Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1972, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1972, Blaðsíða 14
I Grjótaþorpinu, á næsta bæ við Morgnnblaðið, er kjallari með dálítið útlenzkulegu nafni: Gallery Grjótaþorp. I»ar hafa verið haldnar smásýningar á myndlist öðru hvoru, en núna stendur þar yfir sýning á ljós- myndum eftir Markús Jó- hannsson. Hann tekur og vinn- ur þesskonar myndir, að ugg- laust flokkast það einnig und- ir myndlist. Munurinn er ein- ungis sá, að Markús notar — eins og fleiri — myndavél í stað blýants eða lita. I»essi sýning heitir „Undir hálfu tungli“, hvað sem það á nú annars að tákna, þvi hér er ekki um neinar tunglskins- myndir að ræða. Markúsi verð- ur annars margt að myndefni og er ekki hægt að segja að hann hafi meiri mætur á einu en öðru. Enda gildir hér það sama og um aðra myndlist; sjálft viðfangsefnið eða stefn- an skiptir ekld mestu máli, heldur hvernig listamaðurinn ræður við það sem hann spreytir sig á. Hér á landi eru margir áhugaljósmyndarar, en sýningar á ljósmyndum eru hins vegar fremur fátiðir at- burðir. Að ofan: Ást og ástarsorg. Til vinstri: Kennslustund. Myndin er tekin i kennslustund f Myndlista- og handiðaskólan- um. Til hægri: Vizkutréð. UNDIR HÁLFU TUNGLI Markús Jóhannsson sýnir ljósmyndir milli hinna ýmsu deilda stoín- unarinnar, án þess að ég væri nokkum tíma kvaddur til ráðu neytis, og búið var að skera af henni eitt og annað hér og þar, var vist orðið svo lítið eft ir af henni, að leifarnar fóru hljóðalaust í hið óseðjandi melt ingarfæri hinnar alþjóðlegu skriffinnsku — pappirskörf- una. Ég fékk aldrei að heyra eitt einasta orð um örlög áætlunar innar, en frétti þó smám saman um gang málsins. Ég tðk því upp beint samband við Þjóð- verja, og þess vegna voru að minnsta kosti nokkrir liðir hennar framkvæmdir. Hvort ég hafi verið vonsvik- inn? Já, svo sannarlega. Árs vinnu var kastað á glæ með öllu, sem henni fylgdi. Hið eina, sem þetta skildi eft ir, var dýrkeypt reynsla af þeim leik, sem var og er leik- inn undir yfirborði hins sak- leysislega, en kæfandi alþjóð- lega skriffinnskuveldis. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.