Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1970, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1970, Blaðsíða 1
Það er jólakvöld fyrir tæp- lega 940 árum. í Sarpsborg, konungssetri Ó1 afs Haraldssonar Noregskon- ungs, hefir undanfarna daga verið mikið annríki við undir- búning hinnar kristnu hátíðar. Nú er því annríki að mestu lokið, því að jólin eru gengin í garð. Konungur og hirð- menn hans, að undanskildum skutulsveinum og nokkrum öðr- mm, eru setztir við borð, sem hlaðið er kostulegum krásum. Við aðra hlið konungs situr ís- lendingurinn Egill sonur Síðu- Halls, og talast þeir við. Aðr- ir þeir, sem setztir eru til borðs, skrafa saman, svo að nokkur kliður er um salinn. Skyndi- lega hljóðnar skraf karla, því að konur ganga í salinn. Fremstar ganga tvær glæsileg ar konur. Þar fara drottning Noregs Ástríður dóttir Olafs Svikonungs, og Þórlaug Þor- valdsdóttir, eiginkona Egils Síðu-Hallssonar. Við hlið Þór- laugar gengur ung fögur mær, ljós á hár, en rjóð í kinnum. Sezt nú drottning í sæti sitt, en Þórlaug við aðra hlið henn- air, og svo mærin umlga við bemm. ar hlið. Konungur spyr Eg- il, hvort þai-na sé ekki dóttir hans og Þórlaugar. Egill segir svo vera, að þetta sé Þorgerð- ur dóttir þeirra, átta ára að aldri. Þá brosir konungur og segir stundarhátt, svo að flest- ir í salnum máttu heyra: „Þessi dóttir þín lízt mér væn mær og með góðu yfir- bragði, og það kann ég að segja þér, að hún mun verða gæfumaður mikill, og sá mun göfugastur ættbogi á íslandi, er frá henni mun koma“. Það er sumardagur árið 1056. Þennan dag eru komin til heimsóknar í konungsgarð Sveins Úlfssonar Danakonungs hjónin Þorgerður Egilsdóttir og Ögmundur Þorkelsson, ásamt fjögurra ára gömlum syni sínum, Jóni. Þessi hjón eru búsett að Breiðabólstað í Fljótshlíð á íslandi, en hafa nú gert ferð sína til Danmerkur. Þeim er vel tekið í konungs- garði. Stuttu eftir komu þeirra er setzt að borðum, og er Þor- gerði skipað til sætis við hlið Ástriðar, móður Sveins kon- ungs. Þorgerður hefir Jón son sinn með sér til sætis. Svo segja fornar heimildir: „Og er margskonar krásir dýrðlegar með góðum drykk komu á borð konungsins, þá varð sveininum það fyrir, sem jafnan er barnanna háttur, að hann rétti hendur til þeirra hluta, er hann fýsti að hafa. En móðir hans vildi banna honum það og sló á hendur hans. Þegar Ástríður drottning sá það, þá sagði hún við Þor- gerði: „Eigi svo, eigi svo, Þor- gerður mín. Ljóstu eigi á hend ur þessar, því að þetta eru biskupshendur". Þorgerður roðnaði við, laut niður, en sagði ekkert. Upp í huga hennar kom minning um atvik, sem gerðist, þegar hún var átta ára, en það var, þegar Ólafur helgi Noregskonungur spáði henni giftu. II. Mér fannst eðlilegt að hafa frásagnirnar af þessum tveim- ur atvikum hér í upphafi sem eins konar forspjall að þvi, sem ég ætla að ræða lauslega um hér á eftir. Samkvæmt fornum heimild- um mun það hafa verið á al- þingi 1201, sem messudagur Jóns biskups Ögmundssonar hins helga var lögtekin. Sá dagur skyldi haldinn helgur ár hivert, en það var 3. marz. Þair með var helgi Jóns biskups viðurkennd og staðfest, þó að hún hafi ekki verið viður- kennd af kirkjunni almennt né