Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1960, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1960, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 123 Hólmfríður Daníelson; Islenzkur kvenlæknir sem lengi var i Kína ÞANN 20. janúar síðastliðinn átti dr. Steinunn Jóhannesdóttir Hay- es 90 ára afmæli. Er því e. t. v. tímabært að minnast lítillega þess- arar gáfuðu, menntuðu og fórn- fúsu konu, sem eytt hefir meiri hluta ævi sinnar til þess að hlynna líkamlega og andlega að vesælum lýð í verstu fátækrahverfum Kína. Steinunn Hayes er fædd að Eystra-Miðfelli á Hvalfjarðar- strönd 20. janúar 1870. Faðir hennar var Jóhannes Jónsson, en móðir hennar Ellisif Helgadóttir. Ellefu ára missti Steinunn föður sinn, og brauzt hún í því þrem ár- um síðar að fara ein síns liðs til Ameríku. Fyrst kom hún til Winnipeg, þar sem hún vann fyrir sér í þrjú ár og reyndi að læra ensku. Frá barnæsku hafði hún verið trúarsterk og hún treysti guði til að leiðbeina sér áfram í lífinu. Hana langaði til þess að verða öðrum að liði, en til þess varð hún að afla sér menntunar. Fór hún nú til Bandaríkjanna fyrst til Norður-Dakota, en skömmu síðar til Chicago. Réðst hún nú í það stórræði að nema guðfræði, en vann fyrir sér samtímis. Hún útskrifaðist í guðfræði í Chicago og tók þjónustu sem aðstoðarprest- ur í Indiana og síðar í Oregon. Fór hún svo til Los Angeles og aðstoð- aði prest við Baptistakirkju þar. Um þetta leyti var við nám í læknaskólanum við háskólann í Suður-Kaliforníu ungur maður að nafni Charles Arthur Hayes, glæsimenni mikið og góður söng- maður. Hann var vel ættaður, kominn af skozkum og enskum ættum, sem komu til Ameríku með hinum allra fyrstu innflytj- endum, um 1670. í föðurætt var hann náskyldur Rutherford B. Hayes, sem var nítjándi forseti Bandaríkjanna, og ákaflega fær og réttsýnn maður. Charles Hayes var trúmaður mikill og hafði ásetfi sér að helga guði líf sitt. Það var einn dag að barið var að dyrum hjá Hayes íjölskyldunni. Þar var fyrir ung stúlka og kvaðst heita Alice Johnson (Steinunn Jó- hannesdóttir). Var hún komin sém trúboði frá Baptistakirkjunni. Ekki gat hún fundið neina mein- bugi á guðrækni og trúarskoðun unga mannsins, en þeim tók að geðjast mjög hvoru að öðru. Ári seinna hittust þau aftur á læknaskólanum, því nú hafði Steinunn tekið þá ákvörðun að verða læknir og taka síðan að sér starf sem trúboðslæknir í Kína. Þetta var einnig áform Charles Hayes. Tóku þau nú bæði að kynna sér allt, sem mögulegt var um Kína og ástandið þar, en það var ekki álitlegt. Um árið 1900 stóð yfir hin svonefnda „Boxer“ upp- reisn í Kína, sem var hafin til þess að útrýma öllum útlendingum úr landinu. í þessari ægilegu uppreisn var líflátinn fjöldi af trúboðum ásamt fjölskyldum þeirra, nær því tvö hundruð að tölu — menn, konur og börn, og mörg þúsund Kínverjar, Frú Steinunn Hayes Steinunn (Alice) útskrifaðist frá læknaskólanum í febrúar 1902, með hæstu einkunn — 96 stig að meðaltali í öllum greinum! Skömmu síðar giftist hún Charles Arthur Hayes, sem einnig var út- skrifaður sem læknir. Lögðu þau nú upp í brúðkaupsferð sína, en það var hin langa og erfiða leið til Kína. En þeim túr lauk ekki fyrr en fjörutíu árum síðar! Fyrst lentu þau í Hong Kong, en fóru þaðan til Canton, en þar mættu þeim trúboðar, sem fyrir voru og komu þeim til eyarinnar Macao, sem tilheyrir Portúgal ,til þess að þau mættu hafa næði til að læra kínverskt mál. Því næst var þeim álagt að verða trúboðslæknar í innlendu héraði í borginni Ying Tak. Eftir nærfellt tíu daga ferð upp fljót, sem nefnist Norðurá, komu þau til Ying Tak, sem taldi um 40,000 íbúa. Trúboðar höfðu verið þar í nokkur ár en aldrei fyrr hafði sést þar hvít kona! Var því unga hetjan frá íslandi alein innan um hinar gulu þúsundir. Borgin var full af pestarbælum, óþrifnaði og eymd. Til þess að geta hjálpað hinum aumu, urðu nú trúboðshjónin að reyna að útrýma

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.