Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1972, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1972, Blaðsíða 1
* Esra Pétursson, læknir ÞJÓÐFÉLAGS- VANDAMÁL SEM SKAPAST VIÐ NEYZLU ÁVANA- OG FÍKNIEFNA Stjórn Rauða kross íslands, kœru borgarar. Mér er mikil og sönn ánægja að vera boðinn hing- að til ykkar í dag til þess að ræða við ykkur eitt mesta vandamál manna. Þakka ég ykkur kærlega fyrir boðið. Hygg ég einnig gott til samvinnu þeirra aðila, sem munu fjalla um málið nánar x dag. Hefi ég oft áður notið samstarfs við lögreglu og lögmenn, fræðslustjóra og lækna. Skemmtilegt og nærtækt dæmi er tiliaga borgarlæknis okkar, doktors Jóns Sigurðssonar og Bjama læknis Bjarnasonar, um nefndarskipun vegna Domus Medica. Bárum við hana fram á aðalfundi Læknafélags Islands á Akureyri árið 1954. Var hún samþykkt og vorum við þremenn- ingarnir skipaðir í nefndina. Nokkru síðar lagði ég æ lengra út á þær leiðir, sem mér var vísað á, en doktor Jón og Bjarni báru hita og þunga dagsins i þeim efnum. Árangurinn varð svo loks þessi fagra stofnun, sem við erum hér saman komin í. Við íslendingar erum vel á vegi staddir í mörgum efnum. Erum við ein efnaðasta þjóð veraldar. Ars- tekjur einstaklinga eru hvergi hærri nema i Banda- ríkjunum, Sviþjóð og Kuwait. Hvergi er auðnum jafn vel skipt á milli manna. Verkamaðurinn hefur aðeins helmingi lægri tekjur en forsætisráðheri'ann. í Svíþjóð er munurinn þrefaldur, en í Bandaríkjun- um og í Rússlandi getur hann orðið fimmtug- til hundraðfaldur. Sannur jöfnuður og lýðræði er því i hávegufn haft hér, bæði í orði og verki. Samfara efnalegri velmegun á Island líka því láni að fagna að efnamengun er óvíða minni, jafnt til lofts sem lagar og í matvælum. Enn eru ótalin andlegur auð- ur þjóðarinnar, frjálslynd en einlæg og rótgróin trú- rækni, menntnn og visindi, bókmenntir og aðrar listir. Heilsufar er óvíða eða hvergi betra, langlifi kvenna mikið og karla ívið minna, ungbarnadauði með þeim lægstu. Geðveiklun og geðveiki eru sizt algengari en annars staðar og geðvilla mun mimni. Geðvilla hlýtur að vera vægari hér en annai's staðar. Sést það bezt á því, að alvarleg afbrot eru langtum færri, áfengisdrykkja og önnur ávanaefnanotkun er miklu minni en í flestum öðrum vestrænum löndum. ísraels- búar standa næstir Islendingum í þessum menning- arefnum. Geðvilla er að visu ekki ýkja miklu fátíðari hér en annars staðar samkvæmt rannsóknum prófess- ors Tómasar Helgasonai’i). Hún hlýtur því að sama skapi að vera til stórra muna vægari. Nýverið hafa birzt greinar og verið fiuttar fréttir í útvarpi vestra þar sem sýnt er svart á hvítu að íslendingar fremja fæst alvarleg afbrot allra þjóða. Má að þessu leyti segja, að íslendingar séu löghlýðnastir allra. Kann þetta að koma ykkur spánskt fyrir sjónir og hefur í veðri verið látið vaka við mig, að hér séu óknytt- ir og ýmsar yfirsjónir algengar, æskan sé illa á vegi stödd og þar fram eftir götunum, þegar ég hefi brydd- Fjögur erindi um þetta geigvænlega vandamál, haldin á fræðslufundi Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands, 4. marz s.l. að upp á þessari ágætu löghlýðni Islendinga. Er því til að svara, að í fyrsta iagi eru mér ekki handbærar upplýsingar um tíðni óknytta og yfirsjóna Islendinga miðað við önnur lönd, enda mun erfitt, ef ekki óger- legt, að safna slíkum gögnum svo áreiðanlegt megi teljast. Svo er hitt veigameira atriðið, að óknyttir og smá afbrot eru annað en stórglæpir, þótt ekki fari vel á því að bera í bætifláka fyrir þá með það sem afsök- un. Vafalaust má rekja uppsprettu löghlýðninnar til trúar á hið fornkveðna úr nitugasta kafla Njálu: „Með lögum skal land byggja en ólögum eyða.“ Ekki er ósennilegt að löghlýðnin nærist af ágæti löggjaf- arinnar og standi líka í sambandi við góða meðferð löggjafarvaldsins og löggæzlunnar. Fólksfæðin mun einhvei ju valda og má vej'a að íslenzki stofninn eigi smávegis þátt í þessu. Talið er meira um vert að Sturlungaöidin hafi hreinsaö hann af mönnum með vei’stu glæpahneigðinni. Hafi þeir þá gengið rösk- * lega að því að útrýma hver öðrum. Loks mun lítil mengun, jafnt innri sem ytri, stuðla að beti-a jafn- vægi í þessum efnum. ORSAKIK FIKNILYFJANEYZLU Erfitt er að venja heilbi-igðar skepnur á ávanaefni. Sé til dæmis vel öldum rottum boðnar missterkar vín- blöndur, dreypa þær í mesta lagi lítils háttar á létt- ustu vínblöndunum. Sé þeim gefið lélegt fæði eða menguðu lofti dælt í búr þeirra leggjast þær fi'emur í ofdrykkju. Sálgreinandinn Masserman gerði ketti r

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.