páfa. En á þessu ári teljast þá 768 ár síðan Jónsmessa var lögtekin. Ef við lítum í Alman- akið okkar, lesari góður, sjáum við, að hún er þar kölluð „Jónsmessa Hólabiskups á föstu“. Bar hana að þessu sinni upp á mánudaginn 3. marz. En hvers vegna gerði alþingi þetta? Það er spurningin, sem mig langar til að svara hér að nokkru leyti, eða eftir því sem efni standa til. Verður þá fyrst fyrir að rekja að nokkru æviferil þessa merkilega manns, sem talinn var göfugur, jafnvel áð- ur en hann var getinn í móð- urlífi, biskupsefni, meðan hann enn var barn, en á starfs- árum sínum sem biskup talinn helgur maður. III. Jón var fæddur að Breiða- bólstað í Fljótshlíð 1052, að því er bezt verður vitað. Hann eCst upp foreldruim síraum Ög- mundi Þorkelssyni og Þorgerði Egilsdóttur. Er þess getið, að „sniemmindis vairð fleiir.spáð atf vitrum mönnum, hvilíkur þessi maður mundi verða, enn helgi Jón biskup, því að hvar sem hann kom, fannst mönnum mik- ið til um hann. Maður hét Guðimii og vair kaOlaðuir Guðini hinn góði. Þegar Jón var barn að aldri, sá Guðini hinn góði hann og segir: „Sjá maður er fríður og hefur yfir sér mikið heilagleika bragð“. Þegar Jón var kominn af bernskuskeiði, var honum kom ið til námsdvalar hjá ísleifi biskupi Gissurarsyni. Þar mun hann hafa dvalið þar til hann var 21 árs, því að það Þykir fullvíst, að áður en hann fór frá biskupi, hafi hann verið vígðuir til emibættis undir- djákna. En saimlkvæmit löigum iþar uim mlátti emgain vígjia tál undirdjákna ininian 21 árs að aldri. Eftir dvöl sína hjá ísleifi biskupi fer Jón vafalaust heim að Breiðabólstað til foreldra sinna. Er hann þá glæsilegt ungmenni, sem lýst er þannig: „Hann (enn helgi Jón) var mikill maður vexti, manna lið- mannlegastur, eygður manna bezt, bleikur á hár og sterkur að afli, og hinn þekkilegasti í öllu yfirbragði". Þegar hér var komið segir, að Jón hafi fýst að fara utan, því að hainin hafi ginnzt „aið sj’á góðra manna siðu og nám sitt að auka“. Og á stórbýlinu Breiðabólstað skorti ekki skot- silfur til slíkrar farar. Verður það að ráði, að Jón fer utan, líklega ekki seinna en 1074. Ekki eru til neinar heimildir um það, hvað Jón hafi haft fyrir stafni í þeirri ferð. Vitað er, að fyrst liggur leið hans til Noregs, síðan til Danmerkur, Um fleiri lönd er ekki leið hans rakin, en hann heldur vafalaust suður Evrópu beinustu leið til Rómar eða eins og sagt er: „Sækir heim hinn helga Pétur postula“. Ekki er vitað, hversu lengi hann dvaldi í Rómaborg. Um þær mundir er Gregoríus VII. páfi, atkvæða- mikill kirkjuhöfðingi, sem Jón hefir vafalaust lært mik- ið af og borið óskarða virð- ingu fyrir. í þessairi feæð siinini hefir Jón lagt sig eftir að nema sem mest af því, sem honum mætti til gagns verða í störf- um heima á íslandi. Ekki er vitað, hvernig hann hagar heimferð sinni. En um Frakk- land hefir hann farið og komið til Parísar. Þar finnur hann æskuvin sinn og frænda Sæ- mund Sigfússon frá Odda. Verður þar fagnaðarfundur. Fyrir tilstilli Jóns slæst Sæ- mundur í för með honum og Jón Kr. ísfeld Hann var sannur faðir allra fátækra manna Um Jón biskup helga, líf hans og lækningamátt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.