Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lesbók Morgunblašsins

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lesbók Morgunblašsins

						646

LESBÓK MORGUNBLADSINS

finnst vatn með spákvisti, þá getur eng-

inn mannlegur máttur haft þá ofan af

því að spákvisturinn sé alveg öruggur.

En jarðfræðingar eru nú ekki á þessu,

þeir telja þetta allt saman hjátrú og

kukl. Þeim finnst þó eðlilegt að trúin

á spákvistina skuli haldast meðal al-

þýðu. Menn sé gleymnir og því sé ekki

haldið á loft ef spákvistur bregst. En

ef vatn finnst þar sem sjákvisturinn

bendir á, liggi það ekki í láginni og

sjónarvottar að því sé sanntrúaðir á

mátt spákvistsins. En í rauninni sé

þetta loddaraskapur og vísindunum til

óþurftar.

Hinir, sem trúa á spákvistana, hafa

ekki látið sitt eftir liggja. Árið 1953

kom út bók, sem heitir „Sjöunda skiln-

ingarvitið" (The Seventh 'Sense), og er

eftir mann sem heitir Kenneth Rob-

erts. Hann segir þar ýmsar sögur af

vini sínum, spákvistmanninum Henry

Gross.

Skóla í Hollis í New Hampshire vant

aði vatn og Gross var beðinn að athuga

hvort nokkrar líkur væri til þess að

vatn væri þar í jörð. Gross athugaði

landið og sagði að þar væri sex vatns-

seðar í jörð, og ekki nema 10—17 fet

niður á þær. Nú var farið að grafa og

var komið niður á vatn í rúmlega 10

feta dýpi. Svo var grafið víðar og

fannst þá vatn alls staðar þar sem

Gross hafði vísað á það, en var þó alls

2 gallónum minna á mínútu, heldur

en hann hafði gizkað á. Skólastjórnin

gaf honum skriflegt vottorð um þetta.

Árið 1951 voru miklir þurkar í Texas.

Þá leituðu bændur til Gross. Hann sagði

þeim að þar væri víðast salt vatn í jörð,

en inn á milli væri neðanjarðarlindir

með tæru vatni. Þegar farið var að

grafa brunna þar, kom salt vatn úr

sumum, en úr öðrum kom „það bezta

vatn, sem fundist hefir þar í landi".

Og svo klykkir Roberts út með þessu:

„Það er aðeins hér í Bandaríkjunum

að viðkvæmir smávísindamenn og dindl

ar þeirra halda því blákalt fram að

vatnsleit með spákvisti sé ekkert annað

en hjátrú og hindurvitni".

Alveg nýlega er svo komin út önn-

ur bók, ..Vatnsleit með spákvisti í

Bandaríkjunum" CWater Witching

U. S. A.). Hofundar hennar eru mann-

fræðingurinn Evon Z. Vogt og sálfræð-

ingurinn Ray Hyman. Þeir hafa rann-

sakað þessa vatnsleit og fengið um-

sagnir 500 búfræðiráðunauta. Þeir

halda því fram, að notkun spákvists

muni eiga eitthvað skylt við borðdans

og ósjálfráða skrift. Hér er um að ræða,

segja þeir, áhrifanæmi, vakandi eftir-

vænting og ósjalfráðar vöðvahreyfing-

ar. Maður haldi fast um teinungana og

sveigi þá jafnvel hvorn að öðrum. Þarf

þá ekki annað en hann lini takið ósjálf-

rátt aðeins andartak, þá hlýtur kvi-jí-

urinn að hreyfast í höndum hans. Þeir

segja að þetta sé svipað kukli frum-

stæðra þjóða, en neita því þó ekki að

fyrirbrigðin eigi sér stað. Og reynslan

sýni, að ýmsir bóndabæir sé reistir á

hinum ólíklegustu stöðum í landeign-

inni, vegna þess að þar hafí spákvist-

menn bent á vatnsból.

í sambandi við þetta má ef til viil

minnast á þann sið, sem iðkaður var í

sveitum á íslandi áður en klukkur

komu, en það var að láta völu slá í

bolla og segja til um hve framorðið

væri.

Þetta var gert þannig: Bundið er

mjóum spotta um sauðarvölu; síðan var

tekinn bolli og mælt á bandinu frá

völunni þvert yfir hann barma á milli

þrisvar sinnum. Þar tók maður svo um

bandið með vísifingurs og þumalfing-

ursgómi, hafði bollann á gólfinu og sett

ist við hann. Alnboga var svo stutt á

hné og höndin látin síga þar til valan

var yfir miðjum bollanum og í hæð

við barma hans. Nú var um að gera að

halda höndinni þannig alveg hreyfing-

arlausri. Eftir litla stund fer valan að

hreyfast, fram og aftur, aftur og fram.

Hún herðir smám saman á sér þangað

til hún kemur við bollabarminn og slær

jafn mörg högg í hann eins og klukkan

á að vera, þrjú högg ef hún er þrjú,

fjögur högg ef hún er fjögur o. s. frv.

Síðan hættir valan að slá og hægir nú

smám saman á sér, þangað til hún er

alveg kyr. En svo fer hún að hreyfast

aftur, og þá þveröfugt við það sem áð-

ur var. Hún herðir smám saman á sér

unz hún hefir slegið jafn mörg högg í

bollabarminn og áður. Þá hægir hún á

sér á ný, og þannig koll af kolli.

Margir trúðu því, að þetta væri alveg

öruggt ráð til þess að vita hvað klukk-

an væri, ef maður gætti þess vandlega

að hreyfa ekki höndina, sem helt um

spottann. Og nú getur hver sem vill

reynt þetta sjalfur og gengið úr skugga

um, að þessi einfalda aðferð bregzt

varla, ef rétt er að farið. Undarlegt —

er ekki svo?

^J\om éa ao S^tao

!9

í-^a^G^j

Séra Jónmundur

Hvílíkur sjónarsviptir:

Séra Jónmund á Stað

hittum vér aldrei aftur,

er vér ríðum í hlað.

Kirkjan er köld á hólnum,

klukkurnar þegja við,

klerkur liggur lagt í mold,

luktur í grafar frið.

Hann stígur ei framar í stólinn

og stríðir á vantrú og synd,

né krýpur á bæn í kórnum

við krossfesta lausnarans mynd.

Hér bjó hann með krafta í kögglum

og keppti við storm og sjó,

og lét ei bölið sig bæla,

en beit á jaxlinn og hló.

Lokið er ævinnar amstri,

önnin hans hlutskipti var.

Hann gróf ei sitt pund í grýtta jörð.

góðan ávöxt það bar.

Svo hvíldu þá hér í friði,

hjarta þitt kaus sér leg,

þú hefur gengið með glöðum

og grátnum hinn langa veg.

Q.í.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 633
Blašsķša 633
Blašsķša 634
Blašsķša 634
Blašsķša 635
Blašsķša 635
Blašsķša 636
Blašsķša 636
Blašsķša 637
Blašsķša 637
Blašsķša 638
Blašsķša 638
Blašsķša 639
Blašsķša 639
Blašsķša 640
Blašsķša 640
Blašsķša 641
Blašsķša 641
Blašsķša 642
Blašsķša 642
Blašsķša 643
Blašsķša 643
Blašsķša 644
Blašsķša 644
Blašsķša 645
Blašsķša 645
Blašsķša 646
Blašsķša 646
Blašsķša 647
Blašsķša 647
Blašsķša 648
Blašsķša 648