Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1966, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1966, Blaðsíða 3
LOD Eftir Mercé Rodoreda „V iltu sjá?“ var hann vanur að segja. í þessum blómareit, sem ekkert var, ræktaði maðurinn minn georgín- ur á hverju ári. Hann gerði holu með fieyg í mjúka moldina, og ég rétti honura laukana einn eftir annan, og hann setti þá niður og þakti þá varlega. Og á •kvöldin, þegar hann sagði „komdu“ og vafði mig örmum og lét mig halla mér að öxl sér, — hann sagðist ekki geta sofnað án min —, þá fann ég þessa unaðslegu lykt af mold, jafnvel þótt hann hefði þvegið sér um hendurnar. Og maðurinn minn sagði, að georgín- urnar væru börnin okkar, því að hann var þannig maður, skal ég segja ykkur, fullur af glensi og gríni til að koma mér til að hlæja. Ég vökvaði þær á hverjum degi, og þegar maðurinn minn kom heim frá vinnu, þá sá hann, jafn- skjótt og hann gekk inn í garðinn, að moldin í reitnum var rök, og hann sagði um leið og hann kyssti mig: „Ertu búin að vökva georgínurnar?" Og mér sem þótti svo lítið til um þessi blóm, þegar ég var ung, af því að þau ilma svo sterkt! En núna, þegar ég geng framhjá blómabúð eða garði, þar sem vaxa georgínur, þá staldra ég við til að horfa á þær, og það er eins og hönd, stór hönd og sterk, grípi um hjarta mér og þrýsti það snögglega, og það kemur yfir mig nokkurs konar vanlíð- an. tr annig var, að þegar við giftum okkur, þá lá við, að faðir minn afneit- aði mér, vegna þess að hann vildi ekki, að ég giftist manninum mínum, af því að maðurinn minn var óskilgetinn; en ég var yfir mig ástfangin og hlustaði ekki á hann, og að ári liðnu dó faðir minn. í fyrstu hélt ég, að hann hefði dáið, af því að hann var orðinn gamall, en eftir því sem árin liðu, gerði ég mér grein fyrir, að hann hafði tekið sér svo nærri óhlýðni mína, að hún reið honum að fullu. Og stundum á kvöldin, þegar maðurinn minn sagði „komdu“, langaði mig til að gráta. Við vorum hamingjusöm, við elskuð- um hvort annað og höfðum nóg í okk- uv og á, því að ég hafði vinnu: ég saum- aði barnaföt, og saumastofan, sem ég vann fyrir, var ánægð með mig, og við lögðum alltaf eitthvað fyrir, ef ske kynni, að annað hvort okkar veiktist.... t>ið sjáið mig núna, og vera má, að þið haldið, að þannig hafi ég alltaf litið út, ekki satt? Ef þið bara vissuð, hvað ég var snotur . . . Meðan við vorum að draga okkur saman, kom fyrir stund- um, að maðurinn minn varð þegjanda- legur og gerði ekkert annað en að horfa á mig, og svo strauk hann mér um kinnina með einum fingri og sagði lágt, eins og hann skammaðist sín ofurlítið fyrir að segja það: „Fallega stúlkan mín“. Ekki svo að skilja, að ég væri ein af þessum stúlkum, sem tekið er eftir, alls ekki, en ég hafði sindrandi augu og blíð: þau minntu á flauel... Afsak- ið, en ég get talað þannig núna, það er eins og að tala um látna dóttur. >ið skiljið, hvað ég á við. Ég hugsa, að ógæfan hafi stafað af því, að ég þrosk- aðist mjög snemma, og hún byrjaði, þegar árin tóku að segja til sín. Áður fyrr var ég aldrei í vondu skapi nema nokkra daga í mánuðinum, og þegar ég var í vondu skapi, sagði maðurinn minn hlæjandi: „Ég veit, hvað