru

heljarmiklir íshamrar, og slitnar

jökulhnn þar alveg í sundur. Milli

þessara íshamra og klettsins mynd-

ast eins konar skarð, sem helzt

mætti líkja við tröppur. Þarna

bundum við okkur saman og lögð-

um í ísþrepin, sem fyrst í stað voru

mjög brött. Við hækkuðum ört og

vorum brátt komnir jafnhátt brún

íshamranna. Yfirborð jökulsins var

afar ógreiðfært þarna á brúninni,

alsett ísgöddum með djúpum skor-

um á milli. Sum þessara öflugu

grýlukerta náðu meðalmanni í

mitti.

! ! !

Sóhn var komin upp fyrir

nokkru en við vorum ennþá í tungl

skini í skugganum af Gíbraltar-

klettinum. Litbrigðin voru hrífandi

er sólin og tunghð kepptust um að

baða landslagið blæbrigðum sínum.

Klukkan var nálægt átta um

morguninn þegar við náðum jökul-

hálsinum, sem tengir Gíbraltar-

klettinn við háfjallið, og vorum við

í 12 þúsund feta hæð. Þarna var

hvílt um hríð og snætt, enda vor-

um við loks í sólskini.

Austan við Gíbraltarklettinn

fellur Ingraham jökullinn niður

brattur og sprunginn, og hálffyllir

skarðið á milli Gíbraltar og Little

Tahoma, sem er há klettastrýta í

austurhlíðum Rainiers. Áður hafði

Ingraham jökulhnn verið vinsæl

gönguleið á f jallið, en var nú tahnn

of sprunginn og erfiður uppgöngu.

Það mátti sjá að svo var.

Framundan okkur var nú aðeins

Ishamar í jöklinum

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 633
Blašsķša 633
Blašsķša 634
Blašsķša 634
Blašsķša 635
Blašsķša 635
Blašsķša 636
Blašsķša 636
Blašsķša 637
Blašsķša 637
Blašsķša 638
Blašsķša 638
Blašsķša 639
Blašsķša 639
Blašsķša 640
Blašsķša 640
Blašsķša 641
Blašsķša 641
Blašsķša 642
Blašsķša 642
Blašsķša 643
Blašsķša 643
Blašsķša 644
Blašsķša 644
Blašsķša 645
Blašsķša 645
Blašsķša 646
Blašsķša 646
Blašsķša 647
Blašsķša 647
Blašsķša 648
Blašsķša 648