Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1967, Blaðsíða 2
* að þóttu eigi alllítil tíðindi,
þegar kvisaðist að Lee Bouvier Rad-
ziwill, sem öðlaðist prinsessutitil við
giftingu sína og pólska prinsins
Stanislas Radziwills hygðjst leggja
út á leiklistarbrautina. Lee Radzi-
will varð kærkomið slúðurdálkaefni
heimsblaða, þegar eldri systir henn-
ar, Jacqueline Kennedy, varð for-
i setafrú Bandaríkjanna, og raunar
þóttust menn ekki greina í fari Lees
'neina viðleitni til alvarlegrar lífs-
. stefnu eða löngunar til sérstakra
; viðfangsefna. Hún þótti skemmtana-
fíkin og blöðin birtu gjarna myndir
af henni, þar sem hún var á
) skemmtisiglingu um Miðjarðarhafið
'j með auðjöfrum eða í veizlum með
\ fyrirmönnum. Hún er vellauðug,
.fríð sýnum og raunar smekkmann-
eskja einnig, þar sem hún hefur ár-
i um saman átt sæti á listanum yfir
beztklæddu konur heims. En þeir
■‘sem þekkja hana vel, fullyrða einn-
! ig, að hún sé vel viti borin, skemmti-
leg í viðræðum og kunni að koma
/ fyrir sig orði.
h
f S amt freistuðust margir til að
halda, að skyndilegur leiklistaráhugi
; hennar væri áðeins enn ein dægradvölin,
il sem hún hefði raunar ágæta aðstöðu
, ' til að veita rér, einkum þegar fréttist,
~/, að hún genei heint inn í aðalhlutverk,
1
Lee Radziwill með börnum sínum, hund-
um og köttum á sveitasetrinu skammt
frá London.
en slík hlunnindi veitast, sem kunnugt
er, fáum byrjendum í leiklist.
E n allt hendir samt til, að Lee
sjálf líti þessa leiklistarviðleitni sína
alvöruaugum. 1 tvö ár stundaði hún
leiklistarnám í London hjá viðurkennd-
um kennara, sem lætur hafa eftir sér
þessi ummæli: „Ég get skorið úr um,
hverjir hafa náðargáfuna og hverjir
hafa hana ekki, og hún hefur hana, al-
veg tvímælalaust." Á sama máli er leik-
araþjálfari í New York, sem einnig hef-
ur veitt henni tilsögn. Hann segir, að
hún sé bæði metnaðargjörn og ástríðu-
full, en hvort tveggja sé æskilegir eig-
inleikar fyrir leikkonu.
L ee sjálf segir í viðtali vi'ð ame-
riskan blaðamann, að sér hafi alla tíð
fundizt hún eiga erindi á leiksvið —
raunar segist hún ekki halda, að hún
hafi neina frábæra hæfileika umfram
aðra — en það sé nauðsyn fyrir sig að
komast að því, hvort þessir hæfileikar
séu aðeins hennar eigin ímyndun eða
hvort þeir séu raunverulegir. Óvissan
geri það að verkum, að sér finnist líf sitt
vera að renna út í sandinn og nú sé
annað hvort að hrökkva eða stökkva;
það boði þá engan heimsendi, þótt sér
mistakist.
E innig lagði hún megináherzlu á
að þreyta frumraun sína á sviði frekar
en í kvikmynd, jafnvel þótt reynslu-
mynd, sem gerð var í Englandi, vekti
góðar vonir og þætti takast vel. i kvik-
myndaleikinn skortir persónulega
spennu; hefði mér mistekizt, hefði verið
auðvelt að láta eyðileggja filmuna, seg-
ir hún, en á sviði er ekki hægt að
snúa við. Mér fannst því heiðarlegra að
gera þessa tilraun á sviði fyrir opnum
tjöldum. Henni stóð einnig til boða að
að sjá um sjónvarpsþaetti, en hún af-
þakkaði. Þar var ekki um leik að ræða,
segir hún, þar hefði ég orðið að vera ég
sjálf.
l_J mboðsmaður hennar í London
fékk fyrirmæli um að vera vel á verði,
ef stæði til boða hlutverk sem hæfði
Lee Radziwill, og þegar leikflokkur í
Chicago ákvað að sýna gamanleikinn
The Philadelphia Story, varð að sam-
komulagi að fela Lee Radziwill aðal-
hlutverkið. Vissulega var þetta ekki
beinlínis óskahlutverk Lees — aðalper-
sónan var grunnhyggin efristéttardama,
en Lee gramdist þegar illkvittnar tung-
ur sögðu, að hún þyrfti ekki annað en
leika sjálfa sig. Hún aftók, að hún og
aðalpersónan væru líkar, enda enginn
grundvöllur fyrir slíkum hugleiðingum,
þar sem leikritið væri þrátt fyrir allt
aðeins grínleikur, sem risti hvergi djúpt
í persónusköpun. Það hefði verið auð-
veldara og skemmtilegra að fá að beita
sér í t. d. Chekhov-leikriti, þar sem
verulega reyndi á hæfni leikarans.
Sysnr Jaquelínes JVenneflys er ráðin i að gerast leikkona.
LEE RADZIWILL
|7
n þott leikritið þætti ekki stor-
brotið, virtust allir samdóma um, að
Lee sýndi mikið hugrekki með þessari
tilraun sinni, þar sem hún mátti vænta
þess, að frumraun hennar yrði ef til vill
dæmd af annarlegum ástæðum og at-
hygli manna á leiklistarviðleitni hennar
sprottin af öðru en listrænum áhuga.
En margir urðu til að rétta henni hjálp-
andi hönd meðan á æfingum stóð. Eigin-
maður hennar, prinsinn, kom fljúgandi
frá London til þess að veita henni sið-
ferðilegan stuðning, og hóf strax að
undirbúa veizluhöld eftir frumsýning-
una, og skyldi þangað bjóða 3000 Pól-
verjum. Lee kom þó í veg fyrir það.
Hún segist hafa dálæti á Pólverjum og
innræti börnum sínum tveim virðingu
fyrir pólskum uppruna sínum, en hins
vegar séu Pólverjar svo ákafir og örir,
að 3000 þeirra samankomnir í einni og
sömu veizlunni sé of mikið af því góða.
Rithöfundurinn Truman Capote, sem er
einn bezti vinur hennar, kom í tíðar
heimsóknir, og hvatti hana til dáða. Sér-
stök þjónustustúlka, sem kunni sex
tungumál, var ráðin meðan á æfinga-
timanum stóð, og hafði hún raunar á
hendi einkaritarastörf jafnframt. Og loks
stóð Lee í stöðugu símasambandi við
völvu nokkra í Kaliforníu, sem les fyrir
forlög manna úr stjörnumerkjum, og sá
hún enga annmarka á því að Lee héldi
sínu striki.
L ee er ekki frá því, að eitthvað
sé hæft í stjörnuspádómum; samkvæmt
stjörnumerki hennar er hún tilfinniri^a-
Framhald á bls. 11
17. september 1967
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS