Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.1968, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.1968, Blaðsíða 10
(.andsbókasafn Islands 150 ára Erindi Finnboga Guðmundssonar, lands- bókavarðar. Flutt á bátíðarsamkomu í þjóðleikhúsinu 28. apríl s.l. Fyrri hluti. i nafni Landsbókasafns íslands býð ég yður öll velkomin hinga'ð í dag til þessa móts, sem efnt er til í minningu 150 áia afmælis safnsins. Ég þakka þjóð leikbússtjóra þá vinsemd að leyfa oss að k.cria fyrst saman á þessum stað, en að því er mikið hagræði, sem óþarft er að lýsa nánara. Ætlunin er að lok- jnni athöfn hér að ganga yfir í Safna- húsið og skoða sýningu þá, sem þar bíður vor á nokkrum þáttum úr sögu Landsbókasafnsins. Mun þvi ekki úr vegi að rifja upp fáein atriði þeirrar sögu, og vnður þá að vonum að stikla á stór.i. Jó” Jacobsson landsbókavörður samdi á sinni tíð minningarrit um aldarsögu safnsins 1818-1918, mikið verk, er kom út árið 1920. Jón getur þess þar, að hug- '■uyr'.ciip um stofnun almenns bókasafns á íslandi muni fyrst skjallega komin frá Lýzkalandi, og birtir hann í þýð- ingu langt og merkilegt bréf, dagsett 28. ágúst 1817, frá Friedrich Schlichtegroll, aðalritara Hins konunglega vísindaaka- demís í Múnchen, til Múnters Sjálands- biskups. Allar líkur benda til, að Schlichtegroll hafi einnig ritað nokkr- ■jni Hafnar-fslendingum um málið, og Jjóst ,>r að málaleitan hans kom til um- íæðo bæði í háskólaráði og í Hafnar- deild Hins íslenzka bókmenntafélags. Stofnun bókasafns var aðeins einn þátt- ur i mjög víðtækum tillögum Schlichte- grolls, Iþví að þessi þýzki hugsjónamað- ur sá fyrir sér sem í draumi eins konar allsherjarvísindastofnun, sem þó legði •regin.' herzlu á rannsókn íslenzkrar nátt úru c;g bókmennta, eða eins og hann kerrst að orði í bréfi sínu í þýðingu Jóns Jacobssonar: „Og hvernig myndu nins vegar náttúrufrábrigði þessa und- ursanúega eylands, — sem vakið hafa svo sterka athygli allra vísindavina, þar sem t\o margar gátur eru enn óráðnar og svo margar rannsóknir enn ógerðar eftir nýrri og betri þekkingu á náttúru vísindunum, — hve miklu dýpri mundu þá verða rannsóknir þessara náttúrufrá- brigða og nákvæmari þekking vor á þeim, þegar rannsóknarandinn þar (nyrðra) fengi næring og tæki fengjust úl að hagnýta oss árangurinn af þeim! Þetta eyland, sem þegar í húmi forn- aldarinnar iðkaði vísindin — eins og g:\rrlar eyjar yfirleitt eru frægar fyrir í sögu mannkynsins — þessi eyja, sem gat þá Finn Magnússon og (Eggert) Ól- afsson, sem gaf oss — þótt undrum sæti — hinn mikla líkansmið Thorvald- sen. sem nú er virtur og í hávegum hafður í Róm af listfræðingum allra þjóða, — þetta eyland mun einnig fram- vegis gefa oss fleiri stórhöfðingja í bók- menntum og listum, ef vér örvum og hvetjum þær gáfur, sem þar búa, og bú- um þeim tæki í hendur.“ Þess var ekki að vænta, að slíkar til- lögur næðu fram að ganga þá, þar sem vér getum varla sagt með sanni, að araurr.ur hans hafi enn rætzt til fulls nftir í.álfa aðra öld. En draumsýnir Schlichtegrolls komu róti á hugi manna og bjuggu í haginn fyrir annan út- lending er brátt lét bókasafnsmálið til sín taka og hratt því áleiðis, svo að um >mnaði. Eg á hér við Danann Carl Christ'an Rafn. Hann hafði 23 ára gam- .'L skki fyrr gengið í Hafnardeild Bók- menntafélagsins en hann lagði fram bréf, þar sem hann æsk- ir þess, að félagið „setji nefnd manna til að yfirvega, hvörnig almennt bóka- f.afn verði bezt stiftað á íslandi með fylgjandi lista yfir ýmsar bækur, er nokkrir þegar vilja gefa til þessa augna- miðs“, segir í Samkomubók Hafnardeild- ar fyrrnefndan dag. Forseti deildarinnar, Bjarni Þorsteins- : on, tók rösklega á þessu máli, þakk- aði Rafni í bréfi daginn eftir „göfuga viðleitni, tillögur og tilboð“, en ritaði síðan 14. apríl forseta Reykjavíkur- deildar félagsins, Árna Helgasyni, um rnálið. Reykjavíkurdeildin ræddi það á tundi 27. júlí og ákvað að rita sam- dægurs stiftsyfirvöldunum um það, en þegar dráttur varð á svari Iþeirra, senni- lega vegna fjarveru Castenschiolds stift- amtmanns, ritar Árni Helgason Geirbisk upi Vidalín bréf 18. ágúst og spyrst lyrir j-já honum, „hvort ei mundi ráð til að bókmenntunum yrði móttaka veitt og sú ráðstöfun gerð, sem til- hlýðileg er bæði í tilliti til bókanna geym; lu og líka brúkunar“. Geir biskup brást snarlega við þess- ari málaleitan, svaraði Árna í bréfi 28. ágúst, bað hann flytja Rafni beztu þakk’r fyrir „sinn heiðursverða vel- gjörnmg", en kveðst jafnframt sam- dægurs hafa „tilskrifað þvi konungl. d. Cance.lie og beiðzt af því samþykkis og nauðsynlegs peningastyrks til að hentugur kairnur yrði tilbúinn á Reykja- víkur dómkirkjulofti þessu bókasafni til varðveizlu, og gjöri ég mér beztu von um bænheyrslu hér um,“ segir Geir biskup. I registri bréfabókar biskups hefur hann skrifað Stiftsbiblioteket funder- ast cg hefur því síðan verið fylgt að ■niða stofnun safnsins við bréfagerð biskups Iþennan dag. 28 ágúst 1818, þótt bréfið til Cancellísins yrði að vísu ekki sent fyrr en 11. september og 1 bakst'gl slægi, þegar til kasta hinna dönsku yfirvalda kom. „Virðist útbún- aðarkostnaðurinn á kirkjuloftinu,“ seg- ir Jón Jacobsson í aldarsögu safnsins, „hafa verið þeim þyrnir í auga og þau h„rft í nýjan kostnað við kirkjuloftið að kirkjuviðgerðinni nýafstaðinni." En bæði Rafn og íslendingar þeir, ci iétu sér annt um þetta mál, héldu því vakandi við yfirvöldin, og átti Bjarr.; Þorsteinsson, er fyrr var getið, þar emkum innangengt, því að hann var u:n þessar mundir ritari í rentu- kanirrerinu. Þannig var ákveðið með konungsúrskurði 11. apríl 1821 að fela Möller kaupmanni að útbúa húsnæði á dórnkl kjulofinu handa stiftisbókasafn- inu cg skjalasafni biskupsembættisins fj’rir 240 rikisdali úr silfri, er greiða skyldi úr fjárhirzlu konungs. Talsverð- ur dráttur varð þó á framkvæmdum, b'ú að húsnæðið reyndist ekki tilbúið fyrr en í nóvembermánuði 1825. Rafn og ýmsir aðrir söfnuðu á meðan ótrauðir bókum og fé og sendu hingað heim. í skýrslu, er Rafn lét prenta í Kaupmannahöfn 1826 og í eru birt nöfn 134 gefenda og tala gjafabinda fram til ársins 1826, sést, að bindin eru þá alls orðin 1545. Af þeim hefur Rafn sjálfur gefið 83 bindi, en hins vegar safnað alls 918 bindum eða 3/5 hlutuin allra bindanna. En Rafn lét ekki bér við sitja, heldur studdi safnið af ráðum og dáð allt til æviloka 1864. Er oft vitnað til eftirfarandi orða hans í bréfi jO. marz 1863 til stjórnar Reier- senska sjóðsins, en þar er stjórnin hvött til að styrkja Landsbókasafnið: 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 8. september 1968

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.