er á ferðinni“. Og hann hafði alltaf rétt fyrir sér. Og það var einmitt á breyt- ingartímabilinu, sem maðurinn minn missti stöðuna. Eigandinn varð gjald- þrota, og þegar maðurinn minn hafði verið heima fyrir í nokkra mánuði, aðgerðalaus og niðurdreginn, jafnvel þótt ég segði honum að vera ekki með áhyggjur, þar sem við hefðum nóg að bíta og brenna, þá var það, að vinur hans, sem var þjónn, fór að tala um það við hann, að þjónsstaðan væri ekki sem verst starf og þar að auki fremur auð- velt, og hann gerðist þjónn, þótt hann ætti í rauninni betur heima á skrif- stofu. egar maðurinn minn hafði gegnt þessu þjónsstarfi í sjö eða átta mánuði, varð ég lasin af blóðleysi, þar sem ég lagði hart að mér við vinnu og gat ekki sofið á nóttunni; það var af því, að ég beið eftir manninum mínum, þegar hann kom seint heim, og síðan var mér ó- mögulegt að festa blund. Hann svaf vært, en á meðan hann svaf, bylti hann sér alltaf í rúminu og svipti af mér sænginni. Því var það, að við seldum hjónarúmið og keyptum okkur tvö rúm. Þannig tókum við að fjarlægjast hvort annað. Þegar tunglsljós var úti, horfði ég á hann úr rúminu mínu, og mér fannst sem hann væri langt, langt í burtu, því að við gátum ekki snert hvort annað, og það var eins og við værum ekki lengur til hvort fyrir öðru. „Sefurðu?“ spurði ég, og ef hann sagði „nei“, varð ég róleg, af því að ég hafði heyrt í honum röddina. Og ef hann svaf og svaraði mér ekki . . . Þarna sjá- ið þið, hvað smámunir geta gert eina manneskju óhamingjusama. Og svo kom að því, að ég fór að halda, að hann léti sem hann svæfi, þegar hann svar- aði mér ekki, og grét ég þá í hljóði, alein; þannig var að maðurinn minn vann í kaffihúsi á Römblunni, og þar er allt fullt af stúlkum. Eina nóttina grét ég af því, að ég var að hugsa um föður minn, sem hlaut að hafa dáið einn og yfirgefinn, þar sem hann hafði misst mig, einungis vegna þess, að ég elskaði manninn minn. í þetta sinn reis maðurinn minn upp, settist á rúmstokkinn hjá mér og spurði: „Hvað gengur að þér?“ í stað þess að sefast, tók ég að gráta enn sárar, og maðurinn minn lagðist þá við hliðina á mér og vafði mig örmum og lét mig halla mér að öxl sér, eins og hann var vanur að gera áður fyrr. Hann sagði: „Ekki á morgun heldur hinn er sunnudagur, og þá skulum við setja niður georgínurn- ar. Reyndu nú að sofna". En við gátum ekki sofið, og við sáum birta af degi, og þennan sama dag, þegar hann kom heim frá vinnu, sagðist hann vera dauð- þreyttur og með höfuðverk, og það væri allt mér að kenna. Ég hitaði hon- um te, en hann vildi það ekki. Að lok- um tók hann inn aspiríntöflu, og hann var náfölur. ]\ okkrum dögum síðar sagði hann við mig: „Manstu eftir stúlkunni, sem LJÓÐ Eftir Friðrik Guðna Glitvana orð eins og kynlegir kvistir spretta á kalviðarhríslum skóga er frostnætur þola — Lind streymir þurr og þögninni er stakkur skorinn þjóð gleymir ljóma og hljómi þess gulls er hún sáði. En vonglaðar tungur á vegunum ávallt syngja vaxa mun fjóla í garði þar dögg svalar stráum. Svifglaðir vængir um ljósvakann bláan líða leiðin mun öllum greið er til vegar spyrja. 3. júií 1966 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.