Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1971, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1971, Blaðsíða 4
Séð frá Egilsvörðu út Godt- haabsfjörð. Ljósni. Th. Krabbe (1906). Godtliaab ogr Egilsvarða. Varð- an er enn til við Godthaab, sennilega reist upphaflega af síra Agii. Af korti gerðu af Sæmundi Holm eftir frumdrög- um síra Egils. Ekkert er auðveldara í trú- boðssög’u Grænlands en að vera hlutdrægur. Það stafar af þeim heimildum, sem fyrir hendi eru. 1 þeim rísa tilfinn- ingarnar hátt. Við finnum t.d., að konunglegu trúboðaimir eru beittir hræðilegum órétti. Þeir virðast oftasit nær lúta í lægra haldi í baráttu sinni við kaup- manninn í Godthaab. Eina und antekningin frá þessu er sira Egill Þórhallason. Bréf hans til Finckenhagen etatsráðs og Trúboðsráðsins 1766 virðast breyta skoðun þeirra á ástandinu á Grænlandi. Kaup- manninum er vikið frá 1767, og kaupmaðurinn í Sukkertoppen, Hans Storm, tekur við. Hann er samvinnuþýðari en fyr- irrennarinn. Þá eru það Herrnhútarnir. Aðeins orðstír þeirra í kirkju- og kristniboðssögu getur hindrað mann i að vera hlut- drægur gagnvart þeim. 1 græn- lenzkri trúboðssögu þessa tíma birtast þeir eins og friðarspill- ar. Og margir, sem um þetta hafa skrifað, hafa lýst þeim sem slíkum. Þungvægasta onsök þessa viðhorfs eru deil- ur Christians Davids og Hans Egedes, er Hermhúts-bræður komu fyrst til Grænlands. Síð- an gat aldrei gróið um heilt. Og þegar kaupmennirnir tóku sér stöðu með Herrnhútunum og á móti dönsku trúboðunum, sem skylda þeirra var að styðja, hlaut andrúmsloftið að verða beiskjublandið. íslend- ingar eiga dæmi um neikvæð- an áróður kaupmannsins i slúðrinu, sem einn af „matrós- um“ verzlunarinnar, Árni Magnússon frá Geitastekk, skrifar um síra Egil í reisubók sinni: „Þessi Góðavon er betri kaup staður en sá, ég var á. Þar var síra Egill Þórhallason prestur og prófastur. Þar var og Guð- mundur Guðmundsson. Þar er mikill æðarfugl, og erfiðisfólk hafði stóran ábata á eggjum og dún, því Guðmundur sendi Stykkishólmskaupmanni æð- ardún. Þá óreglu afskaffaði Egill Þórhallason, af fáum vel upp tekið, því það kom honum ei við, en fyrir að koma sér í vinfengi við kompagniet skrif- aði hann þessa sök svoleiðis, að þessi dún skyldi leggjasf til höndlunarinnar. Síðan varð undir straff afsköffuð þessi óregluleg meðhöndlan. Þetta er hið fomemsta, þessi íslenzki prestur gjörði í Grænlandi. Allir hinir, sem voru danskir, kærðu sig ei um höndlunina. Islenzkir yrðu ei dönskum betri í sumum sökum. Nú er hann dauður og begrafinn. Eft- ir lifir mannorð mætt, þó mað- urinn deyi.“ Þessi frásaga er eins og áð- ur er sagt ekkert annað en haglega smíðuð kjaftasaga og götuslúður, og flest sem í henni er sagt, er soðið upp úr mörg- um óskyldum þáttum. En þegar við þekkjum hin eiginlegu afrek síra Egils betur, getur verið gott að hafa slíkar lyga- sögur til samanburðar. Þar sér maður m.a. hverja óvini trú- boðarnir áttu i starfsfólki verzlunarfélagsins. ENN UM HERRNHÚTA. Hið andlega stríð, sem átti sér stað í Godthaab á tíma síra Egils, var mikiu stærra í snið- um en við getum séð í fljótu bragði. Hér er nefnilega um að ræða árekstur tveggja ólíkra viðhorfa, sem komin voru norður í Grænland allar götur suður úr Mið-Evrópu. Ef vel hefði til tekizt í upphafi, hefði kaninski verið hægt að komasf hjá árekstrinum með lempni. Annars vegar var sjónarmið einvaldstímabilsins, að þegn arnir skyldu hafa sömu trú og þjóðhöfðinginn. Hins vegar hálfkalvínsk leikmannasjón- armið, þar sem andi Guðs átti að stjórna öllum aðgerðum. Samkvæmt þeirri kenningu (eins og hún birtist í Græn- landi) var prestur, launaður £if hinu opinbem ekkert annað en Satans þjónn, sem þurfti svo sannarlega á frelsun að halda. Skipulag safnaðarlífsins hjá Bræðrunum frá Mæri var með afbrigðum sérkennilegt. Þeim var nauðsynlegt að hafa söfn- uðinn á einum stað, þvi að annars fór öll regla úr skorð- um. Þeir skiptu söfnuðinum í svokallaða „kóra“, þ.e. samfé- lagsskiptingu eftir kynferði og ektastaindi. 