Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1971, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1971, Blaðsíða 5
tu, pau germ nann. En hvers vegna . .. Bíðið andartak. Og svo fór hann að daðra við yður? Stúlkan fór eilítið hjá sér við spurninguna. Fyrirgefið, en af hverju viljið þér fá að vita allt þetta? Verið bara róleg, svaraði ég. Ég œtla ekki að leggja neinar óþægilegar spurningar fyrir yður. Bara að spyrja yður um nokkur smáatriði, svo að segja. Hánn daðraði sem sagt við yð- ur, það er augljóst mál. Segið mér — mér datt það svona allt í einu í hug — bauðst hann ekki til þess fyrirvaralaust, svona eins og til að brjóta ís- inn og kynnast yður náið, að spá i lófa yðar? Stúlkan skellti upp úr. Alveg hárrétt. En hvernig í ósköpunum gátuð þér vitað það. Það má vist segja, að þér vitið lengra nefi yðar. Þetta var nefnilega það sem ég hafði hugsað mér að gera; og það hefði ég sagt henni, hefði ég þorað. Ég horfði á stúlkuna og nú fannst mér sem leiftraði frá henni hættulegum glæringum líkustum þeim sem stafar frá stólpunum sem há- spennulínurnar eru strengdar á. Mér var, satt að segja, ógerningur að segja eða gera nokkurn hlut, sem verk- fræðingurinn hafði ekki þegar sagt eða gert. Og eftir þvi sem mér skildist, þá var verkfræð- ingurinn líkur mér, spurði ég loks. Hvernig þá? Ég meina í útliti. Ég varð var við, að hún virti mig vandlega fyrir mér. Síðan sagði hún: Ja, á vissan hátt. Þið eruð báðir ósköp venjulegir menn. Hvernig þá? Ja, hvorki laglegir né ljótir, hvorki langir né stuttir, hvorki ungir né gamlir. Miðlungs. Ég sagði ekkert. En ég horfði á hana og i vanmætti mínum og harmiþrunginni reiði, hugsaði ég með mér, að ævintýrið væri nú orðið að engu. Stúlkuna varð ég að láta lönd og leið, og nú var bara að finna upp eitthvert ráð til þess að senda hana burtu. Hún tók eftir skap brigðum mínum og spurði dá- lítið óttaslegin: En hvað er að yður? Er eitt- hvað að? Álítið þér, að menn eins og ég og verkfræðingurinn séu á hverju strái? spurði ég þving- aður. Ja, það held ég. Þið eruð — hvað á ég að segja — þið eruð eins og fjöldinn. Ég tók viðbragð og stúlkan hrópaði upp yfir sig: Nú skil ég. Yður sárnaði að ég skyldi segja, að þér væruð ósköp venjulegur maður. Er það ekki? Nei, mér sárnaði ekki bein- linis, svaraði ég. Við getum sagt, að ég hafi — lamazt. Lamazt? En af hverju það? Jú, úr því ég geri eins og allir aðrir, þá finnst mér betra að gera alls ekki neitt. Stúlkan reyndi að hug- hreysta mig. En þér þurfið alls ekki að finnast þér vera lamaður, þeg- ar þér eruð með mér. Ég full- vissa yður um, að ég kann bezt við svona menn eins og yður, menn, sem eru ekki allt of frumlegir, eða stórkostlegir, menn sem maður veit fyrirfram hvað þeir ætla að segja eða gera. Einmitt það, nú þarf ég að vinna, sagði ég og reis á fæt- ur. Þér verðið að fyrirgefa, en það er áríðandi verkefni, sem ég verð að ljúka. Við fórum út í forstofuna. Stúlkan virtist ekki taka þetta nærri sér. Hún brosti. Verið þér nú ekki svona reiður, sagði hún. Því að þá hagið þér yður, satt að segja, alveg eins og verkfræðingur- inn. Nú, hvemig hagaði hann sér? Einu sinni, þegar ég sagði honum, að hann væri eins og allur fjöldinn, sem sagt, ósköp venjulegur maður, þá varð hann reiður, alveg eins og þér, og rak mig út. Tlie Man Versus The State. Herbert Spencer. Edited with an Introduction by Donald Macrae. A New View of Society and Report to the Couinty of Lanark. Ro- bert Owen. Edited with an IntroduotJiioai by V. A. C. Gat- reilL The Pollican Classics. Penguin Books 1969—1970. Herbert Sper.cer var boðberi „laissez-faire" kenningarinnar í efnahags og samíélagsmálum. Hann taldi mikil afskipti ríkis- valdsins af atvinnumálum og efnahagsmálum leið til áþjánar og ófrelsis og stórdraga úr öllu frumkvæði i framkvæmd- um einstaklinga. Hann taldi að í stað trúarinnar á guðlegan rétt konunga væri þá kominn guðlegur réttur þjóðþinganna og áleit að frjálslyndir sam- tímamenn hans stefndu til alls herjar þrælkunar alls iands- fölksins, sem auknum afskipt- um ríkisvaldsins um atvinnu- mál og fjármál. Sósialisma taldi hann leiða beint til þrælk unar. Penguin forlagið telur fulla ástæðu til þess að gefa nú út þetta gleymda rit auk nokkurra þátta, þegar rikis- valdið þrengir stöðugt meir og meir að framkvæmdafrelsi þegnanna. Upphafsmaður samvinnu- hreyfingarinnar Robert Owen var einnig frumkvöðull brezks sósialisma, hann áleit eins og svo margir velviljaðir menn, að skynsemi og uppbyggileg fræðsla myndu siðbæta mann- kynið til fegurra lífs og reisti kenningar sínar um samvinnu- hugsjónina á þeirri skoðun. Rekstrarform hans á fyrirtækj- um var víða tekið upp og hef- u/r blómigazt, þó ekikli alks srbað- ar í þeirri mynd, sem Owen sá í hMlintgum. I þessari bók bint- ist i fyrsta skipti sósiölsk kenn ing i nútíma merkingu orðsins, útgefin 1821. The Pelican Book of English Prose. Voliume I—II. Edibed by Roger Sharrock and Ray mond Williams. Penguin Rooks 1969—70. Þetta er sýnisbók ensks óbumd’iins máls frá upphafi, eða frá Engil-saxnesku krónikunni og fram yfir miðja tuttugustu öld. Efninu er raðað eftir tíma- röð og innan hvers tímaskeiðs er bað flokkað eftir efni í al- mennar lýsirgar ýmissra fyrir- bæra, skálrirkap og kafla um þau efni sem mönnum litust áhuigaverðust á viðkomandi títmabiffi. Leitazt er við að sýna þróun ensks bókmáls, stíls og skv'njunar. Alexander oder Die Ver- wandlung der Welt. Peter Ramm. Dr.iemer Knaur 1970. Peter Bamn: hefur sett sam- an læsilega fantasiu um Alex- anöer mikla og þýðingu hans fyrir heimssöguna. Sagan er mjög skemirtileg aflestrar, at- bu ðarásin hröð og litauðugar lýsingar og ýmis konar sögu- legur samtíningur halda les- andanum við efnið. Aðdáun höfundar á hetju sinni er tvíl- laus og einlæg. 17. janúar 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.