1 einu húsi bjuggu hjón, í öðru ógiftar stúlkur, í þriðja ekkjur, í fjórða ókvæntir karlmenn. Einnig höfðu þeir þann sið að merkja komur i sínum hópi með allavega litum hár- böndum til þess að ómögulegt væri að villast á þeim. Rautt band ráknaði ógifta stúlku, blátt táknaði gifta konu, hvítt táknaði ekkju, en grænt ógifta barnsmóður. Siður þessi var kominn frá Mið-Evrópu, og varð vegna áhrifa Herrnhúta mjög almennur á Grænlandi allt fram á þessa öld. Sigurður Sr. Kolbeinn í>orleifsson Eskifirði Fyrsti íslenzki kristniboðinn Vakningin * í Pissugfiq 4. GREIN - NIÐURLAG Breiðfjörð getur hans í Græn- landsvisum sínum. Jólasiðir þeirra með lúðra- blæstri og kertagöngu fciðkuð- ust á Grænlandi allt til síðasta stríðs. Sönglíf þeirra og músík mennf var eins góð og við var að búast af Mið-Evrópumönn- um á 18. öld. Guðsþjónustur þeirra fóru fram með hljóm- sveitarundirleik. Sálmalög þeirra voru mörg í hæsta gæðaflokki, enda höfðu þeir merkilegan arf að ausa af, þar sem var sálmabók Bæheims- bræðra. Allt þetta hafði sín menning- arlegu áhrif á Grænlendinga. En enginn getur láð dönsku trúboðunum, að þeir fyndu ekki hina góðu hlið i starfsemi Herrnhútsbræðra, meðan þeir sjálfir löptu daiuðann úr skel og fengu ekki einu sinni byggt almennilegt guðshús. Það má samt segja sira Agli til hróss, að hann er einn sá fyrsti, sem reynir að læra af því góða, sem Herrnhútarnir höfðu upp á að bjóða í sálmasöng. En þrátt fyrir það átti hann í hörðu striði við þá á sama tíma. VAKNING. Það er alltaf mikil stund, þegar trúboðar sjá ávöxt erf- iðis síns og heiðingjar taka kristna trú. Mér er t.d. minnis- stætt, þegar bréfið var lesið, sem sagði frá afturhvarfi fyrsta heiðingjans í Konsó. Ekki sízt fyrir þá sök, að einn af frægustu drengjakórum Norðurlanda var látinn bíða utandyra, meðan gleðitíðindin voru sögð. Það kom trúarvakning yfir Godthaab-héraðið, sem breidd- ist síðan yfir alla vesturströnd Grænlands. Upphaf þeirrar vakningar má rekja til atburð- ar, sem sira Egill sagði frá i bréfi til Finckenhagen 1766. Þá um sumarið höfðu þeir Jóhannes verzlunarþjónn ver- ið sfcaddir á Pissugfiq-eyj um. Þar héldu þeir guðsþjónustu, sem 50 manns hlustuðu á. Grænlendingar hlýddu á boð- skap þeirra af mestu athygli, að undaintbekinium terúði einum, sem iðkaði spott og spé. Gera má ráð fyrir, að trúður þessi hafi verið seiðkarlinn „angakokkinn" á eyjunum. Þessi frásögn er dýrmæt vegna þess sem siðar gerðist. Sumarið 1767 hélt síra Egill aftur út í eyjarnar. Seiðkarl- inn Immaneq hél't áfram upp- teknum hætti, en þá var síra Egill orðinn leiknari í málinu. Ávítaði hann seiðkarlinn stranglega fyrir hegðun hans, og boðaði honum þungan dóm fyrir vikið af hálfu hins al- máttka. Þetta sama sumar hófst vakning meðal hinna trúuðu í Godthaab og Nýju Herrnhút. Vegna viðhorfa Herrnhúita tók hreyfing þessi á sig vingl- kenndan blæ. Fólk só sýnir og dreymdi drauma. Sira Egill og aðstoðarmenn hans reyndu að halda þessu innan skynsam- legra takmarka. Vetur gekk í garð, og norður í Pissugfiq-eyjum sat seiðkarl- inn Immaneq og kvaldist af sáru samvizkubiti og ótta við örlög sin. 1 marz þoldi hann ekki lengur við, heldiur sendi sendiboða til síra Egils og bað hann koma strax og hjálpa sér. Um þennan atburð eiga Græn- lendingar þjóðsögu, sem er þannig: „Þótt ísinn hefði ekki leyst um vorið, gaf Immaneq fyrir- mæli um það, að sendi- boði skyldi fara til Godthaab, þar sem hann fullyrti, að leið- in yrði greiðfær, þráifct fyrir ís- inn. Þar sem ósk hans var svo heit, ákváðu 4 ræðarar — tveir synir hans og tveir aðrir — að reyna. Þegar þeir lögðu af stað í kajökum sínum, var sjórinn aðeins auður rétt við byggð- ina, en er þeir héldu áfram, rofnaði skarð í ísinn, sem nægði fyrir f jóra kajaka. Þeir fóru fyrsta daginn til Kangeq, en daginn eftir fóru 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. marz 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.